Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Side 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Side 32
skoða vinnuumhverfi þeirra og fara yfir stoðnetið í kringum þá. Sem dæmi má nefna að sumir sviðsstjórar hafa ekki einu sinni ritara. Það er Ijóst að skriffinnska tekur mikið af tíma sviðsstjóra sem væri betur varið í samskipti við starfsmenn. Að sögn Ernu er markvisst unnið að endurbótumávinnuherbergjumhjúkrunar- fræðinga - bæði til skráningar, viðtala við sjúklinga og fjölskyldur og til lyfja- tiltektar. Áætlun um endurbætur á lyfja- herbergjum liggi fyrir í húsnæðisnefnd. Einnig sé unnið að endurbótum á legudeildum sem ætti að bæta vinnu- umhverfið verulega. Verið sé að athuga vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga í stórri rannsókn. Lesa má um rannsóknina, sem ber heitið „Þekking og mannafli í hjúkrun á bráðadeildum: verkferlar og vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða" í fréttapunkti hér í blaðinu. „Við fórum strax af stað með viðamikið gæða- verkefni." Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar á slysa- og bráðasviði, segir að ýmislegt hafi verið gert til þess að bregðast við gagnrýni sem fram kom í könnuninni. „Ég vann sjálf á skrifstofu mannauðsmála þegar könnunin var gerð og sá um framkvæmdina á Landspítala þannig að þegar ég byrjaði á slysa- og bráðasviði var ég vel inni í niðurstöðum sviðsins," segir Rakel. „Við fórum strax af stað með viðamikið gæðaverkefni um öryggi sjúklinga og starfsfólks sem hlaut styrk bæði frá sjúkrahúsinu og frá heilbrigðisráðuneytinu." Öryggismál voru eitt af þeim atriðum sem starfsfólki sviðsins fannst yfirmenn ekki taka nógu alvarlega samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Þó að vinnan virðist vel á veg komin á slysa- og bráðasviði og á skrifstofu mannauðsmála virðist Iftið vera að gerast á öðrum sviðum. Hjúkrunarfræðingar í deildarvinnu, sem Tímarit hjúkrunarfræðinga talaði við, höfðu lítið heyrt um niðurstöður könnunarinnar og hvernig yfirmenn þeirra hygðust bregðast við. Hins vegar hefur verið skipaður stýrihópur á Landspítala um starfsumhverfi og stjórnum deilda og er markmið hans að vinna að bættu starfsumhverfi og stjórnun deilda. Það er óskandi að þessi umræða komist fljótlega á gott skrið alls staðar á Landspítala. Notkun Augnskaðar Sýru brunar Alkali brunar Aðskotahlutir Augnaðgerðir Sýkingar r ' \ Augnlinsan __ fráMorgan o Augnlinsan frá Morgan Lens er sérstaklega hönnuð til að meðhöndla augnskaða. Augnlinsan er mjög auðveld í notkun og hentareinnig vel til skolunar við efnabruna og til að fjarlægja aðskotahlut úr auga. Sjá nánari upplýsingar á vefsetri framleiðandans: www.morganlens.com The Morgan Lens Eirberg '^Z-pMorTariinc. Stórhöfða 25-110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.