Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Síða 30
The Dark Tower heimsfrumsýnd í Smárabíó Max
Meistaraverk Stephen King á
hvíta tjaldið
Margir segja The Dark Tower-bókaseríuna meist-
arastykki Stephens King, þar á meðal hann sjálfur.
Serían samanstendur af átta bókum sem komu út á
árunum 1982 – 2012. Í þeim samtvinnast fantasía, vís-
indaskáldskapur, hryllingur og vestrinn, ásamt mörgum
verka King. Það hefur lengi staðið til að mynda ser-
íuna og núna loksins er kvikmyndin komin og verður
heimsfrumsýnd á Íslandi þann 2. ágúst næstkomandi í
Smárabíó Max.
Myndirnar verða hinsvegar þrjár og á eftir hverri þeirra verður framleidd
sjónvarpssería sem brúa mun bilið
milli kvikmyndanna. Sagan fjallar
um byssumanninn og töffarann
Roland Deschain, The Gunslinger,
og ferðalag hans að hinum Myrka
turni, en hlutverk hans er að vernda
turninn sem heldur heiminum
saman. Byssumaðurinn stendur í
eilífri baráttu við Walter O´Dim eða
Svartklædda manninn, The Man in
Black, sem er verri en djöfullinn sjálf-
ur og hefur aðeins eitt markmið: að
fella turninn. Örlög heimsins eru því
í höndum byssumannsins, sem þarf
að sigra baráttuna milli hins góða og
hins vonda og bjarga turninum úr
klóm svartklædda mannsins.
Það eru tíu ár síðan viðræður
um tökur á myndunum byrjuðu og
líkt og gerist á svo löngum tíma hafa
margir verið orðaðir við leikstjórn,
handritsskrif og helstu hlutverk.
Meðal þeirra sem orðaðir voru við
hlutverk byssugarpsins voru Javier
Bardem, Viggo Mortensen, Christ-
ian Bale og Hugh Jackman. Það er
hins vegar Idris Elba sem hreppti
hlutverkið. Matthew McConaughey
er í hlutverki Svartklædda manns-
ins. Tom Taylor leikur hinn 11 ára
gamla Jake Chambers, drenginn sem
kynnist byssumanninum í hliðar-
heimi. Nikolaj Arcel leikstýrir og er
einn handritshöfunda ásamt Akiva
Goldsman, Jeff Pinkner og Anders
Thomas Jensen.
SvarTKlæDDi maðurinn og bySS
umaðurinn mcConaughey
og Elba í hlutverkum sínum.
FyrSTa úTgáFa Kápa fyrstu
útgáfu fyrstu bókarinnar 1982: The
gunslinger.
Oliver er nemandi í Portland í Oregon og byrj-aði að nota förðunarvörur
þegar hún var 13 ára. Það var þó
alveg í lágmarki, segir hún í viðtali
við Buzzfeed, þar sem ekki var vel
liðið að mæta förðuð í skólann. Í
febrúar síðastliðnum fór hún að
gera tilraunir með förðunarvörur
fyrir alvöru og í dag segist hún vera
alveg hugfangin af förðuninni.
Oliver dundaði sér bæði við
að teikna og mála áður, en fann
ástríðuna í förðuninni. Áhugasamir
geta fylgst með henni á Twitter
undir notandanafninu emilyslooks.
FiMMtán ára
förðunarsnillingur
Frægar stjörnur, blóm og fleira farðað sem augnförðun
Emily Oliver er aðeins 15 ára og nýbyrjuð að munda förðunarburstann, en hæfileikar
hennar fá marga þá sem eldri eru í bransanum til að blikna í samanburði. Sem augn-
förðun hefur hún meðal annars málað frægar stjörnur, persónur úr bókum og bíómynd-
um og blómabreiður.
FimmTán ára FörðunarSnillingur Oliver er aðeins 15 ára.
rihanna Þessi förðun er innblásin
af myndbandi Rihönnu við lagið Wild
Thoughts. Oliver var fjóra klukkutíma
með verkið. „Mig langaði að sýna hvað
ég elska Rihönnu mikið og setja smá
áskorun á sjálfa mig í leiðinni.“
líSa í unDralanDi
DirTy DanCing Kvikmyndin Dirty
Dancing fékk sitt verk.
bEyonCé Oliver varð flinkari og Beyoncé
tók bara tvo og hálfan klukkutíma.
líFSinS loSTi Þessi förðun er innblás
in af lagi Lönu Del Rey og The Weeknd,
Lust For Life.blómabrEiða Blóm eru alltaf falleg.hluTi a
F FörðunarSnillDinni