Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Síða 2
2 Helgarblað 21. júlí 2017fréttir Spurning vikunnar „Allur ítalskur matur. Ég er til dæmis mikil lasanja- kona.“ Anna Gunnlaugsdóttir „Venjulegur heimilismatur. Ég er mikið fyrir lambasteik.“ Guðmundur Óttósson „Lambahryggur með öllu tilheyrandi.“ Hildur Sveinbjörnsdóttir „Pitsa. Hawai-pitsa með skinku og ananas finnst mér best.“ Samantha Ósk Sokolov Hver er uppáhalds maturinn þinn? Á rið 2010 eignuðust hjón- in Tinna Ósk Auðuns- dóttir og Fannar Helgi Steinsson eineggja tví- buradætur. Stúlkurnar eiga þó ekki sama afmælisdag en Hjör- dís María fæddist skömmu fyrir miðnætti þann 12. júlí. Klukku- tíma síðar, eða aðfaranótt 13. júlí, kom Fanney Erna í heiminn. Þær fögnuðu því 6 ára afmælinu sínu á dögunum. „Ég var sett af stað á 37. viku eins og algengt er á tvíburameðgöngu. Þær fædd- ust alveg eðlilega og þegar tví- buri A var fædd var farið með hana beint inn á vökudeild. Það leið svo tæpur klukkutími þar til tvíburi B kom.“ Skondin tilviljun Tinna kveðst ekkert haf spáð í það, á þessum tímapunkti, á hvaða degi börnin hennar fæddust. Systurnar voru báð- ar 11 merkur við fæðingu og jafnlangar. Það var ekki fyrr en ljósmóðirin sagði Tinnu og Fannari að hún væri búin að skrá börnin í kerfið að hjónin ráku augun í það að stúlkurn- ar áttu ekki sama fæðingardag. „Við vorum aldrei spurð hvort við vildum að þær ættu sama fæðingardag. Þannig að við fengum ekkert að ráða þessu. Þær fæddust einfaldlega hvor á sínum sólarhringnum svo þær eiga hvor sinn afmælisdaginn. Við vorum aldrei spurð álits eða látin velja dag. Okkur hef- ur alltaf þótt þetta skondin til- viljun.“ Systurnar, Hjördís Mar- ía og Fanney Erna, hafa þó ekki alltaf verið sáttar við fyrirkomu- lagið, áður fyrr varð sú „yngri“ stundum afbrýðisöm út í hina sem átti afmæli deginum á und- an. „Þetta hefur lagast heilmik- ið. Við höldum samt alltaf upp á afmælið þeirra saman og þær fá báðar afmælissöng og gjafir 12. júlí. Við pössum samt alltaf upp á að halda líka upp á daginn hennar Fanneyjar Ernu. Við kaupum til dæmis alltaf risa- stóra köku sem endist í alla- vega 2 eða 3 daga,“ segir Tinna og bætir við: „Þær vita það núna að þær eiga ekki sama afmæl- isdaginn og eru miklu rólegri yfir því. Þetta verður líka ör- ugglega bara gaman fyrir þær í framtíðinni. Þær geta þá boðið hvor annarri í af- mæli með dags milibili í stað þess að þurfa alltaf að tala sig saman um það hver fái að halda afmælið á afmælisdeginum.“ Ólíkar systur Tinna segir að dætur sínar séu mjög ólíkar þrátt fyrir að vera eineggja tvíburar. „Fyrir okkur eru þær eins og dagur og nótt. Hjördís María er algjör skellibjalla á meðan Fanney Erna er svolítið rólegri.“ Þá seg- ir Tinna að systurnar hafi ætíð haft sterka tengingu og passi vel upp á hvor aðra þrátt fyrir að stund- um slettist upp á vinskap- inn. „Nýfæddar héldu þær utan um hvor aðra. Mað- ur sá strax þessa einstöku tengingu. Þær voru á sömu deild á leikskóla, eru núna saman í bekk og æfa báð- ar fótbolta með Stjörnunni. Þær hafa alltaf verið saman í öllu og það er gaman að fylgjast með þeim vaxa og dafna.“ n Eineggja tvíburar Hafa alla tíð verið mjög samrýndar. Mynd Brynja Eineggja tvíburar en eiga ekki sama afmælisdag Systurnar Hjördís María og Fanney Erna fæddust hvor á sínum deginum Kristín Clausen kristin@dv.is „Nýfæddar héldu þær utan um hvor aðra. Maður sá strax þessa einstöku tengingu. Sætar systur Fögnuðu 6 ára afmælisdeginum sínum í júlí. Mynd Brynja Æfa fótbolta með Stjörnunni Liðið stóð si g frábær- lega og fékk silfurverðlaun í sínum flokki á Símamótinu sem fór fram um síðustu helgi. Mynd Brynja Mynd Brynja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.