Ráðunautafundur - 12.02.1978, Page 27
121
Þessar tölur sýna glöggt aö þarna er um mjög verulegar
fjárhæÖir aö ræöa.
Þessari upptalningu er ekki reiknaö verömæti sumarblóma,
fjölærra plantna, runna og trjáplantna, en sú sala fer fram á
vegum fjölda aöila og óhægt um haldgóöar upplýsingar.
Helstu tegundir:
I. Avextir og grænmeti
A. TÓmatar
Undir gleri í tómataræktun munu vera um 30-35 þús. ferm.
en nokkuð matsatriði er á hvern veg bef aö meta þessar tölur
sökum þess aö nokkuð margir ræktendur eru með tómata sem
síðari uppskeru og leggur þessi ræktun þá aðeins hald á gróð-
urhúsin um helming ræktunarskeiðs.
Þeir ræktendur sem stefna aö því aö fá uppskeru snemma
sá venjulega á tímabilinu 20. des-10. jan. A þessum tíma er
birta af þaö skornum skammti aÖ nauðsynlegt er að nota lýsingu
viö uppeldi og eru oftast notaöar háþrýstar kvikasilfur eöa
Natrium perur. Útplöntun er svo venjulega framkvæmd á tíma-
bilinu 15. febr.-15. mars og uppskera hefst þá í maí mánuði.
Uppskera er mjög breytileg en góðir ræktunarmenn fá venjulega
_ 2
um 15-20 kg a m .
Meginhluti uppskeru er í mánuöunum júní-júlí-ágúst en
fer ört minnkandi þegar líöur á haustið.
Tafla 4 er yfirlit um uppskeru um nokkurt árabil,
þ.e.a.s. það magn sem hefir borist til sölufélags garðyrkju-
manna.
Ef litið er á heildarniðurstöÖutölur frá þessum árum
kemur í ljós aö sveiflur í uppskerumagni eru nokkrar, en um
aukningu er ekki aö ræöa aö heitið geti fyrr en áriö 1977,
sem á einkum rót sína aö rekja til meira magns tómata undir
gleri og aö nokkru hagstæöra birtuskilyrða á útmánuöum 1977.
Rétt er aö geta þess aÖ talsvert magn er selt utan S.F.G.
heimasala á gróðrarstöövum og svo nokkrir aöilar er selja
eftir öðrum leiöum. Ef gert er ráð fyrir aö það magn sé 1/3
af magni frá S.F.G. má ætla heildarframleiðslu tómata árið
1977 440 tonn eöa um 2 kg á íbúa. Fjárhagsleg afkoma í