Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 35
Elsku þið, ég er gríðarlega spennt yfir
þessu tækifæri og ætla að gera mitt
besta við að svara spurningum ykkar
í Birtu. Auk þess sem ég mun leyfa
ykkur að fylgjast með hvað drifið
hefur á daga mína með von um að
þið hafið af því gagn og gaman.
Draumar Sigrúnar Lilju hafa ræst einn
af öðrum
„Ég man þegar mig dreymdi um
að hanna og framleiða mína eigin
skólínu. Svo um að byggja húsið
mitt. Síðan að búa til mitt fyrsta
ilmvatn og svo tvö önnur. Að vera
meðrithöfundur í metsölubók er-
lendis og svo annarri. Um að hanna
fylgihlutalínu sérstaklega fyrir ís-
lenska verslunarkeðju og síðan aftur.
Að fá að ferðast til paradísarinnar á
Balí og fá að halda þar styrktarnám-
skeið fyrir konur og svo aftur og aft-
ur og aftur! Ég hef verið svo heppin
að hafa fengið að upplifa næstum alla
drauma sem ég hef haft hingað til og
með því sannað að ÞAÐ ER ALLT
HÆGT! Jafnvel þó að ferðalagið sé
búið að vera grisjótt og ég hafi ekki
fæðst með silfurskeið í munni, hef
ég upplifað marga sigra og ósigra. Ég
hef upplifað föll svo há að þau eru
lygasögu líkust. En jafnvel þó að lífið
ýti við þér og jafnvel hrindi þér eins
og það hefur nú gert við okkur öll þá
er það okkar að læra af mistökunum
og standa aftur upp á báða fætur
reynslunni ríkari og enn tilbúnari til
að takast á við og gera næsta draum
að veruleika.“
Sjálfsstyrking og sjálfsvinna er stöðug
vinna
Sjálfsstyrking og sjálfsvinna er
endalaus og maður útskrifast aldrei.
En hvað ef við gætum nú stjórnað
ferðinni svolítið í stað þess að þeytast
um með vindinum? Hvað ef við gæt-
um skapað okkar eigin veröld? Um
það snúast einmitt námskeiðin mín
og ferðin mín fyrir konur í Karíba-
hafinu í haust, að við stöldrum við
og skoðum hvað það er sem okkur
raunverulega langar í lífinu og förum
svo að skapa veruleikann í kringum
það. Þótt ótrúlegt megi virðast er
það hægt, við getum skapað okkar
eigin veruleika. Auðvitað koma upp
aðstæður sem við ráðum ekki við
og getum ekki stjórnað, en þá er oft
verið að reyna okkur fyrir stærri
komandi verkefni. Getum við haldið
áfram og sleppt tökunum á því sem
við stjórnum ekki? Það er ákveðin
list og það er oft erfitt, en það er
hægt. Ætlum við að láta aðstæður
sem aðrir hafa skapað sem eru okkur
í óhag stjórna því hvernig okkar
framhaldssaga verður? Ætlum við að
láta annað fólk stoppa okkur í því að
lifa lífinu sem okkur dreymir um?
Nei, takk! Við ráðum ferðinni og
enginn annar!
Erfiðleikar hafa þroskað Sigrúnu Lilju
sem á sér framtíðardrauma
Erfiðleikarnir sem ég hef stund-
um staðið frammi fyrir hafa sýnt
mér að ég get gert allt sem ég tek
mér fyrir hendur. Það eru engin
takmörk fyrir því hvað þú getur
gert þegar þú ert með fallegan
ásetning, sterka hugsjón og ert
tilbúin til að vinna vinnuna. Þá er
allt hægt!
Ég á mér svo marga framtíðar-
drauma sem ég get ekki beðið eftir
að strika út af listanum mínum. Ég
ætla að deila nokkrum með ykkur:
- Halda enskumælandi styrkingar-
námskeið fyrir konur út um heim
allan. - Halda ókeypis styrkingar-
námskeið fyrir konur í þriðja
heiminum svonefnda. - Kaupa
íbúð eða hús með sundlaug í fal-
legu umhverfi í sólarlandi þar sem
ég get unnið hluta úr vetri. - Halda
stór „Empower Women“-námskeið
á Íslandi með konum sem eru mér
og öðrum miklar fyrirmyndir. -
Skapa nýjar og fallegar vörur
fyrir allar gyðjurnar í þessum
heimi.
Ert þú með spurningar til Sigrúnar
Lilju?
Sendu mér línu með vanga-
veltum og spurningum á
Snapchat: theworldofgydja eða
á Facebook: Sigrun Lilja Gydja
Gudjonsdottir og Sigrún Lilja
mun gera sitt besta að svara
þeim vel. „Sjáumst svo á næsta
Empower Women-námskeiði
hér á Íslandi eða styrkingar-
námskeiði í Karíbahafinu
og komum okkur að verki
því draumarnir þínir bíða
spenntir eftir að þú setjir
„tékk” við þá,“ segir Sigrún
Lilja.
Fyrir ykkur sem viljið
kynna ykkur ferðina í Karí-
bahafið í haust, eru allar upp-
lýsingar á facebooksíðunni
empowerwomensretreat.
Með Ísey og skriðu. Siberian
husky-hundarnir sem sigrún og reynir
eiga.
Auglýsing fyrir HeklA ilM-vAtn. Hekla er eitt af þeim ilmvötnum sem sigrún lilja hefur þróað undir merki gyðja Collection.
PArAdÍs á BAlÍ sigrún lilja hélt
sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur á
Balí.