Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Blaðsíða 25

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Blaðsíða 25
hagnaður af þessum eignum félli ekki undir skattskyldar tekjur A. í máli þessu byggja skattyfirvöld ekki á atvinnurekstrarreglunni, sem ef til vill hefði verið eðlilegast, heldur benda þau á það, að atvinna lögmannsins sé eitt þeirra atriða, sem bent gæti til gróðaskyns hans. Þau benda einnig á ýmis önnur atriði, sem veitt gætu óbeina sönnun fyrir ágóða- tilgangi hans, þ.e. að A hefði ekki þurft á eignunum að halda og að hann væri kunnur að eignakaupum í ágóðaskyni, sbr. þau hlutlægu kennimerki, sem nefnd eru í 15. grein reglugerðar nr. 245/1963. Varðandi landspilduna slær hæstiréttur því föstu, að eigin not A útiloki gróða- skyn. Um íbúðirnar er skýrsla A lögð til grundvallar, þrátt fyrir þau atriði, sem skattyfirvöld benda á; þau nægja ekki til þess að sönnunarbyrðin færist yfir á A. Það er því alveg Ijóst samkvæmt þessum dómi, að sönnunarbyrðin um gróðaskyn hvíldi á skattyfirvöldum. f úrskurði ríkisskattanefndar nr. 319 frá 1963 er að finna eitt af fáum dæm- um þess, að söluágóði fasteignar hafi verið úrskurðaður skattskyldur á grund- velli gróðaskynsreglunnar. Þar var samt um að ræða útleiguhúsnæði, en það sem réði úrslitum í því máli, var viðurkenn- ing skattþegnsins á því, að hann hefði keypt eignina í því skyni að selja hana aftur með hagnaði. Einnig má nefna úrsk. rskn. nr. 428/1964, sem síðar verður rak- inn. Svo sem áður er að vikið, var gróða- skynsreglan felld úr skattlögum með nú- gildandi tekjuskattslögum nr. 68/1971. Málalokin í ofangreindum hæstaréttar- dómi og í hrd. í 39. bindi 1968, bls. 318, sem síðar verður rakinn, hafa sjálfsagt átt sinn þátt í því að sú regla var felld niður. 6. UNDANÞÁGAN í 2. MÁLSGREIN E. LIÐS 7. GREINAR TEKJU- SKATTSLAGANNA 6.1. Inngangur Svo sem að framan greinir, gilti sú undanþága samkvæmt 2. mgr. e. liðs 7. greinar tekjuskattslaganna frá 1954, að söluhagnaður fasteignar, sem seld var inn- an 5 ára frá því að hennar var aflað, var ekki skattskyldur, ef keypt var önn- ur fasteign eða byggt nýtt hús innan á- kveðins tíma, sem var jafnt eða hærra að fasteignamati en hið selda. í þessu sambandi voru aðallega hafðir í huga menn, sem voru að koma sér upp íbúðarhúsnæði og fjárfestu fyrst í litlu húsnæði, en keyptu sér eða byggðu stærra eftir því sem efni leyfðu og fjöl- skyldan stækkaði. Samsvarandi undan- þága fannst ekki (og finnst ekki) í danskri skattalöggjöf og með þessari breytingu 1954 fjarlægðist danskur og íslenzkur skattaréttur að þessu leyti. Flestir íslenzk- ir úrskurðir og dómar um söluágóða fast- eigna eftir þennan tíma snúast um fram- kvæmd og skýringar á þessari undan- þágu, sem að ýmsu leyti var óljós. Skýringuna á þessari mismunandi þró- un íslenzks og dansks skattaréttar má ef til vill finna í hinni óliku húsnæðismála- stefnu landanna. Þróunin á íslandi verð- 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.