Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Page 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Page 49
FRÆÐSLUGREIN Hringbraut og frá apríl 2008 hefur þjónusta GÁT veríö í boði á tveimur legudeildum LSH í Fossvogi. Eitt af markmiðum GÁT er að efla samvinnu og teymishugsun. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur, með a.m.k. tveggja ára starfsreynslu á gjörgæsludeild, tekur við álitsbeiðnum og sér um að þeim sé sinnt innan 10 mínútna. Hann tekur einnig þátt í mati og meðferð og veitir ráð og aðstoð varðandi hjúkrun sjúklingsins á legudeild. Sérfræðingur í svæfingalæknisfræði kynnir sér sögu og meðferð, skoðar sjúkling og metur þörf fyrir gjörgæsluinnlögn ásamt því að gefa ráð um frekari meðferð ef ekki er talin þörf á gjörgæsluvistun. Lögð er áhersla á að ábyrgð á sjúklingi sé áfram á hendi lækna og hjúkrunarfræðinga legudeildar en gjörgæsluteymið einungis ráðgefandi. Enn fremur er æskilegt að búið sé að nýta þá þekkingu og úrræði sem eru til staðar á deildinni áður en kallað er á teymið. Til að auðvelda nákvæmari vöktun og mat á breytingum á ástandi sjúklings var tekið upp stigunarkerfi, kallað „stigun bráðveikra sjúklinga", að breskri fyrirmynd (mynd 1). Auk þess voru hjúkrunarfræðingar á legudeildum hvattir til að nota nákvæmari skráningarblöð hjá mikið veikum sjúklingum (mynd 2). Mynd 1. Stigun bráðveikra sjúklinga. Stig Öndun (/mín.)l Púls (/mín.) Stigun bráðveikra sjúklinga (Modified Early Warning Score) Syst. blóðþr. (mmHg) Hiti (°C) Þvagútsk. (ml/klst.) Meðvitund < 9 < 40 171-80 <35 < 20 1 41-50 81-100 35,1-36 < 35 Rugl 1 15-20 101-110 38,1-38,5 Mikið þvag Bregst við ávarpi 21-29 111-129 a 200 > 38,5 Bregst við sársauka Að meðaltali voru 7,5 útköll á mánuði fyrstu 12 mánuðina í starfi GÁT á LSH, Hringbraut. Flest útköll eða 67% voru á skurðlækningadeildir. Útkall leiddi til innlagnar sjúklings á gjörgæslu í 39% tilvika en í öðrum tilvikum var meðferð haldið áfram á legudeild. Viðbragðstími teymisins var innan 5 mínútna í helmingi tilvika (markmiðið er innan 10 mínútna) og viðvera á legudeild var í flestum tilvikum um 20 mínútur (8-85 mínútur). Ástæður útkalls voru oftast tengdar óskilgreindum áhyggjum starfsfólks af ástandi sjúklingsins en rannsóknir sýna að þær ber að taka alvarlega. Þar næst kom loftvegaógn (þar með talið fall í súrefnismettun) og því næst breytingar á lífsmörkum (mynd 3). Flest útköll voru á morgunvöktum (mynd 4). Séu upplýsingar frá erlendum sjúkrahúsum með sambærilega þjónustu heimfærðar á LSH má búast við tæplega einu útkalli á dag eftir að starfsemi GÁT hefur verið að fullu tekin upp, að útköll dreifist jafnar yfir sólarhringinn og 70% útkalla hljóti afgreiðslu á legudeild en um 30% leiði til innlagnar á gjörgæslu. Mynd 2. Nákvæmt eftirlit alvarlega og bráðveikra sjúklinga. Ö NÁKVÆMT EFTIRLIT Mssassaa" i M*P M -r- -e- -4- -r- -f- -f- — — — -H — -4- " ' I i; • - - - "* * — - — -r- 40 eriíÆKJS j >úl« B IVJ A BPd <SL AP m, il Oðþ w. Hj H éð: >7 1 1 i 1 1 0, Hvtmig cefið ®ös. (T)fach. Vél Oj Majn • hrývlingw úl/mn (EPAP/IPAP) Onúuiurllðni; Sjúklinguf/irél Minútu volumf/lidll volumc VOl (vurrimunmun) PH PCOj P02 so2 HCOj/BE ®ogun. ®unnur.®8l.(J>4Ch Hvll/ntulro Hb/nogur Blúðtyiur BM/Pvíg lyt|Jv«kvi ®l««, ®lbúmin.(P)lMmj.(F)W*w Ummunn Magasondi Afli: ' Pvig. (S)ponlanl. (P)viglfggur UppkOvl/vonda Hegdir/mdurgingur Drtn/umbúðrr Bleðmg Afls: VOkvaiafnvígi SUgun briðvtikn sjúklinga (SBS) Verkur (0-10) 1. 2. J. 4. 5. Lokaorð Mikil veikindi og flókin meðferð sjúklinga á legudeildum Landspítala er staðreynd. Til að auka öryggi sjúklinga og bæta gæði þjónustunnar er mikilvægt að skoða þá þætti sem rannsóknir benda til að ógni lífi sjúklinga. Þættir eins og skortur á hjúkrunarfræðingum, ónóg þekking og þjálfun starfsfólks, óljósir verkferlar og vinnureglur, og samskiptavandamál geta leitt til þess að ekki er brugðist tímanlega við fyrirboðaeinkennum sem benda til versnandi ástands. Rannsóknir sýna að ef tekið er eftir fyrirboðaeinkennum og gripið snemma inn í veikindi sjúklinga með markvissum aðgerðum, svo sem að kalla til gjörgæsluteymi, þá er hægt að bæta líðan þeirra og afdrif. Því geta góð vöktun og rétt viðbrögð skipt sköpum. Þjónusta gjörgæsluteymis er ákveðin aðferð til þess að bæta öryggi sjúklinga á legudeildum LSH og byggist á þeirri hugmyndafræði að færa án tafar sérhæfða ráðgjöf og inngrip til sjúklinga í stað þess að færa sjúklinga á milli deilda og sérgreina. Nálægð hjúkrunarfræðinga við sjúklinga ásamt áherslu á heildræna sýn, sem fram kemur í hugmyndafræði hjúkrunar, Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008 47

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.