Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 14
14 Helgarblað 19.–22. maí 2017fréttir
K
ristínu Helgu Magnúsdóttur
var nauðgað margsinnis af
frænda sínum yfir um hálfs
árs tímabil þegar hún var sjö
ára gömul. Frændi hennar
var þá átján ára og er í dag dæmdur
barnaníðingur. Kristín sagði fyrst
frá ofbeldinu þegar hún var fjórtán
ára og í kjölfarið var frændi hennar
kærður. Á sama tíma kom í ljós
að hann hafði brotið gegn fjórum
öðrum ungum stúlkum sem eru allar
tengdar honum fjölskylduböndum.
Tvær þeirra kærðu hann ásamt Krist-
ínu Helgu. Hann fékk átján mánaða
fangelsisdóm, þar af voru fimmtán
mánuðir skilorðsbundnir. Hann
þurfti aðeins að sitja í þrjá mánuði á
bak við lás og slá. Blaðamaður settist
niður með Kristínu Helgu til að ræða
um ofbeldið, hvernig það var að segja
frá því og kæra, baráttuna og að lok-
um sjálfsvinnuna sem bjargaði henni.
Lokaði á ofbeldið í mörg ár
„Mér var nauðgað af átján ára frænda
mínum þegar ég var sjö ára gömul.
Hann nauðgaði mér mörgum sinn-
um yfir um hálfs árs tímabil. Hann er
í rauninni „stjúpfrændi“ minn, stjúp-
faðir hans er bróðir móður minn-
ar. Þannig ég hafði alltaf litið á hann
sem frænda minn,“ segir Kristín.
Frændi Kristínar var mikið inni
á heimili fjölskyldunnar. Hann og
bróðir Kristínar voru miklir vinir og
hann kom oft við heima hjá þeim
til að fá lánaðar myndbandsspólur.
Þegar Kristín var yngri var hún oft
inni í herbergi hjá bróður sínum, líka
þegar hann var ekki heima. Inni í því
herbergi braut frændi hennar alltaf á
henni þegar hún var ein.
Kristín segist ekki muna nákvæm-
lega eftir fyrsta eða síðasta skiptinu,
heldur aðeins brotum af nokkrum
atvikum. Hún man vel eftir einu at-
viki þegar hann kom inn í herbergið
þegar hún sat þar með skál með
Cocoa Puffs og horfði á sjónvarpið:
„Ég man þegar hann kom inn, lokaði
dyrunum og tók af mér skálina.“
Margt rifjast upp síðustu árin
„Annaðhvort nauðgaði hann mér eða
puttaði mig. Kyssti mig á kinnina. Ég
man eftir einu skipti þegar hann lá
ofan á mér og hvíslaði að mér: „er
þetta gott?“ Ég lá alltaf á bakinu og
með hægri höndina yfir augunum á
mér, eins og ég sæi hann ekki.“
Þessar minningar fóru að rifjast
upp fyrir Kristínu fyrir nokkrum
árum í kjölfar sjálfsvinnslu, en eftir
að ofbeldinu lauk og þangað til hún
var fjórtán ára lokaði hún alveg á
það.
„Ég sat og horfði á sjónvarpið og
mundi allt í einu hvernig þungi hans
var á líkama mínum. Eftir sjálfs-
vinnslu er ég búin að opna fyrir
gríðarlega mikið. Ég lokaði á þetta í
sjö ár.“
Vissi frá fyrsta degi að fjöl-
skyldan myndi trúa henni
Minningar um ofbeldið fóru að
rifjast upp fyrir Kristínu þegar hún
var um fjórtán ára gömul. Þegar hún
skoðar myndir frá fermingu sinni þá
tekur hún eftir hversu hokin hún er
og líkamsstaða hennar mjög lokuð.
Myndir af henni eftir að hún sagði
frá ofbeldinu segja aðra sögu. Þar
er hún bein í baki og með opna lík-
amsstöðu, eins og þungu fargi sé af
henni létt.
Kristín sagði fyrst tveimur vin-
konum sínum frá ofbeldinu á
leiðinni í skólasund. Vinkonur
hennar hvöttu hana til að segja for-
eldrum eða kennaranum sínum frá
því, og daginn eftir sagði Kristín um-
sjónarkennaranum frá því sem hafði
átt sér stað.
