Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Page 40
Helgarblað 19.–22. maí 2017KYNNINGARBLAÐ6 Skólar og sumarnámskeið Viltu kynnast leyndardómum háloftanna í sumar? Flugbúðir Keilis fyrir ungt fólk með brennandi áhuga á flugi Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, býður upp á vægast sagt spennandi námskeið í sumar fyrir unglinga. „Flugbúðirnar okkar hafa verið mjög eftirsóttar í gegnum árin. Um er að ræða spennandi námskeið fyrir fólk á aldrinum 13 ára og upp úr, sem hafa óslökkvandi áhuga á flugi og öllu sem því tengist. Nám- skeiðið hentar sérstaklega þeim sem hyggja á flugnám í framtíð- inni og er virkilega góður grunnur fyrir það,“ segir Sigrún Svafa, verkefnastjóri Flugbúða Keilis. Allir leiðbeinendur námskeiðsins eru kennarar og flugmenn við Flug- akademíu Keilis. Innvígsla í flugheiminn Flugbúðir Keilis eru einstakt tæki- færi fyrir ungt fólk til að læra allt sem tengist flugi og flugvélum. Fróðir gestafyrirlesarar og reynslu- boltar úr flugtengdum fögum mæta á svæðið og ausa úr þekkingar- brunni sínum. Til að mynda mætir flugmaður sem segir frá daglegu lífi sínu í millilandaflugi. Að auki er farið í ýmis mál tengd flugi svo sem flug- virkjun og flug umferðarstjórn. Þá fá þátttakendur að sjá kennsluflug- vélar Keilis og kynna sér verklegu aðstöðuna í flugnáminu. Nemendur námskeiðsins fá einnig að vita ýmislegt um hvernig flugvélar eru uppbyggðar og hvernig þær fljúga. Einnig er farið í veðurfræði og læra nemendur þá um áhrif veðurs á flug og ótal margt fleira. Síðast en ekki síst verður farið í stórskemmtilegar vettvangsferðir á hverjum degi, þar sem nemendur fá að upplifa fjölmargt sem hinn óbreytti flug- farþegi fær aldrei að upplifa. Þá fá allir þátttakendur persónulega kynningu á Redbird þjálfunarflug- hermi Flugakademíu Keilis. Gífurlega góð viðbrögð „Nemendur okkar hafa verið mjög ánægðir með námskeiðið og lýsti einn námskeiðinu svo: „Eitt orð: fluggeggjun“, sem er líklega réttnefni,“ segir Sigrún. Námskeiðið er ætlað fólki 13 ára og eldri og stendur yfir í þrjá daga frá þriðju- deginum 13. júní til fimmtudagsins 15. júní, frá klukkan 09.00–15.00. Innifalið er hádegismatur, náms- gögn, vettvangsferðir og kynning á þjálfunarflughermi Flugakademíu Keilis. Keilir er staðsettur að Grænás- braut 910, 235 Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar veitir Sigrún Svafa Ólafsdóttir á netfanginu viskubrunnur@keilir.net og í síma: 578-4091. Frekari upplýsingar um Flugbúðirnar má nálgast á vefsíðu Keilis, keilir.net, en þar má einnig lesa umsagnir nemenda um námskeiðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.