Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 25
Matarvagnar 21. júlí 2017 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Sigurvin Ólafsson / sigurvin@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is Takk taco vagninn: 100% maísskeljar og vegan-taco sem hefur slegið í gegn Við byrjuðum á Secret Solstice fyrr í sum-ar, það var afar vel heppnuð frumraun og frumsýning. Við opnuðum hann síðan fyrir almenn- ingi hér á Ægisgarði í byrjun júlí,“ segir Þorbjörg Péturs- dóttir, rekstrarstjóri Takk taco vagnsins sem, eins og nafnið gefur til kynna, sér- hæfir sig í mexíkóskum mat. Eigendur Takk taco vagnsins reka hinn áhuga- verða veitingastað Borðið við Ægisíðu og þaðan kemur maturinn í vagninn. „Þetta er alvöru mexíkóskt taco með mjúkum skeljum gerðar úr 100% maís en fólk sem hefur eingöngu smakkað hveitiskeljar finnur mikinn mun. Þetta er allt ferskur matur, búinn til frá grunni, við erum einnig með mjög bragðgóðar sterkar sósur sem við gerum sjálf,“ segir Þorbjörg. Hún segir jafnframt að yfirkokkurinn á Borðinu sé sífellt að prófa spennandi nýjungar. Meðal vinsælustu rétta á Takk taco vagnin- um eru grænmetis taco og vegan taco sem hafa mælst afar vel fyrir. Einnig hefur verið boðið upp á kjöt- og fiskitaco. „Við erum líka með okkar eigin vegan-sósu sem sló rækilega í gegn á Secret Solstice,“ segir Þor- björg. Hún segir að það sé mjög gaman að vera með veitingavagn við Gömlu höfnina, mannlífið fjölbreytt og margir erlendir ferða- menn. Takk taco vagninn er líka spennandi tilbreyting í veitingaflóruna við höfnina. Vagninn er sem fyrr segir staðsettur á Ægisgarði og er opinn alla daga frá 11.30 til 20.00, en það er líka hægt að panta vagninn í alls kon- ar samkvæmi og viðburði, stóra og smáa, til dæmis brúðkaupsveislur, afmæl- isveislur, útihátíðir, tónleika, starfsmannaveislur í fyrir- tæki og margt fleira. Til að panta Takk taco vagninn eða fá nánari upp- lýsingar er best að hringja í 869-8746 eða senda fyrirspurn á netfangið takkvagninn@gmail.com. Takk taco vagninn var frumsýndur á Secret Solstice

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.