Ráðunautafundur - 12.02.1978, Blaðsíða 19
113
6. Plastleggingarútbúnaður
Til að breiða plast.yfir síðbeð, er hægt að fá
plastleggingarútbúnað, tengdan við grunnrammann. Þar er
komið fyrir plastrúllu og plógum aftarlega til hliðanna.
Plógarnir róta síðan mold yfir kanta plastsins og festa
það þannig niður. Þetta er einfaldur útbúnaður sem
jafnvel hver og einn getur útbúið sér.
7. Raðhreinsunartæki
7.1. Hægt er að fá ýmsan, skerandi, rakandi eða skrapandi
útbúnað sem maður festir á einfaldann léttan ramma t.d.
grunnrammann, til illgresishreinsunar milli plönturaða.
7.1.1. Hreykiplógar.
7.1.2. Þríhyrndir flatskerar.
7.1.3. Hreykidiskar.
7.1.4. Tindar, fínir og grófir.
Sumt af þessum áhöldum er notað saman s.s. hreyki-
plógar og fínir tindar, hreykidiskar og grófir tindar. í
grýttum jarðvegi er helst að notast við hreykidiska og
fína tinda.
Fínu tindarnir skrapa moldina alveg upp við plönturnar
svo þá er aðeins hægt að nota meðan plönturnar eru smáar.
Sé raðhreinsað með handafli eru til margvísleg
handverkfæri, sem byggja á sömu rakandi og skrapandi
aðferðunum.
'7.2. Tætarar
Til eru sjálfdrifnir tætarar sérstaklega byggðir til
raðhreinsunar. Þeir geta haft mismunandi vinnslubreidd.
Þeir eru mjóir til að komast á milli raðanna og hafa
drifhjól til að koma þeira áfram jafnt og þétt meðan
jarðvegurinn er unninn grunnt. Þeir eru léttir þar eð þeir
þurfa ekki mikið vélarafl.
8. Úðunartæki fyrir jurtalyf
8.1. Handknúin úðunartæki eru mjög algeng. Þau eru einföld
að allri gerð og hæfa vel ræktun í smáura stíl.
8.1.1. Axladælur. Algengust dæla af þessari gerð er 5-lo
lítra brúsi borinn á öxl, tengdur með slöngu við dæluskaft
þar sera maður dælir vökvanum með því að draga skaftið
sundur og saman.
8.1.2. Bakdælur. Brúsa dælanna ber maður á baki, þeir taka
5-2o lítra.
Dælingin fer fram með stöðugri handdælingu eða að
þetta eru svokallaðir þrýstikútar sem maður dælir loft í,
og myndastþá þrýstingur á kútnum sem nægir til að úða
innihaldi kútsins.