Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Qupperneq 37
„Við smellum saman sem
karakterar, erum báðar
dýravinir og erum með
sama tískustíl.“
Hvernig er að búa í Los
Angeles?
„Það var rosalega krefjandi
fyrir mig að flytja til Los
Angeles, ég var ekki með
íbúð þegar ég kom út, bara
pening fyrir hótelherbergi
og ég og frænka mín, sem
flutti út með mér, hoppuð-
um milli hótelherbergja og
höfðum mánuð til að finna
okkur íbúð sem fannst loks-
ins eftir mikla leit. Svo þurfti
að læra á strætó og taka
hann hvert sem er, stofna
símareikning, læra á skólann
og koma sér inn í samfélag-
ið. Samfélagið hér er mjög
fjölbreytt, mikið af alls konar
menningu og kynþáttum og
ég er búin að læra svo mikið
á að flytja hingað. Ég er mik-
ið með fólki frá Frakklandi,
maður lærir svo mikið af
þeirra menningu, um landið þeirra,
matinn og fleira. Hér er mikill rasismi
og allir eru settir í ákveðna hópa, ég er
hins vegar fordómalaus og allir vinir
mínir hér segja að stærsti kostur minn
sé að ég komi eins fram við alla, heim-
ilislausa jafnt sem framkvæmdastjóra.
Þú færð það algjörlega til baka hvernig
þú kemur fram við fólk, ef þú kemur
vel fram við aðra, er borin virðing fyrir
þér og komið vel fram við þig.“
Íslendingar í Los Angeles halda úti
síðu á Facebook og eru til dæmis með
þorrablót og jólaball. Magnea segist
einnig hitta Íslendinga af tilviljun úti
á götu og jafnvel þann sama
nokkrum sinnum í viku. „Ég er mikið
í sambandi við nokkra Íslendinga
sem búa hér og ég fæ oft skilaboð frá
Íslendingum sem ferðast hingað sem
eru að kanna hvort ég sé til í að sýna
þeim hitt og þetta og fara með þeim
á djammið. Það er alltaf eitthvað að
gerast hér í
borginni, hér eru
frábærir klúbbar,
fræga fólkið og
alltaf gott veður.
Ísland er eins og
lítil Los Angeles
eða hverfi hér,
á Íslandi eru
allir „gordjöss“,
í nýjustu tísku,
hlusta á sömu
tónlist og horfa á
sömu bíómyndir.“
Mun líklega búa
á Íslandi með
fjölskyldu
Magnea segist
stundum fá
heimþrá, sem var
engin fyrst þegar hún flutti út. „Frænka
mín sem flutti út með mér fór heim
eftir fjóra mánuði og ég skildi ekkert af
hverju hún vildi fara aftur til Íslands.
Ég taldi fyrst að ég væri ekkert að
fara heim aftur næstu tvö árin, Ísland
ömurlegt og ekkert hægt að gera þar.
Í dag ber ég mun meiri virðingu fyrir
landinu mínu og sé fyrir mér að búa
þar í framtíðinni með fjölskyldu. Ég
fer stundum að gráta þegar ég heyri
íslensk lög og mér finnst bæði matur og
drykkir hér vondir, þannig að þegar ég
kem heim til Íslands þá leyfi ég mér allt
í mat og er jafnvel með lista yfir hvað ég
ætla að borða og kaupa af mat.“
Í sumar starfar Bára sem flugfreyja
hjá WOW air og segir að „það væri
geggjað að geta heimsótt Magneu í
sumar“. „Ég hef fleiri tækifæri hér úti,
draumar mínir geta ræst hér og ég get
gert meira við líf mitt,“ segir Magnea.
„Við erum að lifa lífinu fyrir okkur sjálf
og eigum að lifa lífinu eins og okkur
langar til að lifa því. Ekki að hugsa um
hvað öðrum finnst um mann heldur
bara einbeita sér að sjálfum sér.“
Bára og Magnea eru báðar virkar
á samfélagsmiðlunum og má fylgjast
með lífi og leik þeirra þar. Bára er
með heimasíðuna barabeauty.com,
Instagram: barabeautymakeup og á
Youtube: barabeauty. Magnea er á
Instagram: Magneabj og á snapchat:
Maggabagga.
Bestu vinkonur
í gegnum tískuna
Töff Tíska
Magnea er
töffari og veit
nákvæmlega
hvert hún
ætlar sér.
fyrir
framan
bílinn
Magnea
glæsileg
með sól-
gleraugun.
bílaunnandi
Bára stillir sér upp.
sumarleg bára
Sólgleraugun setja
punktinn yfir i-ið.