Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 28
É
g tók píanótíma sem barn,
en svo pældi ég í raun ekkert
meira í tónlist fyrr en ég varð
19 ára,“ segir Soffía Björg. „Ég fór í
söngtíma árið 2006 og eftir þá hélt
ég áfram í tónlistinni og kláraði
tónsmíðanám í Listaháskólanum
árið 2014. Eftir það hef ég verið að
semja og koma fram og syngja.
Soffía Björg semur bæði eigin
lög og texta og gaf plötuna Soffía
Björg út á rafrænu formi í byrjun
ársins. „Mig langar að gefa hana út
á disk og plötu, en er ekki að flýta
mér að því. Núna er ég frekar að
fylgja henni eftir og koma fram og
syngja,“ segir Soffía Björg, sem er
jafnframt komin með nóg af efni
til að gefa út aðra plötu og rúmlega
það.
Meðan Soffía Björg og blaða-
maður tala saman er hún að keyra
frá heimili sínu að Langjökli þar
sem hún hefur unnið í eitt ár í
hlutastarfi við að kynna og sýna
ferðamönnum ísgöngin. Hún segir
það lítið mál að keyra oft langar
vegalengdir í nokkra tíma, bæði til
að koma fram á tónleikum og að
keyra til Reykjavíkur. „Það er ekk-
ert mál að keyra á milli, ég bý úti á
landi og keyri reglulega til Reykja-
víkur og þetta er orðinn vani. Það
er líka skemmtilegra að keyra úti á
landi en í Reykjavík, maður er mun
frjálsari.“
Hún hitaði upp fyrir Ásgeir
Trausta á tvennum tónleikum hans
í byrjun júlí á Hvammstanga. „Það
var gaman að hita upp fyrir Ásgeir,
þetta er band sem hefur ferðast og
spilað um allan heim og ég fann
fyrir pínu fiðringi að koma fram.
Stemningin var líka alveg frábær og
hlý, enda er Hvammstangi heima-
völlur Ásgeirs.“
Sannkölluð sveitastelpa og tónelsk
fjölskylda
Soffía Björg er sveitastelpa, fædd
og alin upp í stórum systkinahópi
á bænum Einarsnesi í Borgarfirði.
Hún flutti til Reykjavíkur þegar
hún fór í nám 19 ára gömul og bjó
í Reykjavík í tíu ár, þar sem hún
stundaði nám við þrjá tónlistar-
skóla.
„Það er frábært að búa hérna,
umhverfið er mjög fallegt og ég fæ
innblástur frá nátturunni og líður
best hér. Það er frábært að geta
unnið heima,“ segir Soffía Björg,
sem er með sína æfingaaðstöðu í
sólstofunni. Sumum hentar ekki
að vinna heima og fara að gera allt
annað en vinna, en Soffía Björg
segir svo ekki vera í sínu tilviki.
„Það er meira sem togar í mann í
Reykjavík, meira áreiti og ónæði.
Ég sæki frekar í að vinna og semja
heima og við hér erum vön því að
hafa líf í húsinu.
Fjölskyldan er svo sannar-
lega tónelsk, systkinin spila öll á
hljóðfæri eða syngja, þó að þau
vinni ekki við tónlistina. Bræð-
ur Soffíu hafa komið sér fyrir í
bílskúrnum þar sem þeir semja
rokktónlist. Móðir hennar, Björg
Karitas Bergmann Jónsdóttir, er
sópransöngkona og faðir hennar,
Óðinn Sigþórsson, er nýfarinn að
semja lög.
„Pabbi tók upp á því fyrir ári
síðan að semja lög og mamma
er sópran og með svakalegan
kraft. Við höfum sungið saman á
þorrablótum og þegar við syngjum
saman hlið við hlið, heyrist ekkert í
mér,“ segir Soffía Björg og hlær.
