Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 12
12 Helgarblað 19.–22. maí 2017fréttir
Erlendir ferðamenn
farnir að halda að
sér höndum
V
ísbendingar eru um að er
lendir ferðamenn haldi að
sér höndum og eyði minna
en áður meðan á dvöl
þeirra hér á landi stend
ur. Innan ferðaþjónustunnar er um
fátt annað talað þessa dagana þar
sem fyrirtæki eru í vaxandi mæli
farin að finna fyrir þessu. Í kjölfar
verulegrar styrkingar krónunnar að
undanförnu eru ferðamenn farnir
að stytta ferðir sínar, sækja í ódýrari
afþreyingu og splæsa síður í dýrari
vörur, enda fá þeir nú flestir minna
fyrir erlenda gjaldeyrinn sinn en
áður. Innan ferðaþjónustunnar og
verslana sem eiga mikið undir við
skiptum við erlenda ferðamenn hafa
menn skiljan lega áhyggjur af þessari
þróun á kauphegðun þeirra, eftir
gósentíð síðustu ára.
Áhyggjur af styrkingu krónunnar
leggjast ofan á miklar áhyggjur
greinarinnar af fyrirhugaðri
breytingu stjórnvalda sem miðar að
því að færa ferðaþjónustuna í efra
þrep virðisaukaskatts. Samtök ferða
þjónustunnar segja að það verði
reiðarslag fyrir greinina sem áætl
að er að leggi 20 milljarða viðbót
arskattlagningu á herðar hennar á
ári.
Mun koma illa við greinina
Skapti Örn Ólafsson, upplýsinga
fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar
(SAF), segir að samkeppnishæfni ís
lensku ferðaþjónustunnar hafi skerst
verulega að undanförnu, m.a. vegna
styrkingar krónunnar.
„Á sama tíma hefur afkoma
greinarinnar versnað til muna þótt
ferðamönnum hafi fjölgað. Þá hafa
fyrirtæki í ferðaþjónustu mörg hver
tapað miklu vegna samninga um
fast verð í erlendum gjaldmiðlum.
Eins hefur gistinóttum þegar fækkað
og mikið er um afbókanir gistingar
og hópa á þessu ári og því næsta. Á
sama tíma hefur ríkisstjórnin með
fjármálaráðherra í broddi fylkingar
uppi áform um að tvöfalda virðis
aukaskatt á ferðaþjónustuna sem
mun koma gríðarlega illa við grein
ina.“
Skapti bendir á að SAF hafi gagn
rýnt harðlega samráðsleysi stjórn
valda við undirbúning áforma ríkis
stjórnarinnar um 20 milljarða króna
skattlagningu á atvinnugreinina.
Engin greining hafi verið gerð af
hálfu stjórnvalda á áhrifum hærri
virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna.
„Ekki hefur verið skoðað
hver áhrifin verða á fyrirtækin,
samkeppnis hæfni, atvinnustig, fjár
festingu eða sveitarfélög. Þá munu
þessi áform skerða samkeppnis
hæfni ferðaþjónustunnar þegar at
vinnugreinin verður með næsthæsta
virðisaukaskatt í Evrópu ef áform
ríkis stjórnarinnar ganga eftir.“
Mun styrkjast enn meira
Styrking krónunnar frá áramótum til
og með 12. maí síðastliðnum nemur
ríflega 5,3 prósentum samkvæmt
greiningardeild Íslandsbanka sem
bendir á að það sé talsvert meiri
styrking en á sama tímabili í fyrra
þegar krónan styrktist um 1,8 pró
sent. Engu að síður hækkaði gengi
krónunnar yfir árið 2016 um ríflega
18 prósent sem greiningardeildin
bendir á að sé mesta styrking sem
mælst hefur á einu ári. Spáir grein
ingardeildin því að krónan komi til
með að styrkjast enn frekar í sumar,
á háannatíma ferðaþjónustunnar.
Kaupa frekar húfu
en dýrar úlpur
Verslanir með útivistarfatnað eiga
skiljanlega mikið undir viðskiptum
erlendra ferðamanna. Innan þess
verslunargeira hefur heyrst að þar
sem erlendir ferðamenn keyptu sér
áður dýrar úlpur og annan fatnað
láti þeir sér nú duga húfur og annan
ódýrari varning. Einn stærsti versl
unaraðilinn á þessum markaði, sem
þrifist hefur vel bæði í Leifsstöð og
miðbæ Reykjavíkur, er útivistarfatar
isinn 66°Norður. Þar á bæ hafa menn
fundið fyrir breytingum.
„Já, kauphegðun hefur breyst að
því leyti að ferðamenn kaupa meira
af vörum með lága verðpunkta,“
segir Vala Valþórsdóttir, rekstrar
stjóri 66°Norður, aðspurð um málið.
Hún segir að fyrst og fremst séu þau
þó að sjá breytingar á því hverjir
versla mest.
„Við sjáum samdrátt í verslun
ferðamanna frá Bretlandi, Noregi og
Danmörku en mjög góða aukningu
frá öðrum löndum,“ bætir hún við.
Bretland mikilvægur markaður
undanfarin ár
Forsvarsmenn fleiri fyrirtækja sem
DV hefur rætt við tala um að þeir
finni fyrir verulegum samdrætti í
viðskiptum við Breta, eftir vendingar
þar í kjölfar Brexit og afleiðinga
þeirrar ákvörðunar að ganga úr ESB.
Munar þar um minna enda hafa
Hættir að splæsa Fyrirtæki í ferðaþjónustu finna fyrir því að erlendir ferðamenn eru farnir að halda að sér höndum og sækja í ódýrari
vörur og þjónustu. Krónan hefur styrkst mikið að undanförnu og virðist ekkert lát þar á. Mynd Sigtryggur Ari
Skapti Örn Ólafsson Upplýsingafulltrúi
Samtaka ferðaþjónustunnar.„Kauphegðun hef-
ur breyst að því
leyti að ferðamenn kaupa
meira af vörum með lága
verðpunkta
n Ferðaþjónustan og verslanir finna fyrir breyttri kauphegðun vegna
styrkingar krónunnar n „Engin glóra“ í hækkun virðisaukaskatts
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Óvissutímar Þótt ferðamönnum
haldi áfram að fjölga þá eru óvissutímar
fram undan innan ferðaþjónustunnar
vegna styrkingar krónunnar og yfir-
vofandi hækkunar á virðisaukaskatti.
Hagsmunaaðilar hafa gagnrýnt
stjórnvöld fyrir skort á samráði sem
muni koma niður á afkomu greinarinnar.
Mynd Sigtryggur Ari