Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 18
18 Helgarblað 19.–22. maí 2017fréttir - erlent
Paradísareyja er orðin að
ruslakistu fyrir plastúrgang
n Henderson-eyja er ein sú afskekktasta í heimi n Hún er líka ein sú mengaðasta
E
in afskekktasta eyja heims
er jafnframt ein sú meng-
aðasta í heimi, að sögn vís-
indamanna. Hér er um að
ræða eyjuna Henderson sem
tilheyrir Pitcairn-eyjaklasanum í
Suður- Kyrrahafi. Henderson-eyja er
37 ferkílómetra kóraleyja, svokallað
hringrif, sem enginn býr á. Talið er
að þar sé að finna að minnsta kosti
18 tonn af plastúrgangi sem rekið
hefur að ströndum eyjunnar.
Stór áskorun
Breska blaðið The Guardian fjallaði
um stöðu mála í vikunni, en meng-
unin á Henderson-eyju þyk-
ir sýna, svo ekki verður um villst,
að heimsbyggðin stendur frammi
fyrir stórri áskorun varðandi meng-
un í höfunum. Hvergi í heiminum
er plastmengunin þó meiri en á
þessari ósnortnu eyju sé miðað við
stærðarhlutfall.
Í umfjöllun The Guardian kemur
fram að sjávarlíffræðingar sem
stunduðu rannsóknir á eyjunni
áætli að 38 milljónir plastagna sé
að finna á þessari eyju sem er minni
að flatarmáli en Garðabær. Tekið er
fram að hátt í 70 prósent af þessum
plastögnum séu það smáar að þær
sjást varla með berum augum. Að
meðaltali skoluðust þrettán þúsund
nýjar agnir að ströndum eyjarinnar
á hverjum degi.
Hafði rangt fyrir sér
Jennifer Lavers, vísindamaður við
University of Tasmania, segir í sam-
tali við The Guardian að hún hafi
stundað rannsóknir á mörgum af
afskekktustu eyjum heims. Á hverri
einustu finnist ummerki eftir mann-
inn og nefnir hún til dæmis plast-
agnir og úrgang sem skolar upp að
ströndum eyjanna. „Ég hélt samt,
satt að segja, að vegna þess hversu
Henderson-eyja er afskekkt væri
hún tiltölulega ósnortin. Það var svo
sannarlega rangt mat hjá mér. Ég
varð orðlaus þegar ég sá magnið.“
Sorgleg sjón
Plastúrgangurinn hefur haft ýmis
áhrif á fjölskrúðugt dýralíf sem finnst
á Henderson-eyju. Þar eru til dæmis
heimkynni fjölmargra krabba-
tegunda sem skríða um sandana
innan um plastflöskur og snyrtivöru-
umbúðir. Einn krabbi var búinn að
koma sér haganlega fyrir inni í haus
af dúkku. Þótt ágætlega hafi virst fara
um hann segir Jennifer að dýrunum
sé enginn greiði gerður. „Plastið er
orðið gamalt, það er stökkt, beitt og
það er eitrað. Það var sorglegt að sjá
þessi dásamlegu dýr innan um úr-
ganginn sem kemur frá manninum.“
Á heimsminjaskrá UNESCO
Í umfjöllun The Guardian kemur
fram að Henderson-eyja sé sú
stærsta af þeim fjórum eyjum
sem tilheyra Pitcairn-eyjaklasan-
um. Eyjaklasinn er á heimsminja-
skrá UNESCO enda er vistkerfi eyj-
anna tiltölulega ósnortið, ef undan
er skilin plastmengunin. Enginn býr
á eyjunum og vegna þess hversu af-
skekktar þær eru leggja fáir á sig það
ferðalag að heimsækja þær, nema
þá helst vísindamenn. Niðurstöður
vísindamannanna sýna og sanna
að mengun þekkir engin landa-
mæri og enginn staður í heiminum
er í öruggu skjóli fyrir mengun. „Við
fundum flöskur frá Þýskalandi, um-
búðir frá Kanada og Nýja-Sjálandi.
Það sýnir að við berum öll ábyrgð og
við þurfum að átta okkur á því.“
Sé litið til þess hversu mikið magn
af plasti er framleitt í heiminum á
ári hverju bliknar magnið á Hend-
erson-eyju í samanburði. Í niður-
stöðum rannsóknarinnar, sem birt-
ust í tímaritinu Proceedings of the
National Academy of Sciences, kom
fram að þau tæpu 18 tonn sem fund-
ust á eyjunni jafngildi því magni sem
framleitt er á tveimur sekúndum á
heimsvísu.
Líkir þessu við loftslagsvandann
Svo virðist vera sem ríki heims séu
að opna augun fyrir vandanum. Í
febrúar síðastliðnum var blásið til
herferðar fyrir tilstilli umhverfis-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
gegn plastmengun. Af því tilefni til-
kynntu yfirvöld í Indónesíu, sem
talin eru bera mikla ábyrgð á plast-
mengun í höfunum, að þau hygð-
ust verja allt að einum milljarði
Bandaríkjadala á ári til að minnka
plastmengun og aðra mengun í
höfunum.
Jennifer segir að gera þurfi gott
betur og vill að fólk átti sig á alvar-
leika mengunarinnar fyrir um-
hverfið, dýralífið og manninn.
„Mín skoðun er sú að það megi
líkja menguninni í höfunum við
loftslagsvandann, en ég vil ekki
að við gerum sömu mistökin. Við
höfum rifist um það hvort loftslags-
breytingar af mannavöldum séu
staðreynd í hartnær 40 ár. Við skul-
um ekki bíða með að bregðast við.
Magnið af plasti í höfunum er yfir-
þyrmandi og við þurfum að bregð-
ast við núna.“ n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Sorgleg sjón Þessi krabbi virtist vera búinn að festa sig ofan í plastíláti.
Á heimsminjaskrá Pitcairn-eyjaklasinn, sem Henderson tilheyrir, er á heimsminjaskrá
UNESCO.
Ótrúlegt magn
Henderson-eyja er
ekki ýkja stór, aðeins
um 37 ferkílómetrar.
Þar er samt að finna
gríðarlegt magn af
plastúrgangi.
„Mín skoðun er sú að það
megi líkja menguninni í
höfunum við loftslagsvandann