Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 37
Fatahönnuðurinn, fjögurra barna móðirin og fyrrum Kryddpían Victoria Beck-
ham póstaði nýlega myndum á
Instagram þar sem sjá má dóttur
hennar, Harper sem er sex ára, leika
sér með Spice Girls-dúkkur. „Þegar
þú uppgötvar að mamma þín var
poppstjarna,“ skrifar Victoria á
myndina.
„Harper elskar Spice Girls-
dúkkurnar. Kryddaðu líf þitt.“
Spice Girls-dúkkurnar komu
á markað á árunum 1997 til 1999
í átta mismunandi útgáfum.
Stúlknasveitin Spice
Girls var stofnuð
1994 og í henni
voru auk Victoriu,
Melanie Brown,
Melanie Chisholm,
Emma Bunton
og Geri Halliwell.
Sveitin er söluhæsta
stúlknasveit til þessa,
ein af söluhæstu
sveitum allra tíma
og sú stærsta í sögu
Bretlands, að Bítlun-
um frátöldum.
Dóttir Beckham leikur sér með Spice Girls-dúkkur
„Þegar Þú uppgötvar að
mamma Þín var poppstjarna“
Fjölskyldan Eiginmaðurinn david Beckham og börnin
fjögur: Brooklyn joseph, 18 ára, Romeo james, 14 ára,
Cruz david 12 ára og Harper seven, 6 ára.
Bíó: mæður sletta úr klaufunum
Fun Mom Dinner sýnd í Sambíóunum
mömmur þurfa af og til frí frá móðurhlutverkinu, skella sér út með vinkonunum
og sleppa fram af sér beislinu. Það er bara staðreynd að engin þerapía er
jafngóð og góð kvöldstund með bestu vinkonunum sínum. fjölmargar mið-
góðar myndir hafa verið gerðar um akkúrat slíkar kvöldstundir og þann 2.
ágúst verður sú nýjasta frumsýnd í sambíóunum: fun mom Dinner. myndin er
sannkölluð konumynd, með konur í aðalhlutverkum, leikstjórn og handritsgerð.
Myndin fjallar um fjórar mæður sem eiga börn á sama leikskóla, en
þekkjast lítið að öðru leyti, sem
ákveða að fara út að borða saman.
Það sem átti að vera fínt kvöld
út að borða, vindur hinsvegar
aðeins upp á sig með kostulegum
afleiðingum.
Hinar mæðurnar leika Molly
Shannon, gleðisprengjan sem þekkt
er úr Saturday Night Live-þáttun-
um og hinar minna þekktu hér
heima, Katie Aselton og Bridget
Everett. Julie Rudd skrifar handrit
og eiginmaður hennar, leikarinn
Paul Rudd, leikur „cameo“-hlut-
verk og er hans ekki getið á plakati
myndarinnar.
Myndin skartar líka einni
poppstjörnu í leikarahópnum, en
söngvari Maroon 5, Adam Levine,
leikur eitt aðalhlutverkanna. Hann
er ekki alveg óvanur leiklistinni,
því hann lék til að mynda í fyrstu
seríu American Horror-sjónvarps-
þáttanna.
Það er tilvalið fyrir vinkonur,
frænkur, systur og mæðgur að bóka
gott kvöld saman, fara út að borða
og sjá síðan Fun Mom Dinner í
Sambíóunum.
Toni ColleTTe Að öðrum ólöstuðum ska
rtar myndin hinni frábæru áströlsku Toni
Collette í einu aðalhlutverkanna. Hún var
ð fyrst þekkt fyrir hlutverk sitt sem hin ófram
-
færna Muriel í Muriel ś Wedding, sem k
om út 1994. Síðan þá hefur hún leikið mör
g
hlutverk, sem hafa vakið mismikla athygli,
sem dæmi má nefna myndirnar The sixth
sense (1999) og little Miss sunshine (
2006), sem báðar voru vinsælar meðal ga
gn-
rýnenda og áhorfenda.
Fyndin kvöldsTund Fun Mom Dinner er frumsýnd 2. ágúst í Sambíó-unum.
Hinar mæðurnar leika Molly shannon, gleðisprengjan sem þekkt er úr Saturday Night Live-þáttunum og hinar minna þekktu hér heima, katie aselton og Bridget everett. julie Rudd skrifar handrit og eiginmaður hennar, leikarinn Paul Rudd, leikur „cameo“-hlutverk og er hans ekki getið á plakati myndarinnar.
Vinningshafar í
Dunkirk-bíóleiknum
Vinningshafar í Dunkirk-
bíóleiknum: Í Birtu þann 21.
júlí síðastliðinn gáfum við
bíómiða á myndina Dunkirk
sem sýnd er í Sambíóunum.
Þrír vinningshafar hafa verið
dregnir út, sem fá tvo miða
hver og hafa þeir verið látnir
vita með tölvupósti. Þeir eru:
Ásta Bjarney Hámundar-
dóttir Vestmann, Ingunn
Unnsteinsdóttir og Örvar
Árdal Árnason