Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 28
Lífið er kapphlaup“ segir máltækið og víst er að svo á við um marga sem
keppast við það alla ævi að
flýta sér í gegnum lífið, gera
allt, eignast allt, verða allt og
helst á sem fullkomnastan
hátt um leið, eins og tískublað
beint úr prentsmiðjunni. Og
gleyma jafnvel að njóta lífsins
á leiðinni.
En lífið er til að hafa gaman
af og njóta, gera allt eins vel
og maður getur og fjandinn
hafi það ef það tekst ekki, þá
er bara annar dagur og annað
tækifæri á morgun. Verkefnin í
lífinu eru fjölmörg og alla daga
stöndum við frammi fyrir val-
kostum og áskorunum, smærri
sem stærri, sem við veljum að
takast á við eða ekki, sem við
veljum að sigrast á eða ekki, að
taka þátt í eða ekki.
Suma daga er það hrein-
lega afrek að komast fram úr
rúminu á morgnana, dagana
þegar mann langar helst bara
að breiða sængina yfir haus
og vakna einhvern tíma löngu
síðar. En maður rífur sig á
fætur, gyrðir sig í brók og
mætir hvert sem maður á að
mæta, brosir og endurtekur
ferlið, þar til sigrast er á því
sem fær mann til að vilja ekki
fara á fætur.
Daglegu áskoranirnar, sem
og keppnisáskoranir, sigrarnir
litlir sem stórir, eru allir þess
virði. Sigrar sem maður vinn-
ur fyrst og fremst fyrir sjálfan
sig, sem einstaklingur. Sem
liðsmaður getur maður aðeins
gert sitt besta og ætlast til þess
sama af hinum. Í keppnis-
íþróttum komast færri á verð-
launapall, en allir þátttakend-
ur vinna persónulega sigra.
Þegar öllu er á botninn hvolft
lífið um að skora á sjálfan sig,
sigra sjálfan sig og verða betri
einstaklingur dag hvern. Allt
annað er bara plús.
Kær kveðja, Ragna
ragna@dv.is
Sigrarnir stórir
sem smáir
292 lið víðs vegar að af landinu mættu til keppni, 84 lið í 5. flokki, 116 í 6.
flokki og 92 í 7. flokki. Dagskráin
hófst með skrúðgöngu frá Digra-
neskirkju á fimmtudagskvöldinu og
keppni hófst að morgni föstudags.
Það var sannarlega mikið líf og fjör í
Kópavogi yfir helgina, en allir leikir
fóru fram á félagssvæði Breiðabliks,
bæði úti og í Fífunni. 6. og 7. flokk-
ur léku 5 manna bolta, en 5. flokkur
7 manna bolta. Allir þátttakendur
fengu viðurkenningarpeninga.
Fjöldi foreldra, systkina, annarra
ættingja og vina mætti síðan á völl-
inn til að hvetja stelpurnar áfram.
Stelpurnar á Símamótinu eru svo
sannarlega flottir fulltrúar yngri
kynslóðarinnar.
Kröftugar Knattspyrnustelpur etja Kappi
Símamótið 2017 Í Kópavogi
Símamótið var haldið helgina 13.–16. júlí síðast-
liðinn við Fífuna í Kópavogi. Um er að ræða stærsta
knattspyrnumót landsins með um og yfir 2.000 þátt-
takendum, en mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna.
Símamótið var fyrst haldið árið 1985 og var þetta því
32. mótið í röðinni.
StjörnumarkaSkorari Brynja Mist Björnsdóttir, 6
ára, var með sína markatölu á hreinu, þrátt fyrir að pabbi
væri líka að telja. Í leik gegn FH skoraði hún fjögur mörk.
Eftir slíkan leik er nauðsynlegt að fylla á orkubirgðirnar.
Silfur í húS
Stjörnustelpurnar í 7. flokki
uppskáru silfur eftir 0-1
úrslitaleik við Fram.
flautað til leikS Vinkonurnar Lára Margrét Valdimarsdóttir og Erla Rún Pétursdóttir, 6 ára, halda inn á völlinn á sínu fyrsta Símamóti.
Bikar á loft Stelpurnar í 6. flokki Grindavíkur
uppskáru bikar og halda honum stoltar á lofti.
SyStur og Samherjar
Systurnar Elma Lísa og Íris Eva
Stefánsdætur, 9 ára, sem spila
með 6. flokki Grindavíkur, leika
sér milli leikja.
komið að
leik Stelpurnar
halda á völlinn
til að keppa við
næsta mótherja.
Við unnum leikinn!
Stjörnustelpur í 7. flokki
fagna sigri.