Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Blaðsíða 54
Einar Pólsson, forstjóri Reiknistofu bankanna
Endurskoðandinn
og tölvan
Enginn vafi er á því, að þegar talað
er um tölvuvinnslu og endurskoðun eru
uppi mjög mismunandi skoðanir, hvað
þar er átt við.
Hjá flestum virðist þó vera sú skoð-
un, að endurskoðun í sambandi við
tölvuvinnslu sé þægilegri, fljótlegri og ör-
uggari, heldur en við venjulegt bókhald,
þar sem endurskoðun sé mikið til lokið,
þegar búið er að fara yfir einn hluta
tölvuvinnslunnar, þar sem treysta megi
tölvunni í allri vinnslu.
Að mínu áliti er þetta alrangt og mjög
hættuleg afstaða. Einasta sannleikskorn-
ið í þessu er, að tölvan framkvæmir þá
hluti, sem henni er skipað að gera, án
tillits til þess hvort þeir séu rangir eða
réttir.
En hinsvegar gleymist algjörlega, að
þeir, sem setja verkefnið fyrir tölvu-
vinnslu, eru með öllum þeim mannlegu
breyzkleikum sem til finnast.
Enda sanna mjög mörg dæmi í öðrum
löndum, að fátt er jafn auðvelt eins og
að svíkja fé og annað út úr fyrirtækjum
með aðstoð tölvuvinnslu.
Það er því mjög áríðandi, að endur-
skoðendur geri sér ljóst, að þeirra hlut-
verk hefur stækkað verulega í endurskoð-
un fyrirtækja við tilkomu tölvunnar.
Hlutverk endurskoðandans verður hér
miklu víðtækara, þar sem gera verður þá
kröfu til hans, að hann gangi úr skugga
um, að vinnslan sé í heild, eins og
ætlast var til. Það verður að gera sér
ljóst, að það er mikið verk og krefst
nýrrar þekkingar. Hversu margir endur-
skoðendur þekkja í dag hugtök eins og
DOS, OS, CPU, OCR, o.s.frv.? Hversu
margir endurskoðendur gera sér ljóst
hvernig tölvur vinna, hvernig upplvsing-
ar eru skráðar, hvaða hættur eru á því,
að þeim sé breytt eða þær tapist, eða
hvaða öryggi þurfi að vera í tölvuvinnslu
almermt séð.
Lítið dæmi um, hvað getur skeð, er
forskriftarmaðurinn í banka, sem gerði
mjög góða forskrift fyrir sparisjóðsbækur
bankans. Eins og ætíð skeður í útreikn-
ingi þarf að hækka upp eða lækka þegar
um útreikning er að ræða. Þessi ágæti
maður lækkaði allt niður og lét það, sem
af gekk, fara inn á eigin reikning, þ.e.
hann safnaði því saman og gerði síðan
eina færslu úr því eftir árið. Bókhalds-
lega séð stemmdi alltaf allur útreikning-
ur og enginn uppgötvaði neitt, fyrr en
þetta var stigið þessum manni svo til höf-
uðs, að hann fór að hæla sér af því við
aðra og þá fyrst áttuðu menn sig á því,
hvað hafði gerst. Þetta er aðeins lítið
dæmi, hins vegar þekkjast nú mörgum
sinnum stærri dæmi. er skipta milljónum
dollara í svikum með hjálp tölvuvinnslu.
Það verður því að segjast eins og er,
að endurskoðendur verða þegar í stað að
gera sér ljósa þá ábyrgð, sem þeir hafa
vegna tölvuvinnslu.
En hverjar eru þær kröfur, sem gera
verður til endurskoðandans? Grundvallar-
kröfur eru eftirfarandi:
1. Hann þarf að skilja hugtök og orð
sem notuð eru í tölvuvinnslu. Hann
verður að geta þekkt alla megin hluti
eða tæki, sem notuð eru í tölvu-
52