Ráðunautafundur - 12.02.1978, Blaðsíða 85
179
aðarskýrslum. Þessi mikli hrossafjöldi er landverndunar-
mönnum nokkurt áhyggjuefni, einkum í þeim héruðum þar sem
hrossin eru rekin til afréttar. Nú er nokkuð algengt að
dreift sé áburði á afrétti og heiðalönd, bæði til uppgræðslu
og einnig til hagabótar fyrir afréttarfénað. En menn vilja
álíta að þeir fjármunir, sem á þennan hátt er varið til haga-
bótar, skili sér ekki til baka í gegnum hrossin svipað og
telja verður að gerist hjá sauðfénu. Af þessum sökum vilja
landgræðslumenn loka afréttunum fyrir stóðhrossum og gera
hrossabændum skylt að geyma hross sín öll á afgirtum heima-
löndum.
Ekki vil ég hætta mér út£ það hér eða nú, að gera
fræðilegan samanburð á afurðasemi hrossa og annars fúfjár,
x því efni hefi ég meira að þiggja en gefa á þessum staö. En
ég vil, með upphafsorð mín í huga, varpa fram hugmyndum um
hvernig hægt er að gera hrossabúskap allvel arðbæran, þar sem
vel hagar til.
f þessum tilgangi vil ég styðja mál mitt tveimur dæmum,
þar sem ég er kunnugur. Annarsvegar ræðir um allstórt blandað
bú, x einni af lágsveitum Suðurlands, en hinsvegar hrossa-
ræktarbúið í Kirkjubæ, sem ég keypti fyrir ellefu árum síðan.
Þessum tveimur búum er það sameiginlegt að þau eru rekin á
landstórum og grasmiklum jörðum, en það sem skilur hrossa-
búskapinn þarna er, að annar bóndinn slátrar svo til öllum fol-
öldum hvert haust, afraksturinn er sláturafurðir, en hinn
slátrar engu folaldi, elur allt upp og selur síðan ýmist
kynbótagripi eða reiðhross.
Landeyjabóndinn rekur nokkuð gott kúabú með um þrjátíu
mjólkurkúm og hann hefur nálægt 250 ær á vetrarfóðri, en það
þýðir fast að 650 kindur £ sumarhögum, ef reiknað er með 160
lömbum úr hverjum 100 ám, sem er nokkuð venjulegt hjá honum.
Hrossin eru alls um sext£u talsins, en hryssurnar eru alltaf
um fimmt£u og eiga folöld á hverju ári flestar. Aldrei skila
allar folaldi hvert haust, en folalda fjöldinn er 40-45 árlega.
Þetta þýðir um hundrað hross £ sumarhögum. Land jarðarinnar er
alls um 800 ha. Afgirt heimaland er nálægt 300 ha. en beiti-