Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Page 44
24 Helgarblað 19.–22. maí 2017fólk - viðtal
Okkar kjarnastarfssemi er
greiðslumiðlun og innheimta.
Hver er þín?
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Síðan 2006
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - hannyrdabudin.is
Póst-sendum um allt land
Garn í sjöl
að búa til meðferð þar sem fólk sem
hingað kemur fær það sem það þarf.
Einn fær þetta og annar hitt. Eðli
mannanna er þannig að maður út-
skrifar ansi mikið af sérfræðingum
sem vita nákvæmlega hvernig með-
ferðin á að vera. Hún á að miða að
því sem þeir þurftu þegar þeir komu
í meðferð. Staðreyndin er hins vegar
sú að meðferð þarf að henta öllum.
Meðferðin sem er þarna er hins
vegar ekki fyrir alla þá sem lenda í
vandræðum með áfengi því mjög
margir geta hætt af sjálfsdáðum,
með aðstoð umhverfisins eða með
því að fara til annarra meðferðar-
stöðva. Þeir sem eru með vandann
á alvarlegu stigi þurfa að koma til
okkar, því það þarf að greina hann
af mikilli þekkingu.“
Þú segir að meðferð þurfi að
henta öllum. Hvernig er það gert?
„Við höfum orðið að búa til með-
ferð sem sækir sífellt fram og kem-
ur til móts við hina ýmsu hópa.
Hvernig kemur maður til móts
við einstakling þegar maður er að
reyna að búa til meðferð sem hent-
ar öllum? Maður gerir það með því
að mennta starfsfólkið betur og
gera það hæft til að koma til móts
við þarfir fólks utan dagskrárliða,
í viðtölum. Meðferðin hefur gjör-
breyst. Við höfum líka öðlast meiri
þekkingu á sjúkdómnum og vitum
hvað við þurfum að leggja áherslu
á. Við áttum okkur til dæmis núna
á innsæisskorti sjúklinga, þeir sjá
ekki hvar þeir eru staddir og hversu
alvarlegt vandamálið er, ekki vegna
þess að þeir séu í vörn heldur vegna
líffræðilegra breytinga í heilanum.
Það eru ákveðin svæði í heilanum
sem gefa mönnum þann eiginleika
að geta sett sig í spor annarra. Þetta
svæði bilar hjá áfengissjúklingum.
Flestum þeim breytingum sem
verða við áfengisneyslu er hægt að
snúa við, það lagast ekki alveg strax,
það tekur tíma að verða eðlilegt að
nýju. Við tölum stundum um að það
þurfi tvö ár en í raun er maðurinn
sem hættir eftir alvarlega drykkju að
breytast og taka framförum í fimm til
tíu ár.“
Ekkert samband við trúarbrögð
Stundum heyrir maður hnýtt í fólk
sem fer ítrekað í meðferð. Hvað
segirðu við því?
„Sumir vilja líta á alkóhólisma
sem smitsjúkdóm eða skyndikvilla
og það þurfi bara eina meðferð
til að laga hann. Það er argasti
misskilningur, þetta er krónískur
vandi. Mjög margir byrja að drekka
aftur af ýmsum ástæðum, stundum
vegna áfalla í lífinu, stundum vegna
sjúkdóma eða vegna þess að aðstæð-
ur breytast. Vinur minn um áttrætt,
sem er mjög heilsuhraustur, var að
tala um það hversu illa jafnaldrar
hans sumir væru farnir. Hann sagði,
og hitti naglann á höfuðið: Þetta er
nú bara heppni!“
Æðruleysisbænin er bæn til Guðs.
Ert þú trúaður eða ertu mjög jarð-
bundinn?
„Þegar ég kom í meðferð var ríkj-
andi viðhorf hjá sumum að trúin
væri þáttur í meðferðinni og þannig
er kannski enn. Heilinn í mér er
þannig gerður að ég næ ekki sam-
bandi við trúarbrögð og skynja
ekki heldur álf í Hafnarfirði, ég er
bara ekki þar. Mér þykja trúarlegar
kenningar að mestu leyti óskap-
lega heimskulegar. Það er skelfilegt
að lesa sögu trúarbragðanna, hún
er eitt allsherjar ofbeldi og algjör
hryllingur. Ég er ekki mikið trúaður
eins og þú heyrir. Ég geri hins vegar
engar athugasemdir við trú annarra
meðan sú trú fer ekki úr böndum
og hefur ekki alvarlegar afleiðingar.
Maður verður að taka ákvörðun um
það hvernig maður vill lifa lífinu
og hvort maður ætlar að vera úrill-
ur, trúa á tómið og líta þannig á að
þetta sé allt tilgangslaust helvíti. Ég
tók þá ákvörðun að trúa á það góða
í manninum. Ég trúi staðfastlega á
réttlætið og skynsemi mannsins. Ég
held að allir séu að reyna að verða
betri í dag en þeir voru í gær. Mér
finnst hlutirnir alls ekki vera að fara
á verri veg.“ n
„Heilinn í
mér er
þannig gerður að
ég næ ekki sam-
bandi við trúar-
brögð og skynja
ekki heldur álf í
Hafnarfirði, ég er
bara ekki þar.
Ekki trúaður
„Mér þykja trúar-
legar kenningar að
mestu leyti óskap-
lega heimskulegar“