Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 12
12 Helgarblað 28. júlí 2017fréttir
G
uðmundur Ingi Þórodds-
son, formaður Afstöðu, fé-
lags fanga, segist í samtali
við DV skilja vel reiði að-
standenda og almennings. Hann
segir þó að þrátt fyrir allt sé betra
fyrir samfélagið að ungir fangar
afpláni dóm sinn í opnu úr-
ræði eða áfangaheimili svo sem
Vernd. „Ég tel ekki að þetta kerfi
sé gallað, frekar að þetta sé mjög
gott. Það er ekki gott að tvítugir
unglingar séu í lokuðu fangelsi
lengi. Það skemmir fólk. Það sem
er verið að gera með þessu er að
reyna að koma í veg fyrir ítrekuð
brot,“ segir Guðmundur.
Hann segir að rannsóknir og
reynsla hafi sýnt fram á hægt sé
að draga úr líkum þess að fangar
brjóti aftur af sér. „Það er gert með
þrepakerfi og með eftirliti. Það
hefur sýnt sig að það beri meiri
árangur en að geyma bara menn
í lokuðu fangelsi. Því lengur sem
ungt fólk er lokað inni í fang-
elsi, því skemmdara verður það.
Það er verið í raun og veru verið
að fækka mögulegum brotaþol-
um heldur en að það sé verið að
verðlauna. Það er verið að gera
það sem er hagstæðast fyrir sam-
félagið,“ segir Guðmundur.
Hann segir að það hljóti að
vera mikilvægast fyrir samfélagið
að dæmdir menn brjóti ekki aft-
ur af sér. „Auðvitað er ekki hægt
að segja til um hvort að þessi eða
hinn brjóti af sér aftur. Það eru
alltaf einhverjar líkur á því, því
þetta eru fangar og meðferðirn-
ar hafi ekki tekist nógu vel, því
þær eru ekki í gangi. En við þurf-
um alltaf að hugsa þetta þannig
að gera það sem er samfélagslega
hagkvæmt og til þess að fækka
brotaþolum. Það á alltaf að vera
númer eitt, tvö og þrjú,“ segir
Guðmundur.
Guðmundur Ingi segir að
það megi þó tvímælalaust
gagnrýna hve litla aðstoð
fangar fá meðan þeir af-
plána dóm sinn. „Fangelsið
er innihaldslaust þannig að
sá tími sem fangar eru inni,
eru engar meðferðir. Við
erum með þetta þrepakerfi,
eins og Norðurlandaþjóð-
irnar, sem hafa náð miklum
árangri, en við erum ekki
með eiginlega betrunar-
stefnu. Á öðrum Norður-
löndum eru meðferðir og
einstaklingsmiðaðar meðferðir,
betrunarstefna sem stendur und-
ir nafni. Það má hins vegar gagn-
rýna stjórnvöld, það voru reynd-
ar fyrri stjórnvöld, sem hættu að
setja fjármagn í meðferð kynferð-
isbrotamanna. Það er eitthvað
sem þarf strax að taka upp,“ segir
Guðmundur.
„Ekki stendur til að breyta
reglum Verndar“
DV óskaði eftir viðbrögðum
frá Páli Winkel fangelsismála-
stjóra vegna fréttar DV í síðustu
viku um að Elvar væri laus úr
fangelsi og kominn á Vernd, að-
eins sex mánuðum eftir að hafa
hlotið dóm. Í svari frá stofnun-
inni sem undirritað er af Ernu
Kristínu Árnadóttur sem starfar
sem sviðsstjóri hjá Fangelsis-
málastofnun, kveðst hún ekki
geta tjáð sig um mál Elvars.
Skiptir alvarleiki brota og eðli
þeirra engu máli þegar er úr-
skurðað um hverjir fara á Vernd?
„Eitt af skilyrðum þess að
mega vistast á Vernd er að vera
metinn hæfur til þess. Við mat á
því hvort fangi telst hæfur til að
vera á Vernd þarf að skoða marga
þætti, s.s. brotið sem hann af-
plánar fyrir, annan sakarferil
hans, hegðun og framkomu
í afplánun og fleira. Þegar
fangar sem hafa verið dæmd-
ir fyrir alvarleg brot, s.s. mann-
dráp, kynferðisbrot og stórfellda
líkams árás, hefja afplánun gera
sálfræðingar Fangelsismála-
stofnunar s.k. áhættu- og þarfa-
mat sem er síðan lagt til grund-
vallar ýmsum ákvörðunum, s.s.
hvort vista eigi fanga í opnu fang-
elsi og þess háttar.“
Kemur til greina að breyta
þessum reglum eftir fréttaflutn-
ing síðustu daga af manni sem
var kominn á Vernd eftir að-
eins sjö mánaða afplánun (af 66
mánaða dómi) fyrir tvær grófar
nauðganir?
„Ekki stendur til að breyta
reglum Verndar.“
Af hverju voru foreldrar
stúlknanna ekki látnir vita að
hann hefði verið færður á Vernd
(sem er í næsta nágrenni við
heimili þeirra). Kemur til greina
að færa hann af Vernd?
„Fangelsismálastofnun
getur því miður ekki tjáð sig um
einstök mál.“ n
E
lvar nauðgaði stúlkunum
tveimur hrottalega fyrir nær
sléttu ári, þeirri fyrri mánu-
daginn 25. júlí og þeirri síð-
ari helgina eftir, aðfaranótt sunnu-
dagsins 31. júlí. Báðar voru þá
einungis 15 ára. Fyrri nauðgun-
in átt sér stað á heimili Elvars, hjá
foreldum hans í Reykjanesbæ.
