Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 58

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Qupperneq 58
34 Helgarblað 21. júlí 2017 Alice prinsessA Alice, dóttir Theodore Roosevelt Bandaríkjaforseta, var ein litríkasta kona sinnar tíðar A lice fæddist árið 1884, dóttir Theodore Roose­ velt, efnilegs stjórnar­ málamanns og eiginkonu hans, Alice Lee. Móðirin unga lést nokkrum dögum eftir fæðinguna og Theodore kvæntist þremur árum síðar Edith Kermit Carow, miklum kvenskörungi. Alice kunni best við sig í félags­ skap stráka, klippti hár sitt stutt og sagðist í fyllingu tímans ætla að fæða apa í stað barna. Hún átti ekki vinkonur en lék sér stund­ um við uppburðarlitla ófríða frænku sína, Eleanor Roosevelt. Alice stjórnaði leikjum þeirra og hæddi Eleanor óspart ef þannig lá á henni. „Ég dáðist alltaf að Alice en um leið var ég hrædd við hana,“ sagði Eleanor. Það var Alice sem kynnti El­ eanor fyrir Franklin Delano Roos­ evelt, fjarskyldum ættingja þeirra beggja, og hvatti hann til að sýna henni athygli. Kynnin leiddu til hjónabands sem skapaði þeim báðum óhamingju. Mörgum árum síðar, þegar Franklin, þá Bandaríkjaforseti, átti í eldheitu ástarsambandi við ritara sinn að­ stoðaði Alice hann eftir megni við að fela sambandið fyrir Eleanor. Þegar vinur Alice gagnrýndi hana fyrir þátt hennar svaraði hún: „Franklin á skilið að eiga sólskins­ stundir. Við verðum að hafa í huga að hann er kvæntur Eleanor.“ Með árunum skapaðist kuldi milli Alice og Franklin og árið 1940 sagðist hún heldur kjósa Hitler en kjósa Franklin sem forseta í þriðja sinn. Með páfagauk á öxl og snák um hönd Theodore Roosevelt varð Banda­ ríkjaforseti árið 1901. Alice var ein frægasta kona Bandaríkjanna á valdatíma föður síns. Hún var köll­ uð Alice prins essa og allt sem hún gerði vakti athygli. Blaðamaður sem skráði ferðir Alice í tæp tvö ár sagði að hún hefði á þeim tíma far­ ið á 407 dansleiki, 350 samkvæmi, 680 teboð, auk 1.706 heimsókna. Hún reykti opinberlega á tím­ um þegar penar stúlkur létu slíkt ekki sjást til sín. Hún smyglaði víni í samkvæmi sem áttu að vera áfengislaus. Hún sökkti sér niður í alls kyns kukl. Hún sprangaði um Hvíta húsið með risastóran suður­ afrískan páfagauk á öxl og snákinn Emily vafinn um hönd sér. Hún var einmitt með Emily upp á arminn þegar hún birtist á skrifstofu föður síns þar sem hann sat á tali við rithöfundinn Owen Wister. Eftir að hafa ítrekað trufl­ að samræður þeirra og horfið síð­ an á braut spurði Wister forset­ ann af hverju hann reyndi ekki að hafa stjórn á dóttur sinni. Forset­ inn svaraði: „Ég get annaðhvort verið forseti Bandaríkjanna eða haft stjórn á Alice. Ég get ekki gert hvort tveggja.“ Þau feðgin þóttu æði lík, bæði athyglissjúk og sjálf­ hverf, en bjuggu yfir miklum gáf­ um og viljastyrk. Alice tók það afar nærri sér þegar faðir hennar lét af forseta­ embætti. Þegar Woodrow Wilson settist í sæti forseta gerðist Alice hatrammur andstæðingur hug­ mynda hans um þátttöku Banda­ ríkjamanna í Þjóðabandalaginu. Oft sást til hennar á vappi við Hvíta húsið tautandi bölbænir sem beint var til forsetans: „Meg­ irðu aldrei þrífast! Megirðu aldrei þrífast.“ Hún lét orðin ekki einung­ is tala heldur bjó til litlar vúdú­ dúkkur, stakk prjónum í hjarta­ stað þeirra og henti þeim inn á lóð Hvíta hússins í skjóli nætur. Skrautlegt einkalíf Alice giftist 24 ára gömul Nicholas Longworth, þingmanni Repúblik­ ana og síðar forseta þingsins, drykkfelldum kvennabósa. Fréttir af trúlofun hennar og brúðkaupi voru á forsíðum blaða og gjaf­ ir streymdu að frá öllum heims­ hornum. Hjónabandið kom ekki í veg fyrir að Longworth héldi áfram að sinna kvennafari og drykkju. Á meðan átti Alice í ástríðu­ fullu sambandi við þingmanninn William Borah, sem jafnan gekk undir nafninu Ljónið frá Idaho. Borah naut mikillar virðingar og þótti frábær ræðumaður og sterk­ ur persónuleiki. Þegar Alice fæddi dóttur árið 1925 var almennt talið að hún væri dóttir Borah og Alice bar aldrei á móti því. Hún var afskiptalaus móðir en eigin­ maður hennar dekraði barnið. Longworth, sem glímdi við alvar­ legt áfengisvandamál, lést árið 1931. Alice syrgði hann ekki enda hafði fullkominn fjandskapur ríkt með þeim síðustu árin sem hann lifði. Pauline, dóttir Alice, óx úr grasi, óframfærin og óhamingjusöm. Hún giftist manni sem drakk sig í hel og sjálf lést hún rúmlega þrítug af völdum of stórs skammts lyfja og áfengis. Hún lét eftir sig dóttur sem Alice tók að sér og reyndist henni afar vel. Vinkona Bandaríkjaforseta Á elliárum var Alice vinsæl sem fyrr og fastur gestur í samkvæmum Bandaríkjaforseta. Hún vingaðist við Kennedy­fjölskylduna og þótti sérlega vænt um Robert Kennedy. Hún hafði ætíð verið staðfastur Repúblikani en kaus Demókra­ taflokkinn í kosningum árð 1964. Árið 1965 var bílstjóri Alice, sem jafnframt var einn besti vinur hennar, blökku maðurinn Richard Turner, að keyra hana í móttöku. Hann stöðvaði fyrir fram­ an leigubíl og leigubílstjórinn fór út úr bíl sínum og æpti að Turner: „Hvað heldurðu að þú sért að gera, svarta skepna?“ Alice sneri sér að leigubílstjóranum og sagði: „Hann er að fara með mig á áfangastað minn, þú hvíti tíkarsonur!“ Á níræðisaldri stundaði hún jóga af kappi og svaf vært á svæfli sem hún hafði látið bródera á orðin: „Ef þú getur ekki talað vel um nokkurn mann skaltu vera hérna hjá mér.“ Alice Roosevelt lést árið 1981, 96 ára. Þegar hún var á elliárum spurð um viðburðaríkt líf sitt, svar­ aði hún: „Ég býst við því að um mig megi segja að ég hafi verið snilling­ ur í að skauta á þunnum ís og leika mér að eldinum.“ n menning - KjarnaKonur úr fortíð Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Á níræðis-aldri stund- aði hún jóga af kappi og svaf vært á svæfli sem hún hafði látið bródera á orðin: „ef þú get- ur ekki talað vel um nokkurn mann skaltu vera hérna hjá mér.“ Umtöluð forsetadóttir Hún var kölluð Alice prinsessa. Alice Roosevelt Bjó yfir miklum gáfum og viljastyrk og þótti sérlega orðheppin. Með eiginmanni sínum Hjónaband þeirra var ekki upp á marga fiska.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.