Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Qupperneq 17
„Atvinnurekendur geta
ekki neytt starfsmenn til
neins en þeir geta gert
þeim auðveldara fyrir með
einföldum ráðum.“
Skýr tengsl sáust milli líkamsþyngdar
og hreyfingar hjá flugfreyjum, hjúkrunar-
fræðingum, kennurum og læknum af
báðum kynjum þannig að þeir sem stunda
líkamsrækt að staðaldri höfðu lægri LÞS.
Ekki er hægt að útiloka að þessir hópar
hafi öðruvísi vinnutíma og meira svigrúm
til líkamsræktar en ýmsir aðrir.
Vinnustaðurinn er kjörinn vettvangur til
að efla lýðheilsu vegna þess að vinnandi
fólk ver mestum hluta sólarhringsins á
vinnustað. í þessu sambandi skiptir máli
að litið sé á málin í víðu samhengi.
Ludvig Árni Guðmundsson (2004) benti
á það í ritstjórnargrein í Læknablaðinu
að nauðsynlegt sé að fá stuðning skóla
og atvinnulífs við þær lífsháttabreytingar
sem þurfa að verða til að ráðast gegn
offituvandanum. Ludvig mælir með því að
það verði föst regla hjá heilsugæslunni að
reikna þyngdarstuðul allra sem þangað
leita á sama hátt og blóðþrýstingur er
mældur og skráður.
Þetta kann þó að vera tvíeggjað að því
leyti að of feitar konur gætu skirrst við
að nýta sér forvarnir, svo sem að fara í
brjóstamyndatöku, leghálsstrok eða að
fá inflúensusprautu, af ótta við að verða
settar á vigt og úrskurðaðar of þungar
(0stbye o.fl., 2005).
Líkamsþyngdarstuðull gerir ekki
greinarmun á líkamsfitu og þjálfuðum
vöðvum, aðeins er reiknað út frá
hæð og þyngd. Spyrja má t.d. hvort
líkamsþyngdarstuðull 26 hjá bónda er
sambærilegur við sömu útkomu hjá
bankamanni. í þessari rannsókn er horft á
tíðni hreyfingar, þ.e. hversu oft í viku fólk
segíst stunda markvissa hreyfingu sér til
heilsubótar. Þetta er í eðli sínu ófullkominn
mælikvarði þar sem eðli hreyfingarinnar
getur verið alls ráðandi um líkamsþyngd-
ina. Þrátt fyrir þennan annmarka var
mikil og náin fylgni milli líkamsræktar
og líkamsþyngdarstuðuls hjá flugfreyjum,
Áhugaverðar vefsíður
www.hjartaheill.is
iUKHIHGARKORT
PetAt lanmuntU. t,>5ft4s)Ahoga, sem nú heita HJail
l.ransaröaijCKítófTií A íslandi íhámait;l. PáméttirefinafMdÞvfað20-30Xpe1rrasemfeng)j
t fansmSastllVj myndij efckl Irta pað af. Sðustu ár hefur dinartenti v16 kianneBastlflu lajfleB oget 1
dej eringis un IX Petta var fyrlt 25 ánm, nánar II teH6 8. oMÍOer 1Q83 o* vonj stofnfáiagaf
230, nú eru felagsmern HJartehefla 3600. Alt frá stofnui hafa samtöávi beitt ser fyrtr frv&sfu og
forvOrrun varBantfl hJartasjCKdóma, vettt aðstoS og ráðgjöf og sta818 fynr margvl.-legun urcotun <
ÞáguhJartas)>Jngá.
Þrátt fýrlr laeá.kun dánartðm vegna hjarta og sðasjCá.dóma með forvömm, breyttum Iffsstl
landsmanna og framfðnjm f laeknlsmeíferí, eru Þetr em lengalgengáita dánarorsOkn á fslandl. Ait að
700 mams deyja ár hvert af vóldum hjarta- og aeSasJúkdöma eða tarp aOHpelrra sem látast ár
hvert.umbaðblDÍOkarlarogOOOkcrur. PaSþýair aidaglegalátastrverrl2Istendtigar, Ikarlog 1
kona, úr hjarta og sðasjúkdómun.
Pessi afvarlega staðreynd biaslr við þó a3 utdanfama áratugl hafl umtst stónr llgrar vö eð
fyrlrbyggja og meðhóndfa hjartasjúl dcma. Sem dasml um framfarlr má nefna að með óflugu
forvamarstarfl hefúr tekist að draga úr áhrtfun hebtu áhasttigsátta. Hetntigl feerrl reykja en Þegar
mest var og betrf stjóm hefur náðst á háum MóðÞrýstlngt og bfóðfltu lanúsmame. lyfjameðferð
hefur Þatneð svo og moðferð á hjartadeádun og f endjrhaefHBJ.
l&LYFJA
KÖNNUN
hveá fumst )e
r **)6* IJárt
KJÚSA ÚRSUT
Hjartaheill, áður Landssamtök hjartasjúklinga, voru stofnuð 8. október 1983
og eru því 25 ára um þessar mundir. Það er því tilvalið að skoða nánar vefsíðu
samtakanna. Um leið óskar Tímarit hjúkrunarfræðinga Hjartaheillum tíl hamingju
með afmælið og árangurinn gegnum árin.
Að sögn Ásgeirs Þórs Árnasonar, framkvæmdastjóra Hjartaheilla, hafa samtökin
verið með heimasíðu síðan 1999. „Markmiðið var þá að koma frá okkur fréttum.
Það var þá tíðarandinn að allir þyrftu að fá sér heimasíðu." Síðan hefur þjónustan
á vefsíðunni aukist jafnt og þétt. Til dæmis var álitið æskilegt að koma bæklingum
samtakanna og annarra fyrir þannig að auðvelt væri að ná í þá. Einnig er kynnt
hvar hægt er að kaupa minningarkort Hjartaheilla. Hægt er að lesa á pdf-formi
„Velferð" sem er fréttablað samtakanna.
Vefsíðan hjartaheill.is hefur nýlega fengið nýtt útlit. Hægt er að gefa nýja útlitinu
einkunn og hafa flestir talið hana „mjög flotta". Breytingar á vefi samtakana eru
liður í því að halda upp á 25 ára afmælið. Til stóð að gera síðuna gagnvirkari en
það reyndist allt of dýrt. Á vefnum var áður sölukerfi vegna sölu á minningarkortum
en það var tekið niður vegna þess að það var ekki nægilega öruggt. Nú stendur
til að setja upp nýtt sölukerfi sem svipartil ÞayPal. Þegar pantað er minningarkort
er farið á aðra vefsíðu þar sem gengið er frá kaupunum og eftir greiðslu er
viðskiptavinurinn kominn aftur á vef Hjartaheilla. Þá er einnig í bígerð að bæta við
valmynd sem heitir „Fræðsla" og flokka núverandi fréttir í fréttir og fræðslu.
Núna fær síðan 4-500 heimsóknir á dag. Ásgeir Þór segir að margar þeirra
séu frá heilbrigðisstarfsmönnum og þeir fletti síðunni jafnt og sjúklingar og
aðstandendur. Á síðunni er þó ekki mikill fróðleikur fyrir heilbrigðisstarfsmenn.
Frá Hjartaheillum er annars það að frétta að í tengslum við afmælið verður aftur
gefin út Hjartabókin sem nú kemur í 3. útgáfu. Hjartaheill hafa nýlega varið 220
milljónum í nýtt hjartaþræðingartæki á Landspítala og 17. september var frumsýnd
myndin „Grettir - þroskasaga hjartasjúklings" sem samtökin kostuðu.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008
15