Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Side 20
20 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson Fréttastjóri: Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Sigurvin Ólafsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 19.–22. maí 2017
Velkominn í hópinn
Jón Ásgeir Jóhannesson bros-
ir væntanlega út að eyrum þessa
dagana enda úrskurðaði Mann-
réttindadómstóll Evrópu á
fimmtudag að ís-
lenska ríkið hefði
brotið gegn hon-
um þegar hann
var dæmdur til
skilorðsbundinn-
ar fangelsisvistar
vegna skatta-
lagabrota í rekstri Baugs. Áður
hafði Jón Ásgeir verið dæmdur til
greiðslu sektar fyrir sömu brot.
Með niðurstöðu Mannréttinda-
dómstólsins kemst Jón Ásgeir
í, ekki svo fjölmennan, hóp Ís-
lendinga sem unnið hafa mál fyrir
dómstólnum. Meðal þeirra eru
Erla Hlynsdóttir blaðamaður, sem
í þrígang hefur unnið mál á hend-
ur íslenska ríkinu fyrir Mann-
réttindadómstólnum. Erla hefur
því skilning á líðan Jóns Ásgeirs.
Á Facebook-síðu sinni sendir hún
honum enda eftirfarandi kveðju:
„Velkominn í hópinn, Jón Ásgeir“.
Engin skýr mörk
Nokkur óánægja er meðal Sjálf-
stæðismanna með borgarfulltrúa
flokksins, sem þykja ekki hafa
markað sér nógu sterkar áherslur
og séu fyrir vikið ekki augljós val-
kostur í borgarstjórnarkosningun-
um á næsta ári. Þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins,
Óli Björn Kárason,
víkur að þessu í
nýlegu lesenda-
bréfi á miðopnu
Morgunblaðsins.
Hann segir Sjálf-
stæðismenn í
borginni eiga mikið verk fyrir
höndum. „Þeir eiga eftir að draga
skýr mörk á milli sín og vinstri
manna í borgarstjórn,“ segir Óli
Björn. Það er kannski ekki laust
við að örvænting felist í þessum
orðum hans. Enda varla vænlegt
til árangurs fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn ef kjósendur sjá engan mun á
áherslum hans og meirihlutans.
Borgaralegi Píratinn
R
eglulega berast fréttir af
innri átökum milli Pírata og
nú síðast að Ásta Guðrún
Helgadóttir hefði hætt sem
þingflokksformaður vegna
ágreinings við meirihluta þingflokks-
ins. Allt gerðist þetta með ósköpum,
þingmenn Pírata ruku út af fundi á
Alþingi og héldu á þingflokksfund og
síðan var tilkynnt að þingflokksfor-
maður væri hættur.
Smári McCarthy, þingmað-
ur Pírata, segir í viðtali að ágrein-
ingurinn snúist um skipulag,
hvernig nálgast eigi störf þingflokks-
formannsins og hvernig skipta eigi
hlutverkum innan þing-
flokksins. Ásta Guðrún
reyndist vera alltof borg-
araleg því hún vildi hefð-
bundið skipulag í þessum
efnum. Sú skoðun henn-
ar virðist hafa hljómað
ægilega í eyrum Pírata.
Þeir virðast telja það höf-
uðsynd að elta ólar við
margreynt verklag. Betra
sé að finna upp hjólið,
æ ofan í æ. Ásta Guðrún
hlaut því að víkja. Smári
McCarthy segir að þing-
flokkurinn vilji ekki fest-
ast í því formi sem hon-
um var sett af þinginu.
Þessi orð hljóta að vekja
athygli. Þingflokkurinn
sér sem sagt enga ástæðu
til að fara eftir þeim hefð-
um sem ríkja á þingi. Þær
eru alltof borgaralegar og
gamaldags fyrir Pírata,
sem vilja finna upp sitt
eigið form. Þeir vita ekki alveg hvaða
form það er, en munu ætla að nota
sumarið til að deila um það.
Þeir sem gefnir eru fyrir drama
geta hrósað Pírötum fyrir það að
aldrei er lognmolla í kringum þá. Í
þessum flokki teljast regluleg upp-
hlaup vera hluti af flokksstarfi og
þegar lætin verða svo mikil að jafnvel
dramatískustu flokksfélagar þola þau
ekki þá er kallaður til vinnustaðasál-
fræðingur. Ekki skal fullyrt hér að
hann verði kallaður til vegna hinnar
djörfu hugmyndar Ástu Guðrúnar
að fara eftir hefðbundnum vinnuað-
ferðum þingsins.
Það fer lítið fyrir samheldni í
flokki fólks sem ætlaði að umbylta ís-
lensku samfélagi og gera það opnara
og lýðræðislegra. Opinbert ósætti er
orðin ófrávíkjanlegur þáttur í flokks-
starfi Pírata. Um leið er ástæða til að
efast um getu Pírata til að taka að sér
þær lýðræðisumbætur sem þeir tala
svo fjálglega um. Þeir virðast ekki
geta iðkað innan flokks það sem þeir
predika á torgum. Þjóðin gerði sér
í tíma grein fyrir því hversu ósam-
kvæmir sjálfum sér Píratar eru. Hún
var að því komin að veita Píratastjórn
brautargengi í alþingiskosningum,
en það æði rann blessunarlega af
henni í kjörklefanum. Niðurstaðan
varð framgangur hægri og miðju
afla, sem er svo sem ekki það versta
sem gat hent þessa þjóð.
Það hefur verið merkilegt að fylgj-
ast með Pírötum grafa markvisst und-
an eigin trúverðugleika með óheppi-
legum uppákomum og stöðugum
innbyrðis deilum. Lítill áhugi virð-
ist á því innan flokksins að koma á
föstum strúktúr þar sem viss agi ríkir.
Allir eiga að fá að leika lausum hala
með tilheyrandi dómsdags hávaða.
Slíkur flokkur er varla trúverðugur
valkostur í hugum kjósenda. n
Ivan var það eina sem hélt
lífinu í honum Magga
Magnús Hörður svipti sig lífi árið 2009 eftir að hafa þurft að losa sig við hundinn sinn. – DV
Ég brotna niður fyrir
framan börnin mín.
Silja Pálsdóttir fær hvergi íbúð fyrir sig og börn sín. – DV
Mikið áhyggjuefni fyrir
almenning.
Arna Guðmundsdóttir um nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu. – DV
Fæst í A4, Byko, Fk, Lyfju,
Íslandspóst og um land allt
Múmínálfar
-Safnaðu þeim öllum
Bakp
okar
,
lykla
kippu
r
o.fl.
„Um leið er ástæða
til að efast um
getu Pírata til að taka
að sér þær lýðræðis
umbætur sem þeir tala
svo fjálglega um.
Kaldi Dráttarbáturinn Jötunn öslar til hafnar í norðanáttinni eftir að hafa fylgt flutningaskipi út úr Reykjavíkurhöfn. Líklegt er að helgarveðrið verði heldur skárra,
ef spárnar ganga eftir. Mynd SiGtryGGur AriMyndin
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is