Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Qupperneq 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Qupperneq 26
Heimsókn til Svíþjóðar Fyrirmyndokkaráíslandiífræðsluogundirbúningisjúklingsfyrirmeöferðinaersótttilónæmisfræðideildarinnar Immunbristenheten á Huddinge-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Þangað fór Sigrún Þóroddsdóttir, hjúkrunar- fræðingur á Barnaspítala Hringsins, í upphafi til að kynna sér meðferðina. Undirrituð heimsótti deildina í apríl síðastliðnum til að kynnast nýjungum, fara yfir verkferla, ræða við hjúkrunarfræðinga deildarinnar og kynnast daglegu starfi þeirra. Deild þessi er eina ónæmisfræðideildin á öllu Stokkhólmssvæðinu og þangað koma allir sjúklingar sem þurfa á gammaglóbúlínmeðferð að halda og eru þar einnig í eftirliti. Heimsókn mína á Huddinge-sjúkrahúsið tengdi ég við norrænt þing sjúklinga með ónæmisgalla og aðstandenda þeirra. Þing þetta er haldið annað hvert ár. í ár voru það sænsku samtökin PIO sem héldu þingið og var það óvenjuveglegt vegna 30 ára afmælis samtakanna. Dagskráin var mjög áhugaverð, auk ýmissa fyrirlestra var Baxter-lyfjaverksmiðjan skoðuð og framleiðsla gammaglóbúlíns kynnt en lyfið er mjög dýrt og framleiðsluferlið er mjög flókið og kostnaðarsamt. Áhugaverðasti fyrirlesturinn fannst mér vera kynning Ann Gardulf, hjúkrunarfræðings og dósents, á niðurstöðum úr mjög stóru rannsóknarverkefni, ALPI, Att Leva med Primer Immunbrist, að lifa með ónæmisgalla, sem hún ásamt níu öðrum hjúkrunarfræðingum stóð fyrir þar sem könnuð eru líðan og viðhorf fólks með ónæmisgalla til sjúkdómsins og meðferðarinnar, hvort og hvað hefur breyst eftir að meðferðin hófst. Þeir sem tóku þátt og svöruðu voru 841 fullorðinn, 25 börn og unglingar, foreldrar voru 93. Hópurinn hafði samvinnu við 52 barna- og fullorðinsónæmisdeildir víðs vegar í Svíþjóð. Rannsókn þessi er hingað til sú stærsta í heiminum sem gerð hefur verið á þessu sviði. Mjög margar og merkar niðurstöður komu út úr þessari rannsókn, t.d. sýndi hún að langflestir eru ánægðir með sína meðferð og finnst þeir hafa góða vörn gegn sýkingum. Marktækur munur er á fækkun innlagna á sjúkrahús. Talsvert fleiri drengir en stúlkur greinast með ónæmisgalla, það er alveg öfugt við fullorðna, þar greinast miklu fleiri konur en karlar. Mikill meirihluti þeirra sem ekki eru í heimameðferð myndi helst vilja nýta sér hana. Einnig komu fram athugasemdir um hvað heilbrigðisþjónustan getur gert betur í þessum málaflokki. Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar á Evrópuþingi ESID (European Society for Immunodeficiencies) sem haldið verður í Hollandi í október 2008. sig mjög vel. Hann þarf aö læra á dæluna, mikilvægi hreinlætis í sambandi við lyfjagjöfina og einnig að læra alla meðhöndlun lyfsins og þess búnaðar sem þarf, auk þess að læra að stinga sig. Fullorðnir fá alla sína þjálfun á göngudeild A-3, ofnæmis- og lungnagöngudeild á LSH í Fossvogi. Börnin og foreldrar þeirra fá sína þjálfun á göngudeild Barnaspítala Hringsins. Mæta þarf á deildina einu sinni í viku í átta vikur til þess að ná góðum tökum á meðferðinni. Ef upp koma vandamál við lyfjagjöfina þegar heim er komið er alltaf hægt að hafa samband símleiðis við hjúkrunarfræðinga viðkomandi deildar og leita ráða. Læknir sækir um lyf og búnað til Tryggingastofnunar ríkisins sem síðan er afhent á sjúkrahúsinu þegar Tryggingastofnun hefur veitt leyfið. Sækja þarf um hvert atriði fyrir sig, s.s. dælu til að gefa lyfið undir húð, sprautur sem passa í dæluna til að draga upp lyfið, nálar með slöngu til að stinga undir húð, síu á sprautustútinn, uppdráttarrör og lyfjaskírteini fyrir Gammanormi. Heimameðferðina er farið að nota í flestum löndum Evrópu og í Bandaríkjunum. Víðast hvar er hún fyrsti kostur. Ef heimameðferðin gengur af einhverjum ástæðum ekki vel er meðferðin veitt á sjúkrahúsi. Lokaorð Það er álit langflestra sem breytt hafa yfir í eða hafið heimameðferð hér á íslandi að það sé mikill munur að þurfa ekki að leggjast inn á sjúkrahús og „upplifa sig sem sjúkling". Þeir verða sjálfra sín herra og þeim finnst þeir verða meðvitaðri um eigin sjúkdóm og hvernig á að bregðast við honum. Einnig hefur minna borið á aukaverkunum og líðanin verður stöðugri. Helsti ókosturinn við heimameðferðina er að hún þarf að fara fram vikulega. Flestir sem breytt hafa yfir í heima meðferð segja þó að stöðugri líðan og stjórn á eigin meðferð vegi þyngra. Fyrir þjóðfélagið er heimameðferðin einnig mun ódýrari en meðferð á sjúkrahúsi. Einungis þeir sem þurfa á langtímameðferð með gammaglóbúlíni að halda fá heimameðferð. Ásta Karlsdóttir er hjúkrunarfræðingur á göngudeild ofnæmis- og lungnadeildar á Landspítala í Fossvogi og er í stjórn Lindar sem eru samtök einstaklinga með meðfædda ónæmisgalla, aðstandenda þeirra og áhugafólks. 24 Tlmarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.