Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 18
18 sport Helgarblað 28. júlí 2017
Þ
að hefur gengið á ýmsu hjá
KR í sumar en gengi liðsins í
Pepsi deild karla hefur ekki
verið gott, liðið hefur þó
sýnt á köflum fína takta og jákvæð
frammistaða í Evrópukeppni og
frábær sigur á Víkingi í síðustu
umferð deildarinnar gefur KR-
ingum von. Pressan í Vesturbæn-
um er alltaf mikil og hefur Willum
Þór Þórsson þjálfari liðsins fundið
fyrir henni í sumar, þegar úrslitin
hjá KR eru ekki góð fara menn að
efast um þjálfarann og hvort að
hann sé rétti maðurinn í starfið.
Willum tók við KR á miðju síð-
asta sumri eftir að Bjarni Guð-
jónsson var rekinn úr starfi og
vann Willum kraftaverk með liðið,
hann skilað i KR í Evrópusæti. Eitt-
hvað sem flestir töldu að ekki væri
möguleiki á, KR-ingar héldu því
bjartsýnir inn í sumarið en vand-
ræðin hófust í fyrsta leik og hafa
síðan fylgt liðinu eftir. KR situr í
níunda sæti Pepsi deildarinnar
en aðeins eru sjö stig upp í þriðja
sætið sem gefur miða í Evrópu,
miðað við endasprett KR á síðustu
leiktíð og jákvæð teikni á lofti gæti
KR blandað sér í þá baráttu.
„Sigurinn gegn Víkingum var
kærkominn fyrir okkur, hann var
líka rosalega verðskuldaður. Það
er alltaf gaman að vinna leiki þar
sem liðið spilar svona vel og verð-
skuldar sigurinn, það var fínn takt-
ur í okkar leik. Ég get alveg kvitt-
að undir það að þetta hafi verið
heilt yfir okkar besti leikur í sum-
ar ásamt leiknum úti gegn SJK
Seinäjoki í Finnlandi. Þar mætt-
um við mjög sterku liði og spiluð-
um vel, við tókum helling úr því
verkefni með okkur inn í fram-
haldið,“ sagði Willum Þór í samtali
við DV.
,,Við höfum verið að þétta
okkur aðeins, við erum skarpari í
allri pressu fram völlinn og erum
samstiga í henni. Við erum bein-
skeyttari fram á við, við höfum
í sumar haldið boltanum vel en
höfum verið hálfflatir í spilinu. Í
leiknum í Finnlandi og í Víkinni
um síðustu helgi vorum við skarp-
ari, við breyttum skipulaginu að-
eins og nýtum okkur það.“
Nýttu Evrópukeppnina vel
Það er þekkt stærð í knattspyrnu-
heiminum hér heima að Evrópu-
keppni getur gefið liðinu mik-
ið, það þjappar hópnum saman
að vera erlendis í nokkra daga
saman og getur búið til stemn-
ingu sem nýtist vel í deildinni
hér heima. „Það er algjörlega
þannig að svona ferðir geta virk-
að mjög vel, það þarf hins vegar
að vinna vel í þeim og nýta þetta
vel. Við KR-ingar gerðum það vel,
það er auðvitað draumur fyrir alla
knattspyrnumenn að taka þátt í
þessum stærri leikjum sem eru í
þessum Evrópukeppnum. Þú ert
að máta þig við leikmenn sem eru
frá öðru landi og mjög oft vel laun-
aðir atvinnumenn, þetta var ævin-
týri fyrir okkur.“
Hrósar Viðari Erni
Willum og félagar féllu úr leik í
Evrópukeppninni í síðustu viku
þegar Viðar Örn Kjartansson og
félagar hans í Maccabi Tel Aviv
höfðu betur í tveimur leikjum,
Viðar skoraði mark í fyrri leiknum
sem fram fór í Ísrael og þar hreif
hann Willum. „Fyrsti klukkutím-
inn í einvíginu við Maccabi var lík-
lega besti kaflinn okkar í sumar,
við vorum frábærir. Þetta er mjög
gott fótboltalið, stór klúbbur og
þarna eru hálaunaatvinnumenn.
