Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 41
Helgarblað 19.–22. maí 2017 KYNNINGARBLAÐ Skólar og sumarnámskeið 7 Reiðkennsla við hæfi hvers og eins Reiðskólinn Faxaból í Víðidal Keilir, miðÞað koma til okkar alls konar krakkar, sumir finna sig ekki í þessum hefðbundnu íþróttagreinum en blómstra í hesta- sportinu. En svo eru önnur börn sem eru líka á fullu í boltaíþróttum eða fimleikum og þetta er þeim kær- komin viðbót. Mér finnst sérstaklega gaman og gefandi þegar krakkar sem ekki hafa fundið sig neins stað- ar annars staðar njóta sín hér og taka ástfóstri við hestamennskuna.“ Þetta segir Ellý Tómasdóttir hjá reiðskólanum Faxabóli sem hún rekur ásamt móður sinni, Þóru Þrastardóttur. Fyrirtækið hefur verið starfandi frá árinu 2000 og byggt upp mikla þekkingu og reynslu á hestamennsku og reiðkennslu fyrir börn. Námskeiðin eru ætluð börnum á grunnskólaaldri en algengasti aldurshópurinn er 6–10 ára. Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur þannig að kennt er á virkum dögum. Námskeiðin standa yfir annars vegar frá kl. 9–12 og hins vegar 13- –16 og því er hægt er að velja um að vera á námskeiðinu fyrir eða eftir hádegi. Mikil áhersla er lögð á öryggi en krakkarnir njóta traustrar leiðsagn- ar reiðkennara og þeim til halds og trausts er líka aðstoðarfólk, ungmenni sem hafa ílengst á nám- skeiðunum ár eftir ár. „Margir bestu kennararnir okkar eru unglingar sem hafa byrjað hjá okkur sem börn á námskeiðum og tekið ástfóstri við hestamennskuna,“ segir Ellý. Hóparnir eru samsettir eftir getu og reynslu, frá byrjendahópi og upp í framhaldshóp 3. Reynt er að miða við 10–12 nemendur í hverjum hópi og hver hópur hefur sinn kennara og 1–2 aðstoðarmenn . „Við leggjum mikla áherslu á að hver og einn fái kennslu við sitt hæfi og fái verk- efni sem efli sjálfstraust og hæfni í hestaíþróttinni,“ segir Ellý. Hestar reiðskólans eru sérvaldir og í eigu skólans, þeir eru þægilegir í umgengni, traustir, hafa einstakt geðslag og vita nákvæmlega til hvers er ætlast af þeim. Hestunum er jafnframt skipt niður á getustigin svo hver nemandi fái verkefni við hæfi til að öðlast meiri færni í reið- mennskunni. Rétt eins og mannfólk- ið er hver og einn hestur einstakur og lögð er áhersla á að nemendur kynnist sem flestum hestum og fái þannig góða sýn á hestinn og þá eftirsóknarverðu eiginleika sem hann getur búið yfir sem félagi og kennari. Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðunni faxabol.is. Sumarbúðir í meira en 70 ár Ástjörn er umlukin stórkostlegri náttúrufegurð Sumarbúðirnar Ástjörn í Kelduhverfi eru fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 6–12 ára og 13–15 ára unglinga. Börnin koma alls staðar að af landinu. „Mörg börnin sem koma til okkar eiga foreldra sem voru í sumar- búðum hjá okkur þegar þeir voru börn og það er mjög ánægjulegt því það sýnir að foreldrarnir vilja veita börnunum sínum það sem þau sjálf upplifðu hér,“ segir Árni Hilmarsson forstöðumaður. Hugmyndaflugið virkjað í leikjum og útiveru Flest börnin koma í einn flokk, en sum dvelja lengur. Flokkarnir eru 8 og 10 dagar. Tjörnin og birkiskógurinn umhverfis sumar- búðirnar er endalaus uppspretta leikja og útiveru. Má nefna t.d. knattspyrnu- og körfuboltavöll, kvöldvökur, söng, Biblíutíma, föndur, alls kyns leiki og keppnir í skóginum og víðar, íþróttahús í næsta nágrenni, sund í tjörninni eða fjöruferð á góðviðrisdögum, hestaleigu og margt fleira. Bátar eru af ýmsum gerðum: Árabát- ar, kajakar, kanóar, hjólabátar og skútur. „Hjá okkur er stærsti bátafloti í sumarbúðum á Íslandi, en við erum með um 30 báta af öllum gerðum, meira að segja svokallaða sökkvibáta!“ segir Árni, en það eru bátar sem börnin mega sökkva á góðviðrisdögum þegar synt er í tjörninni. Hornsíla- veiðar eru sívinsælar. Ástjörn hefur þá sérstöðu að um er að ræða einu sumarbúð- irnar á Íslandi sem eru í þjóðgarði, Vatnajökulsþjóðgarði, rétt hjá Ásbyrgi í Kelduhverfi. Einnig hefur Ástjörn þá sérstöðu að þvotta- hús er á staðnum þar sem allt er þvegið af börnunum og fara þau því heim með hrein föt í töskunni, mörgum foreldrum til mikillar ánægju. Skráningu og upplýsingar er hægt að nálgast í síma 462- 3980, á heimasíðunni www. astjorn.is og einnig á facebook. com/astjorn. Einnig er hægt að sjá margar myndir þar, og sömuleiðis myndbönd á youtube.com/astjorn Netfang er astjorn@astjorn.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.