Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Síða 32
Í búðin er með sjö herbergi, þar af fjögur svefnherbergi og fjögur og hálft baðherbergi eins og segir í lýsingu hennar hjá fast- eignasölunni. Íbúðin er á tveimur hæðum, henni fylgir 140 fermetra garður og útsýnið yfir Hudson- ánna er stórfenglegt. Á meðal stjörnunágranna eru leikarinn Ben Stiller og fyrirsætan Irina Shayk. Sannarlega glæsileg eign á besta stað í New York. Jon Bon Jovi setur íBúð sína í nY á sölu Jon Bon Jovi, söngvari og forsprakki hljómsveitarinnar Bon Jovi, er greinilega að hugsa sér til hreyfings og nú fæst íbúð hans í West Village á Manhattan í New York fyrir klink. 17,25 milljónir dollara er verðmiðinn, sem er um 1,8 milljarður íslenskra króna. Íbúðaverð virðist hækka vestanhafs eins og hér heima, þar sem Jon Bon keypti íbúðina á 12,87 milljónir dollara árið 2015. Stofan Gluggarnir frá lofti niður í gólf einkenna íbúðina. BorðStofan Öll herbergi eru í sama bjarta, einfalda og flotta stílnum. BaðherBergi Það dugar ekkert minna en bað sem rúmar tvo. SvefnherBergi Öll svefn- herbergin eru á efri hæðinni. tvær hæðir Íbúðin er á tveimur hæðum með 140 fm garði. garðurinn Hér má sóla sig og njóta útsýnisins. ÚtSýnið Útsýnið er stórfenglegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.