Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Síða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 21. júlí 2017 T ómas er annálaður fjalla­ garpur sem hefur unun af ís­ lenska sumrinu og nýtir þá tíma sinn eftir megni til að ferðast um landið. „Pabbi var jarð­ fræðingur og allt frá því ég var smá­ pjakki hef ég farið víða og fengið að upplifa fegurðina í náttúru þessa lands. Ég lít á það sem algjör for­ réttindi,“ segir Tómas. „Sumartím­ inn er mér dýrmætur. Langoftast þegar ég er ekki í vinnunni þá er ég uppi á fjöllum. Útivist er aðal­ áhugamál mitt og konu minnar. Svo fer eftir veðri og vindum hvert við förum. Ég birti myndir á Face­ book úr ferðum okkar og fólk spyr mig hvort ég sé alltaf í góðu veðri af því það er mikil sól á myndunum. Það er vegna þess að ég er búinn að stúdera veðurspána og er ófeiminn við að breyta ferðaáætlun í sam­ ræmi við sólarspár.“ Hvað gefur það þér að vera úti í náttúrunni? „Það gefur mér gríðarlega orku. Ég er í starfi þar sem er mikið álag, ég vinn mikið og er á tíðum nætur­ vöktum, oft þriðju eða fjórðu hverja nótt. Þess vegna er frábært að koma sér í allt annað umhverfi og helst að sofa í tjaldi. Ég kalla mig tjaldfíkil og sef aldrei betur en í tjaldi. Oft erum við hjónin ekki að ferð­ ast ein, heldur tökum með okk­ ur vini og kunningja. Það má segja að ég fari að stunda trúboð þegar ég sýni fólki staði sem eru ekki al­ veg við þjóðveginn. Það gefur mér mjög mikið að vera með fólki á spennandi stöðum í íslenskri nátt­ úru og skynja hrifningu þess.“ Hugsað í lengra samhengi Nýleg ferð Tómasar til Vestfjarða rataði í fjölmiðla eftir að Tómas birti mynd af sér við Rjúkandi­ foss á Facebook og spurði: „Vilj­ um við fórna svona perlu fyrir megavött til stóriðju? Það væri brjálæði ... Við þurfum að skila svona perlum til næstu kyn­ slóða, ekki HS Orku eða Vestur­ verks.“ Fjöldi deildi þessum pósti Tómasar, en ekki voru allir sátt­ ir. Varaþingmaður Sjálfstæðis­ flokksins í Norðvesturkjördæmi, Hafdís Gunnarsdóttir, sagð­ ist vera komin með upp í kok af fólki eins og Tómasi sem kæmi í heimsókn á Vestfirði í nokkra daga á ári og berðist gegn fram­ kvæmdum. Tómas segist aðspurður hafa miklar áhyggjur af stóriðjufram­ kvæmdum. „Á 70 árum hafa víð­ ernin á Íslandi minnkað um 70 prósent. Í dag eru 40 prósent af yfirborði Íslands víðerni og sá hluti landsins er að mínum dómi hvað verðmætastur. Ég hugsa þessi mál í miklu lengra sam­ hengi en bara fyrir mig og börn­ in mín. Ég er afi þriggja mánaða drengs og mig langar til að hann, hans börn og barnabörn upp­ lifi ósnortna náttúru eins og er að finna á Ströndum og Horn­ ströndum. Alla mína tíð hef ég brunnið fyrir náttúruvernd og ég lít ekki á þá baráttu sem tapað spil. Ég kalla þá stóriðjustefnu sem við höfum verið að horfa upp á virkj­ anaáráttu. Ég skynja gríðarlega breytingu hjá ungu fólki í dag miðað við eldri kynslóðir. Þannig að það er kominn byr í seglin. Náttúruverndarsinnar hafa líka fengið góða hjálp með tilkomu ferðamannaiðnaðarins sem er orðinn mikilvægasta atvinnu­ greinin á Íslandi. Erlendir ferða­ menn sækja í óspillta náttúru.“ Mynd sem vakti athygli Þú hefur ekki áhyggjur af því að náttúruverndarsjónarmið verði undir hjá stjórnvöldum? „Ég held að þetta eigi eftir að breytast með yngri kjósendum og breyttum áherslum. Unga fólkið hefur aðra forgangsröð­ un og staldrar meira við en mín kynslóð og þær eldri gerðu. Það kann betur að meta það sem er í kringum það. Ég fæ tæki­ færi til að skyggnast inn í þenn­ an hugarheim því ég er prófessor við læknadeildina og er svo lán­ samur að kenna tugum lækna­ og hjúkrunarnema á hverju ári.“ Um orð varaþingmanns Sjálf­ stæðisflokksins segir Tómas: „Hún segist vera búin að fá upp í kok af mér en hefur samt aldrei hitt mig. Hún tók mjög sterkt til orða og fyrir vikið varð til fjöl­ miðlamál. Ég var vissulega að vonast til að fá viðbrögð við ferð minni, það var að hluta til til­ gangurinn með því að fara á þessum tímapunkti í góða veðrið Tómas Guðbjartsson, prófessor í skurðlækningum við Háskóla Íslands, er einn af þekktari læknum landsins. Hann er venjulega kallaður því vinalega heiti Lækna-Tómas. Kolbrún Bergþórsdóttir hitti Tómas og ræddi við hann um læknastarfið, náttúruvernd, pólitík og fleira. „Þeir sem þekkja mig og hafa unnið með mér vita hversu vænt mér þykir um Landspítalann en stund- um fallast manni einfald- lega hendur þegar maður er þar. Ekki hræddur við að taka slaginn Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.