Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 47
Matarvagnar 3Helgarblað 21. júlí 2017 KYNNINGARBLAÐ
Bökubíllinn: Ferskar, eldbakaðar pitsur
– hvar sem er og hvenær sem er
Flestir sem hrifnir eru af pitsum þekkja hinn rómaða veitinga-
stað Íslensku flatbökuna,
að Bæjarlind 2 í Kópavogi.
Staðurinn er þekktur fyr-
ir hágæða eldbakaðar
pitsur úr viðarofni. Í bland
við veitingastaðinn hefur
Íslenska flatbakan lengi
sinnt veisluþjónustu en í
sumar steig fyrirtækið nýtt
skref á því sviði með hinum
glæsilega Bökubíl sem hefur
glatt marga á undanförnum
vikum.
„Með Bökubílnum erum
við annars vegar að bjóða
upp á spennandi kost fyrir
alls konar viðburði, stóra og
smáa, og hins vegar viljum
við bjóða íbúum úthverf-
anna upp á aukna þjónustu
og þá upplifun að allt í einu
sé kominn pitsustaður í ná-
grenni við þá,“ segir Valgeir
Gunnlaugsson hjá Íslensku
flatbökunni en nýlega lagði
Bökubílinn á Seltjarnarnesi
og vakti mikla lukku.
Eins og myndir með
greininni bera með sér er
Bökubíllinn glæsilegur í útliti
og mikil prýði að honum
hvar sem hann fer um og
því skapar hann skemmti-
lega stemningu á þeim
viðburðum þar sem boðið er
upp á veitingar úr honum.
Pitsurnar eru líka ferskar og
í hæsta gæðaflokki:
„Við gerum engar mála-
miðlanir hvað gæðin snertir,
við erum með eldofn í bíln-
um og erum ekki að breyta
um eldunaraðferðir eða
neitt slíkt. Þegar sóttar eru
eða fengnar sendar pitsur
í barnaafmæli eða starfs-
mannahóf þá þarf að flytja
matinn og geyma einhverja
stund í pappakössum, og við
þetta tapast alltaf einhver
gæði. Úr Bökubílnum kemur
hins vegar allt rjúkandi heitt
og brakandi ferskt,“ segir
Valgeir.
Bökubíllinn er kostur sem
hentar í alls konar viðburði
af öllum stærðum. Hefur
hann töluvert verið fenginn
í brúðkaup í sumar og nú
þegar eru byrjaðar pantanir
í brúðkaup og fermingar
á næsta ári. Þá eru sífellt
fleiri fyrirtæki sem vilja
gera vel við starfsfólk sitt
öðru hverju farin að nýta
sér þjónustu Bökubílsins og
bjóða starfsfólki sínu upp á
ferskar pitsur, eldbakaðar á
staðnum, á góðviðrisdög-
um.
Sem fyrr setur nærvera
Bökubílsins skemmtilegan
svip á viðkomandi viðburð,
er prýði í umhverfinu og
skapar góða stemningu:
„Það er til dæmis
framundan hátíðin Kátt á
Klambratúni og aðstand-
endurnir höfðu samband við
okkur og sögðu: við verðum
með hátíð hérna og það
er pláss fyrir matarvagn,
viljið þið koma? Jafnframt
verðum við til dæmis á
Októberfest sem haldið er
á háskólasvæðinu á hverju
hausti,“ segir Valgeir.
Á stórum hátíðum eru
gjarnan seldar sneiðar út
úr vagninum, þegar honum
er lagt í úthverfin er boðið
upp á vinsælustu pitsurnar
af matseðli Íslensku flatbök-
unnar en þegar um einka-
samkvæmi eins og til dæmis
brúðkaup er að ræða er
matseðillinn einfaldlega
hannaður með óskir við-
skiptavinarins í huga.
Til að fylgjast með stað-
setningum Bökubílsins í út-
hverfum á næstunni er best
að skoða vefsíðuna boku-
billinn.is eða Facebook-síðu
Bökubílsins. En til að panta
Bökubílinn í samkvæmi
eða á hátíð, eða fá nánari
upplýsingar, er best að
senda tölvupóst á netfangið
flatbakan@flatbakan.is.