Við spiluðum vel og héldum þeim
alveg frá markinu okkar og skor-
uðum mark eftir gott samspil, það
var sárt að halda ekki betur út. Við
vorum alveg inni í þessu verkefni
alla leið, og með hagstæðari úr-
slitum úti hefði trúin verið meiri
og þá veit maður aldrei hvað ger-
ist. Þeir í sjálfu sér opna okkur ekk-
ert í þeim mörkum sem þeir skora,
hraðinn er meiri og samspil þeirra
hratt. Aðstæður voru að auki fram-
andi fyrir okkur, gríðarlegur hiti
og raki. Þreytan fór að segja til
sín, þá missa menn metra og ein-
beitingu og mörkin verða til út af
því. Svo eru gæðin í þeirra leik til
að klára færin, sérstaklega hjá okk-
ar manni, honum Viðari Erni. Það
er ekki á færi hvers að gera eins og
hann gerði í markinu sínu gegn
okkur.“
Fékk loksins framherjann sem
hann vildi
Áður en keppni í Pepsi-deildinni
hófst reyndi Willum að bæta við
sóknarmanni í liðið sitt, það gekk
ekki og fór KR inn í mótið með
þunnskipaða framlínu. Auðvelt
var að loka á liðið en á dögun-
um fékk liðið André Bjerregaard
frá Danmörku og hann breytti
leik liðsins. „Hann kemur sterk-
ur inn og það var gott að fá mark
í hans fyrsta leik, hann gerir hell-
ing fyrir okkur. Við fengum þannig
meðmæli með honum að það
var ekkert annað í stöðunni en
að taka hann, hann gefur okkur
aukna vídd í sóknarleikinn. Þegar
hann kom settu menn út á það að
hann hefði ekki skorað nóg á ferl-
inum og að fyrsta snertingin væri
ekki nógu góð, hann kemur svo
í fyrsta leik og á frábæra fyrstu
snertingu og hvernig hann klárar
færið sitt í Víkinni er auðvitað bara
í heimsklassa. Við vildum fá þessa
týpu að framherja fyrir mót og við
vorum með tvo í sigtinu með svip-
aða eiginleika en það tókst ekki,
við eigum góða sóknarmenn en
ekki með þessa eiginleika. Þetta
hefur aðeins truflað leik okkar, við
höfum þurft að finna aðrar leið-
ir. Fyrir ári síðan vorum við með
Morten Beck Andersen sem vildi
sækja í svæðin og var stór og sterk-
ur, svo var Denis Fazlagic á kantin-
um sem var einn hraðasti leik-
maður deildarinnar. Við þurftum
því að breyta upplegginu.“
Tekur á en er skemmtilegt
Gengi KR hefur ekki verið gott í
sumar,eins og áður hefur komið
fram, hefur það tekið á andlega?
„Þetta er það skemmtilegasta sem
maður gerir, það er að takast á við
svona verkefni í fótbolta. Þetta tek-
ur auðvitað aðeins í þegar úrslitin
eru ekki að koma en verkefnið er
svo stórt og skemmtilegt. Þetta er
það sem maður hefur lifað fyrir og
verið að hrærast í alla tíð. Ef mað-
ur er ekki til í að takast á við erfiðu
stundirnar í fótboltanum þá verða
sælustundirnar ekki margar. Það
er stutt á milli í þessu Íslandsmóti,
það eru ekkert allt of margir leikir
og það er stutt á milli toppbaráttu
og botnbaráttu. Hjá okkur skipt-
ir öllu máli að taka einn leik í einu
núna og einbeita sér bara að næsta
verkefni. Ef þú nærð í tvo eða þrjá
sigra í röð breytir það stöðunni
mikið, mönum verður fótaskortur
ef þeir horfa of langt fram í tímann
og geta misstigið sig. Þetta er klisja
og ég veit það en klisjur verða ekki
til nema vegna þess að það er eitt-
hvað til í þeim.“
Erfiðara að skara fram úr
Í nútímaknattspyrnu er erfiðara
en áður að skara fram úr vegna
þess að hægt er að fá allar upp-
lýsingar um andstæðinga sína og
lesa í leik þeirra. „Það er liðin tíð
að maður geti verið duglegur og
mætt með blokkina á alla leiki og
skrifað niður og leikgreint þannig,
þannig gat maður haft forskot ef
maður var duglegur að mæta á alla
leiki. Núna fara menn bara í tölv-
una og geta hlaðið öllu niður nán-
ast beint eftir leik og klippt þetta til
og frá og sýnt mönnum, það vita
allir allt um allt. Það er líka kom-
ið í öll félög duglegt fólk sem er í
sjálfboðavinnu, fólk safnar fyrir
hörkuleikmanni og fleira í þeim
dúr. Það er miklu erfiðara í dag að
ná samkeppnisforskoti.“ n
Sælustundirnar ekki margar ef
þú ert ekki klár í að taka þeim erfiðu
n Willum Þór þekkir allar hliðar fótboltans n Erfiðir tímar í KR en það er að birta til
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Veit hvað þarf til að ná árangri Þrátt
fyrir að KR hafi ekki gengið vel í sumar efast
fáir um hversu öflugur þjálfari Willum Þór er.
MyNd dV SigTryggur Ari