Stúlkan sem varð fyrir því broti
lýsir því svo að hún hafi talið að
hún myndi deyja þar og þá. Elvar
betiti hana grófu ofbeldi auk þess
að nauðga henni. Hann tók hana
meðal annars kverktaki, sló hana
ítrekað í andlitið og steig á háls
hennar þar sem hún lá á gólfinu.
Reyndi að fela sönnunargögn
Stúlkan náði að forða sér úr að-
stæðunum og leitaði á neyðar-
móttöku Landspítalans samdæg-
urs. Lögregla handtók Elvar þann
sama dag en sá ekki ástæðu til að
fara fram á gæsluvarðhald. Það
hefur verið mjög gagnrýnt af þeim
sem málið varðar í samtölum við
DV.
Auk þess að nauðgunin var
mjög hrottaleg reyndi Elvar að
hylma yfir brotið. Þegar lögregla
fór á heimili hans veitti hún því
athygli að sængurver hafi ekki ver-
ið utan um sængina og ekki heldur
lak á rúminu.
Elvar sagðist hafa brennt
sængurverið því það hafi ver-
ið götótt en í ljós kom að í rusli
við húsið var svartur rusla-
poki sem lokað hafði verið með
svörtu strigalímbandi. Í pokanum
reyndist vera sængurver, notaður
smokkur, umbúðir utan af smokki
og rautt handklæði.
Skilur eftir sig slóð á netinu
Elvar er fæddur árið 1997 og verð-
ur því síðar á þessu ári tvítugur.
Hann er enn skráður með lög-
heimili hjá foreldrum sínum í
Reykjanesbæ. Elvar kennir sig
þó sjaldnast við föður sinn á
samfélagsmiðlum og kallar sig
iðulega Elvar Miles. Hann eyddi
Facebook-aðgangi sínum á
dögunum eftir að DV greindi því
að hann væri kominn á Vernd
en á þeim miðli kallaði hann sig
Elvar Miles.
Eftir því sem DV kemst næst
er eftirnafnið ekki vísun í er-
lendan ættlegg heldur vísun í
tölvuleikina Assassins Creed
þar sem aðalpersóna ber það
nafn. Elvar hefur skilið eft-
ir sig nokkur spor á netinu og
því auðvelt að sjá að hann hef-
ur spilað þann leik, eða rétt-
ara sagt 49 klukkustundir, sam-
kvæmt Steam-aðgangi hans. Þar
kallar hann sig Elf-Lord og skrif-
ar í lýsingu sinni: „Krjúpið fyrir
yfirboðara ykkar!“ Þar má jafn-
framt sjá að hann hefur fylgst
með teiknimyndþáttunum My
Little Pony.
Líkt og fyrr segir byrjaði
Elvar á Tinder um svipað leyti
og hann var á leið á Vernd en á
Sogni er öll notkun samskipta-
miðla bönnuð. Ljóst er að hann
var virkur á stefnumótaforritinu
því hann „super-lækaði“ nýver-
ið unga stúlku líkt og sjá má á
meðfylgjandi mynd. Það þýðir
með öðrum orðum að hann lýsti
yfir eindregnum áhuga á frekari
kynnum. Á Tinder lýsir hann
sér svo: „Lele mun mest líkleg-
ast adda þér á snap ef ég sé það
cause why the fuck not? Fun ha-
ving friends“. DV hefur heimild-
ir fyrir því að hann sé virkur á
samskiptamiðlinum Snapchat,
líkt og kemur fram í lýsingunni
á Tinder. n
Markmiðið að
fækka brotaþolum
Reyndi að fela
sönnunargögn
Í
kjölfar þess að DV fjallaði
um mál Elvars í síðustu viku
hafði fangi á Sogni samband
við DV til að greina frá því að
hans mat væri að Elvar væri stór-
hættulegur. Eina ástæðan fyr-
ir því að fanginn baðst undan
því að koma fram undir nafni
er að hann óttaðist að þá myndi
Fangelsismálastofnun refsa
honum. Fanginn segir að það
hafi verið samdóma álit fanga á
Sogni að Elvar væri mjög líkleg-
ur til að brjóta aftur af sér. „Það
er mín persónulega skoðun að
hann eigi eftir að nauðga aftur
og þá muni hann passa sig á því
að skilja ekki eftir lifandi vitni.
Menn læra af reynslunni,“ segir
fanginn.
Fanginn segir að þrátt fyrir allt
hafi Elvar fengið vini í heimsókn.
„Ég held að ég hefði hætt sam-
skiptum við vin ef hann hefði
gert svona,“ segir fanginn. Hann
þekkir annan mann sem býr á
Vernd ásamt Elvari. Sá segir að
allir aðrir fangar á Vernd hafi
ímugust á Elvari, utan herbergis-
félaga hans sem tók nýverið trú.
Hann segir jafnframt að Elvar
hafi ekki sýnt vott af eftirsjá eða
iðrun. „Þessi drengur tók þátt
í sjálfsvitundarnámskeiði hér
og eftir eitt slíkt var hann alveg
brjálaður yfir því að stjórnend-
ur þess skyldu ætlast til þess að
hann skammaðist sín fyrir það
sem hann gerði. Þrátt fyrir þá
staðreynd að starfsmönum fang-
elsismálastofnunar hafi verið
sagt frá ummælum hans og þá
staðreynd að Elvar telji þetta vera
eðlilega framkomu við druslur,
eins og hann orðaði það, og að
hann væri endalaust hneyksl-
aður yfir því að hann þyrfti virki-
lega að vera í fangelsi fyrir að fá
sér að ríða, var honum gefinn
einn þriðji af dómi sínum,“ segir
fanginn í samtali við DV. n
Hneykslaður yfir því að vera í fangelsi„Ég held að
ég hefði
hætt samskipt-
um við vin ef hann
hefði gert svona.