Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Qupperneq 54
34 menning Helgarblað 19.–22. maí 2017
Tók kvikmyndagerð fram yfir lögfræðina
Óskar Þór Axelsson leikstýrir draugatryllinum Ég man þig
É
g vil að sem flestir sjái mynd-
irnar sem ég geri. Auðvitað
vil ég gera góðar myndir, en
í þessu felst mitt „kick“,“ segir
Óskar Þór Axelsson kvik-
myndagerðarmaður sem nýlega
frumsýndi draugatryllinn Ég man
þig sem er byggður á bók Yrsu
Sigurðardóttur.
Íslenskir bíógestir hafa tekið
Óskar á orðinu og er myndin vor-
smellurinn í kvikmyndahúsum
landsins, en hún var mest sótta
myndin í síðustu viku og um 20
þúsund manns hafa séð myndina
nú þegar.
Það er erfitt að ná í Óskar enda
vinnur hann nú myrkranna á milli
við tökur á nýrri sex þátta spennu-
þáttaröð byggðri á bókunum eftir
hulduhöfundinn Stellu Blómkvist.
En síðla kvölds, strax í kjöl-
far tólf tíma tökudags mælum við
okkur mót á kaffihúsi og ræðum
saman um kvikmyndagerð, hryll-
ingsmyndir og hulduhöfunda.
Star Wars og leigðar kamerur
Óskar Þór Axelsson, sem er fæddur
árið 1973, segist eiga margar
sterkar minningar af kvikmyndum
frá því þegar hann var lítill. „Ég á
til dæmis svakalega sterkar minn-
ingar af því að hafa farið með eldri
systkinum mínum í bíó. Það er
kannski svolítið mikil klisja en ein
fyrsta myndin sem ég man eftir að
hafa alveg fallið fyrir var Star Wars,
bróðir minn sem er átta árum eldri
en ég, tók mig með sér í Nýja Bíó.
Það var mjög eftirminnilegt,“ segir
Óskar Þór.
„Þegar ég var svona 11 ára feng-
um við vinirnir að gera stuttmynd
á tökuvél sem pabbi eins okkar
var með í láni úr vinnunni sinni –
og það æxlaðist einhvern veginn
þannig að ég fór að stýra henni. Ég
man að mér fannst þetta alveg geð-
veikt. Ég elskaði að horfa á þessa
mynd og lifði á þessu í langan
tíma.“
Hann segir þá félagana hafa
nýtt sumrin á unglingsárunum í að
gera stuttmyndir: „Pabbi minn dó
á þessum tíma og ég sökkti mér dá-
lítið mikið í einhverjar svona pæl-
ingar. Við félagarnir tókum upp á
því að leigja vélar nokkrum sinn-
um yfir sumarið. Söfnuðum í púkk
og leigðum kameru dýrum dómi
yfir eina helgi – við þurftum reynd-
ar að fá bróður minn til að leigja
hana fyrir okkur því við vorum of
ungir. Þessar örfáu helgar voru svo
það sem maður lifði fyrir allt sum-
arið,“ segir Óskar.
Tókstu svo einhvern tímann
meðvitaða ákvörðun um að reyna
að leggja þetta fyrir þig?
„Já, þegar ég kláraði Versló var
spurningin hvort ég ætti að skrá
mig í lögfræði eins og pabbi og
systkini mín – mér fannst það al-
veg mjög spennandi – eða hvort ég
ætti að fara út í kvikmyndagerð. Ég
settist niður og hugsaði mikið um
þetta og tók þessa ákvörðun að lok-
um.“
Fékk inni í draumaskólanum
Þar sem ekki var hægt að læra
kvikmyndagerð á Íslandi ákvað
Óskar að skrá sig í almenna bók-
menntafræði og sækja svo um í
mastersnám erlendis. Eftir nokk-
ur ár í stuttmyndum og auglýs-
ingagerð komst hann svo loks inn
í draumaskólann, kvikmyndadeild
New York-háskóla.
„Ég var búinn að vera að fram-
leiða, en vissi að mig langaði ekki
til þess til frambúðar. Mig langaði
að læra meira um tæknihliðina, en
fyrst og fremst vildi ég fá tíma til að
prófa mig áfram, finna mína eigin
rödd. Skólinn hafnaði mér fyrst og
það var mjög svekkjandi. Ég var
þá búinn að ákveða að taka boði
um skólavist annars staðar en fékk
svo símtal frá NYU þar sem mér
var boðið pláss á öðru ári. Ástæð-
an var að annar nemandi hafði fall-
ið frá, og þeim fannst ég hafa gert
nógu mikið til að fara beint á annað
ár. Mig langaði hins vegar að taka
ýmislegt sem var í boði á fyrsta ár-
inu, læra að vinna með leikurum
og annað slíkt. Þetta útskýrði ég í
löngum tölvupósti, og eftir það var
mér boðið pláss á fyrsta ári,“ segir
Óskar Þór.
Hann tekur fram að stemn-
ingin í borginni hafi verið óvenju-
leg þegar hann hóf námið enda
kom hann til New York aðeins ör-
fáum vikum fyrir hryðjuverkaárás-
irnar á tvíburaturnana í septem-
ber 2001, en eftir nokkurra daga
lokun hélt námið áfram og gekk
sinn vanagang. Lokaverkefnið var
vísindaskáldsagan Misty Mountain
sem Óskar segir að hafi verið sér-
staklega metnaðarfull, tekin upp á
35 millimetra filmu á Langanesi og
fjallaði um tímaflakk og var uppfull
af heimspekilegum pælingum.
