Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Page 53
um þaö væntanleg. Bergdís segir að
RKÍ sé um margt frumkvöðull á sviði
samfélagsþjónustu. Þegar verkefnin hafa
sannað gildi sitt er kominn tími fyrir ríkið eða
sveitarfélög að taka við og Rauði krossinn
getur farið að skipuleggja ný verkefni.
Þannig fór til dæmis með sjúkrahótelið sem
Landspítali hefur nú alfarið tekið við.
En heimsóknarþjónustan er enn verkefni
Rauða krossins. „Þörfin er geysileg og
við höfum pláss fyrir fleiri sjálfboðaliða,"
segir Bergdís. „Þetta er hentugt verkefni
fyrir hjúkrunarfræðinga á eftiriaunum og
við erum nú þegar um það bil 10 en
gætum verið fleiri."
Bergdís hefur verið að kynna starfsemi
Rauða krossins og þá sérstaklega heim-
sóknarþjónustuna á ýmsum heilbrigðis-
stofnunum. „Ég fór á Landakot í vetur
og er að fara í Sóltún núna í haust. Við
fáum talsvert af heimsóknarbeiðnum frá
heilbrigðisstofnunum en til þess að geta
sinnt öllum þessum beiðnum þurfum við
að hafa sjálfboðaliða. Það er svo gott
að fá sjálfboðaliða úr heilbrigðisstéttum
og þetta er góður vettvangur fyrir okkur
hjúkrunarfræðinga."
Hjúkrunarminjar varðveittir
Þegar Bergdís er ekki að vinna fyrir
Rauða krossinn notar hún tímann til að
Safnið ( bílskúr Bergdísar. Nýjustu fréttir herma að það verði nú flutt á Suðurlandsbraut 22.
safna og varðveita hjúkrunarminjar fyrir
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. „Þegar
Landspítalinn átti 60 ára afmæli 1990 fór
ég að líta í kringum mig eftir munum til
þess að sýna í þessu afmælishófi. Þannig
byrjaði þetta með að safna gömlum
hlutum," segir Bergdís. „Þá komst ég að
því að það hafði enginn haft hug á því að
safna þessu gamla dóti þannig að ég er sú
fyrsta sem fór að safna gömlum munum
á Landspítalanum. En ég komst líka að
því að í Hjúkrunarskóla íslands hafði
Vasahrákadallur notaður þegar lungnasýki og
berklar voru algengir sjúkdómar og reynt var að
kenna fólki að hætta að hrækja á götum úti.
SKYRSLA MINJANEFNDAR 2003
í febrúar 2003 lagði nefnd, sem Bergdís átti sæti í, til að stjórn Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga myndi beita sér fyrir varðveislu og sýningu
hjúkrunarminja. Stungið var upp á samstarfi við Árbæjarsafn og bent á
að Líknarhúsið, sem tengist hjúkrun, væri góður staður fyrir sýningu í
tengslum við 85 ára afmæli félagsins 2004. Ekki varð úr því en Bergdís
er nú í samstarfi við Þjóðminjasafnið og hugsanlega verður hægt að gera
eitthvað svipað á afmælisárinu 2009.
Einnig var lagt til að FÍH starfaði með Læknafélaginu og Akureyrarbæ um að
styrkja uppbyggingu safns í Gudmanns Minde en það er húsið Aðalstræti
14 á Akureyri. Þar átti sér stað fyrsta skurðaðgerðin í svæfingu á íslandi
1856 og var þar rekinn spítali í mörg ár. FÍH hefur styrkt þetta verkefni en
safnið hefur enn ekki verið opnað. Beðið er eftir svari frá Akureyrarbæ.
Einnig var lagt til að stofnuð yrði minjanefnd og að gerður yrði heildstæður
gagnagrunnur um hjúkrunarminjar og þær varðveittar á viðeigandi hátt.
Eins og kemur fram í viðtalinu er Bergdís ráðin í hlutastarf hjá FÍH og vinnur
að því að setja myndir af öllum minjum inn í gagnagrunn Þjóðminjasafnsins.
Málefni geymsluhúsnæðis eru hins vegar enn ekki leyst.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008
51