Móðuramma Soffíu Bjargar,
Soffía Karlsdóttir, var vinsæl
revíusöngkona fyrr á árum. „Það er
gott að hafa fyrirmyndir, því meiri
innblástur fær maður.“
Feimið barn sem steig á svið
Soffía Björg er miðjubarnið,
„feimna, hrædda miðjubarnið sem
braust út í tónlist,“ eins og hún
segir sjálf. En af hverju fer feimin
manneskja upp á svið að flytja tón-
list fyrir framan hóp af fólki? „Ég
gæti ekki hugsað mér aðra vinnu
þótt hún sé krefjandi og ég er búin
að vera í sjálfsskoðun í mörg ár.“
Soffía Björg ætlaði þegar hún
var 10 ára að verða rithöfundur og
segir hún að það sé eina starfið sem
hún man eftir að hafa ákveðið sem
barn. Segja má að sú ákvörðun hafi
ræst, þó á annan máta sé, því lög og
textar segja hlustendum sögur, þó
að það sé í öðru formi.
„Ástæðan fyrir að ég fór að
semja var sú að mér leiddist svo
að syngja alltaf það sama, það var
Hvert týnist
tíminn?
Eitt af því dýrmætasta sem við
eigum er tíminn, eða höfum að
láni, því líklega eigum við hann
ekki, annars myndi maður passa
upp á hann betur og ekki týna
honum eins oft og maður gerir.
Eða hvað?
Júlí er að klára og jólin eru
bara nýbúin, ég er bara nýorðin
fertug (er 46 ára) og ekki svo
langt síðan ég átti barn (hann
er að verða 24 ára). Af hverju
líður tíminn svona hratt og hvert
er hann eiginlega að flýta sér?
Grínlaust!
Þegar ég var barn var Mómó
ein af uppáhaldsbókunum
mínum (og er enn), yndisleg og
frábær bók eftir Michael Ende,
sem fjallar um tímaþjófana
og barnið Mómó, sem frelsar
tímann og færir hann mann-
fólkinu á ný. Þegar ég var barn
var tíminn líka alveg heillengi
að líða stundum, skóladagurinn
ætlaði aldrei að klára, svo maður
kæmist heim að leika, biðin eftir
jólunum var endalaus, biðin
eftir að fá bílprófið, komast inn á
skemmtistaðina ... Núna eru öll
skírteini og aldurstakmörk löngu
komin í hús og þá ákveður Herra
Tími að setja í rallígírinn og gefa
allt í botn: Formúla Líf í fullri
keppni og dagarnir einkennast
af mánudegi og helgi, hinir fjórir
týnast í reykmekkinum.
Ef einhver er með númerið
hennar Mómóar þá má sá hinn
sami lauma því að mér, því mig
vantar fleiri tíma í sólarhringinn.
En svo er kannski bara spurning
um að leyfa henni að njóta sín
áfram í bókum, slappa af, njóta
augnabliksins og ráðstafa tím-
anum í það sem mann langar að
gera, frekar en það sem maður
þarf að gera.
Kær kveðja, Ragna
ragna@dv.is
„NáttúraN og fyrirmyNdir
míNar gefa mér iNNblástur“
Soffía Björg semur tónlist á æskuheimilinu í Borgarfirði
Söngkonan, laga- og textahöfundurinn Soffía Björg
Óðinsdóttir er fædd og uppalin í átta systkina hópi á
bænum Einarsnesi í Borgarfirði. Þó að tónlistin hafi alltaf
gegnt stóru hlutverki á heimilinu ætlaði Soffía Björg að
verða rithöfundur þegar hún var barn og pældi ekki í
tónlist fyrr en hún varð 19 ára. Í dag semur hún eigin
lög og texta og flytur á tónleikum, milli þess sem hún
fræðir ferðalanga um ísgöngin á Langjökli.
ÆfingaaðStaðan er heima
Soffía Björg er með æfingaaðstöðu í
sólstofunni á Einarsnesi og segir að
það sé frábært að geta unnið heima.