Kennarinn bauðst til að hringja í
móður hennar og þáði Kristín það og
fór heim. Það næsta sem hún man er
að hún lá uppi í rúmi og beið þess að
móðir hennar kæmi heim.
„Þegar hún kom heim hljóp hún
upp stigann og inn í herbergi og
lagðist upp í rúm til mín og við grét-
um saman. Ég vissi það frá fyrsta
degi að það myndu allir í minni fjöl-
skyldu trúa mér. Ég fékk gríðarlega
mikinn stuðning. Það urðu líka allir
afar reiðir.“
Fimm stúlkur misnotaðar
af gerandanum
Foreldrar Kristínar lögðu fram
kæru á hendur frænda hennar og
allt fuðraði upp í fjölskyldunni.
„Mamma og pabbi reyndu að tala
við bróður mömmu og konuna hans.
Þau trúðu þessu ekki og sögðu að ég
væri að ljúga. Það er ekkert samband
þeirra á milli í dag.“
Um svipað leyti og Kristín sagði
frá ofbeldinu sem hún hafði sætt,
sagði stúlka skyld gerandanum
einnig frá viðlíka ofbeldi sem frændi
Kristínar beitti hana yfir nokkurra
ára skeið. Tímasetningin var algjör
tilviljun og þær þekktust ekki.
Fljótlega kom í ljós að hann hafði
einnig misnotað frænku Kristínar og
tvær aðrar stúlkur sem eru skyldar
honum, en ekki var lögð fram kæra
fyrir hönd þeirra tveggja.
Allar í samsæri gegn gerandanum
„Bróðir mömmu og konan hans
héldu því fram að við værum allar að
ljúga og í samsæri gegn syni þeirra.
Bróðir mömmu fór til ömmu og afa
og sagði við þau að það gengju sögur
um Keflavík, að ég væri að gera þetta
fyrir peninga og það væri altalað að
ég væri algjör drusla.“
Eftir að Kristín sagði frá þessu öllu
saman fór hún í Barnahús þar sem
tekin var af henni skýrsla og þar fór
hún einnig í skoðun. Skoðunin sýndi
að meyjarhaftið var rofið en hún
hafði aldrei átt kærasta eða sofið hjá.
Þetta hefur hvílt þungt á Kristínu.
„Þetta er það erfiðasta sem ég hef
þurft að ganga með og truflaði mig
mest af öllu. Meyjarhaftið er sérstakt
í hugum margra stelpna. Hann svipti
mig því. Hann rændi mig því heilag-
asta sem ég átti.“
Þriggja mánaða fangelsisdómur
Frændi Kristínar var kærður 16. sept-
ember 2002 fyrir kynferðisbrot gegn
þremur stúlkum sem framin voru frá
1992 til 1999. Framburður stúlknanna
var talinn trúverðugur þrátt fyrir ein-
dregna neitun hans. Hann var dæmd-
ur 8. maí 2003 í átján mánaða fangelsi,
þar af voru fimmtán mánuðir skil-
orðsbundnir og þurfti hann aðeins
að sitja inni í þrjá mánuði. Hann var
einnig dæmdur til að greiða stúlk-
unum miskabætur en Kristín hefur
aldrei séð krónu af þeim og veit að ein
stúlkan hefur fengið lítið brot af því
sem hún átti að fá.
„Ég held að ástæðan fyrir því að
ég fékk aldrei neitt sé sú að hann átti
aldrei neitt og þá er ekki hægt að taka
neitt af honum. Ég held að í dag skrái
hann aldrei neinar eignir á sig.“
Hvað fannst þér um dóminn?
„Ég var lengi mjög reið. Ég átti
erfitt með að skilja af hverju hann
fékk svona stuttan fangelsisdóm.
Síðan fór ég að sætta mig við að hann
hefði allavega verið dæmdur. Dómur
er dómur. Hann mun alltaf vera
Kristínu var
nauðgað sjö ára
af frænda sínum
n Þörf á opnari umræðu n Lokaði á tilfinningarnar í tíu ár
Við
erum öll
hetjur
sem
lifum af
„Mér var
nauðgað
og það er ekkert
eðlilegt við það að
vera sjö ára barn
nauðgað af átján
ára frænda sínum
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrun@bleikt.is
Opnaði sig
um ofbeldið
„Að finna svona
stuðning alls stað-
ar frá er magnað.“-
Mynd SiGtryGGur Ari