Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Blaðsíða 38
Ámi Vilhjálmsson, prófessor:
Gangverðsreikningsskil
Inngangur
Á síðustu árum hefur áhugi manna
á svokölluðum gangverðsreikningsskilum
vaknað enn á ný. Vafalaust er megin-
skýringin sú, að mönnum hefur ofboðið,
hversu brenglaða mynd hefðbundin
reikningsskil geta gefið af afkomu
og efnahag fyrirtækis á tímum örra verð-
breytinga. í þessari ritgerð er ætlunin
fyrst og fremst sú að gera grein fyrir hug-
myndum tveggja brautryðjenda nýsköp-
unar á sviði reikningshalds, bandaríkja-
mannanna Edgar O. Edwards og Philip
W. Bell, sem árið 1961 settu fram í skýru
máli heilsteypt kerfi gangverðsreiknings-
skila. Á flest rit, sem síðar hafa komið
út um þessi efni, má líta sem framhald
frumsmíðar þeirra Edwards og Beil, við-
bætur, gagnrýni og endurbætur. Reynt
vcrður að koma til skila meginhugmynd-
um þeirra um gangverðsreikningsskil,
eins og þær koma fyrir í upphaflegum
boðskap þeirra, en ekki hirt um að gera
grein fyrir síðari gagnrýni þeirra sjálfra
og annarra á ágóðahugtaki þeirra, sem
sér í Iagi varðar afskriftir af fastafjár-
munum. Þá er jafnframt sneitt hjá um-
ræðu um framkvæmdaerfiðleika, sem
einnig varða sérstaklega meðferð fasta-
fjármuna; erfiðleika, sem reyndar má
ætla, að yrðu sérstaklega torveldir við-
fangs hér á landi. Engu að síður má ætla,
að hugmyndir uin gangverðsreiknings-
skil eigi brýnna erindi til íslendinga en
flestra annarra vegna þeirra miklu svipt-
inga í verðlagsmálum, sem hrjá íslend-
inga.
Ritgerðin skiptist í þrjá meginhluta.
Fyrst er stutt samantekt um meginein-
kenni hefðbundinna reikningsskila. Síðan
eru settar fram hugmyndir þeirra
Edwards og Bell með skýringardæmi.
Loks verður greint frá tillögum um gang-
verðsreikningsskil, sem fyrir skömmu
voru settar fram í Bretlandi af stjórn-
skipaðri nefnd, sem kennd hefur verið
við formann hennar, Francis Sandilands.
Megineinkenni hagnaðarliugtaks
hefðbundinna reikningsskila
Hefðbundin reikningsskil leiða ekki til
einnar ótvíræðrar niðurstöðu um afkomu
fyrirtækis og um hreina eign. Reiknings-
skilareglunum er í rauninni áskapaður
verulegur sveigjanleiki. Við skulum þó
loka augunum fyrir aragrúa afbrigða,
sem leyfð eru og viðgangast, og þess í
stað styðjast við einfaldaða lýsingu, sem
er þó í aðalatriðum sönn lýsing á hefð-
bundnum reikningsskilareglum.
Þegar hismið hefur verið skilið frá
kjarnanum, blasa við okkur tvö megin-
einkenni hefðbundinna reikningsskila-
reglna. Annað er það, að peningaeining-
in er notuð sem verðmælir, án þess að
tillit sé tekið til breytinga, sem kunna að
verða á verðgildi einingarinnar. Höfund-
ur hefur kynnt í þessu tímariti aðferð til
þess að fjarlægja áhrif breytinga á verð-
gildi peninga úr reikningsskilunum.*
*Leiðrétting efnahags- og rekstrarreikn-
inga fyrir áhrifum almennra verðlags-
breytinga, Tímarit um endurskoðun og
reikningshald, 2. tbl. 1975.
36