Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Page 57
Frá vinstri:
1. Hjúkrunarkona á háum hælum.
Paiii, 6 ára, teiknaði.
2. Á fæðingardeild.
Listamaðurinn heitir Jóna og var þá 6 ára.
3. Helga Dóra, 6 ára, teiknaði myndina.
Takið eftir barninu í belti hjúkrunarkonunar.
i
hjúkrunarkona". Margir töldu hana eina
bestu myndina á sýningunni.
Myndin var í mörg ár í geymslu ásamt
hinum myndum sýningarinnar. Miklu
seinna var hún tekin fram og römmuð
inn. Fyrir 1.-2. tölublað 1987 vantaði
forsíðumynd og Ingibjörg reyndi þá að
hafa upp á listamanninnum til þess að fá
birtingarleyfi. Ekki tókst að finna hann en
myndin var birt á forsíðu blaðsins.
Niðurstaða í eignarmálinu er að myndin
„Ég vil verða hjúkrunarkona" hefur alla
tíð verið í eigu hjúkrunarfélaganna og var
alls ekki teiknuð á Landspítalanum. Hins
vegar er enn óleyst hver listamaðurinn er.
Sumar myndir frá sýningunni hafa týnst
í áranna rás en Ingibjörg hefur varðveitt
hluta þeirra. Tímarit hjúkrunarfræðinga
birtir hér nokkrar myndir. Þær eru allar
eftir sex ára börn.
FRÉTTAPUNKTUR
Hulda lauk námi í hjúkrun og stjórnun frá Hjúkrunarskóla
íslands og framhaldsnámi í stjórnun í Noregi 1989. Hún
hefur undanfarin ár verið sérlegur ráðgjafi við byggingu
Barnaspítala Hringsins og einnig nýs Landspítala.
Nýr forstjóri átti að taka til starfa 1. september en eins og
áður sagði mun Hulda hefja störf um miðjan október. Þangað
til mun Björn Zoéga halda áfram sem starfandi forstjóri.
►
Heilbrigðisráðherra sagði á blaðamannafundi að
margt hæft fólk hefði sótt um forstjórastarfið. Það
sýndi að menn hefðu trú á Landspítala. Nú væri
Landspítali kominn með mjög öflugt stjórnunarteymi.
í viðtali við Tímarit hjúkrunarfræóinga í mars 2006 segir
Hulda um ástæður þess að hún valdi nám í hjúkrun:
„Amma var hjúkrunarkona svo ég þekkti svolítið til
starfsins. Ég held ég hafi valið námið bæði vegna þess
hve það er hagnýtt, það veitti starfsmöguleika fyrir
konur á öllum aldri og einnig var auðvelt að fá hlutastarf.
Ég sá líka hvernig hjúkrunarkonurnar gátu sameinað
starf og fjölskyldu. Hjúkrunarmenntunin var einnig góð
grunnmenntun og með hana að undirstöðu opnast
margar dyr, hjúkrun getur verið undirstaða hvers sem
er. Það er líka eitthvað sameiginlegt með fólki sem fer
í hjúkrun eða læknisfræði, einhver mannúð eða sýn á
manneskjuna, einhvers konar hugsjón. Ég er líka á þeirri
skoðun að það að vinna með fólk og með fólki sé mest
gefandi af öllu.“
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008
55