Ráðunautafundur - 15.02.1986, Blaðsíða 111
-99-
sem allar einkunnir nema 0 á gamla skalanum fá gildið 1. Meó því að
nota leiðréttingaraðferð, sem áður er lýst, má fá leiðrétt arfgengi
tvískinnungs á skalanum 0-1, bæði á söltuóum gærum og sútuðum. 1 9.
töflu er sýnt arfgengi einkunna fyrir tviskinnung á skala 0-1 fyrir og
eftir leiðréttingu.
9.tafla. Arfgengi tvískinnungseinkunna á skala 0-1, fundið með ,
fervikagreiningu og leiðrétt arfgengi sömu einkunna.
Einkunn fyrir
tvískinnung|p hr,
Saltaðar gærur 0,51 0,46 0,70
SÚtuð skinn 0,81 0,47 0,98
Arfgengismat hækkar verulega við leiðréttinguna, og verður mun
hærra en arfgengismat á einkunnaskala 0-4.
3.4 Tengsl tvískinnungs við aðra eiginleika.
1 uppgjöri gagna frá 1984 fannst ekki marktæk erfðafylgni milli
tviskinnungs og annarra eiginleika sem mældir voru á skinnum eóa
lömbunum sjálfum, nema við stærð skinna og hlutfallslega þyngd (g/dm ).
Þessar fylgnitölur haldast svo til óbreyttar þegar gögn frá báðum árum
eru tekin saman, eins og sjá má í 10. töflu.
10. tafla. Erfðafylgni og svipfarsfylgni tvískinnungs og
nokkurra annarra eiginleika.
Eiginleiki Erfðafylgni Svipfarsfylgni
0,31**
0,29**
0,02
0,03
0,06
* p < 0.05
** p < 0.01
G/dm -0,46 ± 0,18*
Gegnumslíp. -0,21 ± 0,23
Þungi á fæt. 0,03 ± 0,22
Fallþungi 0,05 ± 0,22
Fylgnin er eingöngu reiknuð út frá gögnum þar sem hrútar voru
notaðir á sama búi, þ.e. eingöngu innan búa. Dreifðum prófunum 1985 var
sleppt vegna áhrifa bæja innan svæða á þá eiginleika sem almennt eru
breytilegir milli bæja.
Neikvæð fylgni við þyngd á flatareiningu bendir til meiri tvi-
skinnungs í stórum og þunnum gærum en í litlum og þykkum gærum. Engin
erfðatengsl fundust milli tvískinnungs og þunga lamba.
4. Umræður og ályktanir.
Niðurstöðum áranna 1984 og 1985 ber mjög vel saman varðandi
arfgengi á tvískinnungi og virðist óhætt að fullyrða að þessi eiginleiki
stjórnast að verulegu leyti af erfðum.
Niðurstöður benda ekki til þess, að veruleg tengsl séu milli þessa