Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Síða 39

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1976, Síða 39
Gildi slíkra leiðréttinga er mjög umdeil- anlegt. Til þess að einbeita okkur að síð- ara einkenninu skal óhætt að gera ráð fyrir, að almennt verðlag, hvernig svo sem það er mælt, sé stöðugt. Hitt megineinkennið er svo það, sem ýmist er lýst með auðkenninu „kostnað- arverðsregla" (historical cost principle) eða með „reglunni um tekjur sem inn- leystar tekjur“ (realization principle). í aðalatriðum mælir reglan fyrir um, að tekjur verði til við sölu (innlausn, real- ization) og að hreinar tekjur séu mis- munur söluvirðis og upphaflegs kostn- aðar (historical cost). Fyrri liður þess- arar skýrgreiningar ákveður, hvenær hagnaður sé talinn hafa myndazt; síðari liðurinn segir til um upphæð hagnaðar. Líta má svo á, að starfsemi fyrirtækis greinist í tvo cðlisólíka þætti. Annar þátturinn varðar vinnslu (eiginlega form- brevtingu eða staðarbreytingu), sem er fólgin í því að tengja saman framleiðslu- nauðsynjar með ákveðnu samanlögðu virði í afurð með hærra virði. Hinn þáttur starfseminnar er fólginn í geymslu framleiðslunauðsynja eða verðmæta (tímabreyting). Fyrirtæki getur leitazt við að hagnast á slikri varðveizlu verðmæta, eða látið sér nægja að horfa aðgerðarlaust upp á það sem gerist í þessu efni. Dæmi- gerður efnahagsreikningur sýnir margs konar verðmæti í geymslu, t.d. hráefni, fullunnar afurðir, húsnæði og vélar. Að hluta getur verið um að ræða algjört lágmark þess, sem komizt verður af með til þess að vinnslan gangi snurðulaust. Að öðrum hluta getur verið um að ræða fjármuni, sem haldið er í þeim ásetningi einum að hagnast sérstaklega á verð- breytingum. Þegar reglan um innleystar tekjur er skoðuð í ljósi þessarar lýsingar, má greina í reglunni tvær víddir. í annarri vídd- inni, tímavíddinni, er um að ræða fyrir- mæli um, að framleiðslunauðsynjar skuli meta á (einhverju) verði, sem ræður á kaupdegi og frá þessari virðistölu skuli ekki vikið fyrr en við sölu. Hin víddin tengist því formi eða á- standi, sem fjármunurinn er talinn vera í, en varðar þó beinlínis þann markað, sem verðupplýsingarnar eru sóttar til. A því sviði má greina á milli tvenns konar markaða, markað við inntöku (entry) gæða í fyrirtækið og markað við útför (exit) gæða úr fyrirtækinu. Fyrir sumar tegundir gæða, t.d. hráefni í mörgum til- fellum, getur verið, að lítill mismunur sé á verði, sem iðnfyrirtœki geldur fyrir gæðin, og á því verði, sem sama fyrirtæki mundi fá við sölu sömu gæða örskömmu síðar. Mismunur, sem á þessum tvenns konar verðum kynni að vera, stafaði fyrst og fremst af flutningskostnaði, sem seljandi yrði að taka á sig, sérstökum sölukostnaði (kynningarkostnaði, kostn- aði við að leita að kaupanda), sem gæti verið hærri en sölukostnaður hjá því fyr- irtæki, sem hefur sölu slíkra hráefna að aðalstarfi og er því vel kynnt sem selj- andi. Þegar í hlut eiga framleiðslutæki, t.d. sérhæfðar vélar, getur þessi sérstaki kostnaður orðið feiknamikill. Á inntaks- verði og útfararverði jafnvel glænýs tæk- is getur mismunurinn orðið tilfinnanlega hár. Reglan um innleystar tekjur kveður á um notkun inntaksverðs, en útilokar 37

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.