Ráðunautafundur - 12.02.1978, Blaðsíða 52
146
sem fylgja hrossunum. Á þeim veröa allar upplýsingar um aldur,
ætt, eigendur og f1. Þetta mundi fyrirbyggja margs konar ósann-
indi um hesta í verzlun og gera hana ábyggilegri og sómasamlegri".
Vandamál, sem við eigum viÖ aö stríða og gerir okkur sam-
keppninga á meginlandinu erfiöa er s.k. sumarkláði (sumar exem).
Þetta er húðsjúkdómur, sem getur valdið hestum af öllum kynjum
nokkrum óþægindum, en herjar einna mest á ensk "pony"-kyn og
íslenzku hestana, og miklu meira á þá innfluttu en hina, sem fæddir
eru erlendis. Þaö virðist myndast talsverö mótstaöa (resistance)
í móðurlífinu gegn þessum sjúkdómi erlendis. Professor Dr. Walter
Giildner, kennari í landbúnaðarvélfræði við háskólann x Hohenheim
og núverandi formaður í landssambandi félaga eigenda íslenzkra
hesta í Þýzkalandi, er að hrinda af stað rannsóknum á kláð'anum
og leiðum til að fyrirbyggja hann.
Kláðinn er ein af ástæðunum fyrir því, að hlutur okkar í
verzlun með íslenzk hross á meginlandinu fer minnkandi. S.l.
ár var útflutningurinn um 440 hross, eins og áður hefur verið
tekið fram, og það er talið, að erlendis fæðist nú árlega
2500-3000 folöld af íslenzku kyni, eða um helmingur af því sem
fæðist hérlendis. Svo til öll þessi folöld eru sett á, en senni-
lega ekki nema um 60% af þeim hér heima fæddum. Þess verður því
ekki lengi að bíða, að Evrópa fari fram úr okkur með hrossa-
fjölda, en stofninn þar er nú um 25 þúsundir. Það er einnig
talið, að heildarverzlunin með hesta af ísl. kyni sé 1200-1500
hross árlega nú síðustu árin. Við höfum því aóeins orðið um
þriðjung af verzluninni. Kaupmennirnir viðurkenna hins vegar,
að þeir kaupi beztu hestana hér, og að öðru jöfnu sé miklu betra
að selja hesta með ísl. pappíra en erlenda. Samt sagði Belgíu-
maðurinn, De Coninck, formaður félags ísl. hestaeigenda í Belgíu
við mig í haust, að þar í landi þættu reiðhestarnir betri frá
íslandi en t.d. frá Hollandi eða Þýzkalandi, en sumarkláðinn
þætti svo mikill ókostur, að menn veldur fremur þokkalega gang-
lausa reiðhesta frá Hollandi en íslenzka gæðinga með möguleika
á sumarkláða.
Af þessum sökum er nú lögð höfuðáherzla á að fá læknis-
fræðilega lausn á þessu kláðamáli, og landbúnaðarráðherra okkar