Góð viðbrögð úr undirheimunum
Á meðan hann starfaði sem töku-
maður í Bandaríkjunum fór hann
að velta fyrir sér næsta verkefni og
þá fékk hann senda bókina Svartur
á leik eftir Stefán Mána, harðsoðna
glæpasögu úr hinum vaxandi ís-
lensku undirheimum.
„Ég var ótrúlega hrifinn og vissi
strax að þetta væri myndin sem
ég vildi gera – það kom ekki neitt
annað til greina. Hún minnti mig
á allar mínar uppáhaldsmyndir,
sú týpa af myndum sem ég fílaði
hvað best, mynd sem maður hafði
ekki séð áður á Íslandi. Hún gerist
líka á árunum 1999 og 2000 sem
er einmitt tímabilið áður en ég flyt
út til Bandaríkjanna og þekki svo
vel. Ég er á svipuðum aldri og að-
alpersónurnar og þó að ég þekkti
ekki undirheimana beint þá þekkti
ég allt umhverfið og þetta talaði til
mín. Þetta verður fyrsta myndin!“
segir Óskar.
„Stefán Máni hafði verið fenginn
til að skrifa handrit en satt best að
segja fannst mér það alls ekki nógu
gott. Hann hafði eiginlega gert aðra
sögu upp úr bókinni,“ segir Óskar
og í kjölfarið skrifaði hann sjálfur
nýtt handrit en með samþykki og
yfirlestri Stefáns Mána. Frá og með
2006 vann hann í handritinu en
efnahagshrunið setti stórt strik í
reikninginn og ekki tókst að frum-
sýna myndina fyrr en árið 2012.
En hún sló í gegn í íslenskum kvik-
myndahúsum.
„Hún gekk alveg vonum framar.
Hún fékk töluvert fleiri áhorfendur
en við bjuggumst við – tæplega 63
þúsund manns sáu hana hérna
heima. Hún seldist líka mjög víða,
gekk vel á festivölum og opnaði fyrir
mig dyr í Bandaríkjunum. Þetta er
rosalega mikilvægt fyrir mig. Þegar
maður gerir sína fyrstu mynd þá er
enginn að bíða eftir mynd frá þér.
Þú þarft að leggja svo mikið á þig,
gefa svo mikið af vinnu til að kom-
ast á staðinn. Ef hún floppar er hún
allt í senn fjárhagslegt áfall, egó áfall
og „reality-check“: er ég á réttri
hillu? Það að hún hafi gengið svona
vel breytti öllu. Fólk var byrjað að
spyrja hvað ég myndi gera næst og
mér var boðið að taka þátt í Ófærð
og svo framvegis.“
Þú segir að viðtökurnar hafi
almennt verið betri en þú þorðir
að vona – en heyrðir þú eitthvað
hvernig menn í undirheimunum
tóku í þetta, þar sem persónurnar
eru oftar en ekki byggðar á raun-
verulegum glæpamönnum?
„Persónurnar eru oft byggðar á
nokkrum raunverulegum aðilum,
ein persóna byggir þá kannski
á þremur eða fjórum. En já, ég
heyrði rosa gott „feedback“ úr
undirheimunum, úr ýmsum átt-
um. Ég fékk viðbrögð frá mönnum
sem voru alveg hæstánægðir með
þetta.“
Ófært í Hollywood
Eftir Svartur á leik ákvað hann að
láta langþráðan draum rætast og
flytjast í eitt ár með fjölskyldunni
til Los Angeles, kynnast bransan-
um og kynna sig sjálfan. Þrátt fyrir
að hafa skrifað undir nokkra samn-
inga um leikstjórn mynda hefur
ekkert verkefnið orðið að veruleika
enn sem komið er – enda segir
Óskar myndirnar þurfa að kom-
ast í gegnum mikið nálarauga til að
verða að veruleika.
Heima fékk hann hins vegar
tækifæri til að taka þátt í stærsta
sjónvarpsverkefni sem framleitt
hafði verið á Íslandi. Hann segir
það vissulega hafa verið stærra
verk efni og fagmannlegra en hann
hafði áður kynnst en segir það þó
vera hluta af þróun sem hafi átt sér
stað í íslenskri kvikmyndagerð á
undanförnum árum.
„Ég er búinn að starfa í kvik-
myndagerð meira og minna frá ár-
inu 1997. Á þessum tíma hefur svo
rosalega mikið breyst. Það er ekki
bara auðveldara að fjármagna ver-
kefni heldur er öll fagmennskan
hjá teymunum búin að taka stakka-
skiptum sem og öll umgjörðin.
Bara munurinn frá því að ég var að
gera Svartur á leik og til dagsins í
dag er svakalegur,“ segir Óskar.
„Maður fann líka svo sterkt fyrir
því að allt í umgjörðinni í kring-
um Ófærð miðaðist að því að leik-
stjórinn gæti algjörlega einbeitt sér
að því sem hann á að gera, sem er
að skipuleggja senurnar og ná því
besta út úr leikurunum. Í öllum
stuttmyndunum og jafnvel Svartur
á leik þurfti maður að gera mun
fleiri hluti og allt var miklu þyngra.
Mér fannst líka mjög gaman
að vinna með öðrum leikstjórum.
Í raun og veru er þetta nefnilega
frekar einmanalegt starf. Þú þarft
að taka allar ákvarðanirnar einn
og þarft svo að standa og falla með
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Ég heyrði
rosa gott
„feedback“ úr
undirheimunum, úr
ýmsum áttum
„Ég vil
að hún
höfði til ungs
fólks en líka til
ömmu þeirra
og afa