Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Qupperneq 38
Gráir oG fölir litir Ef þú velur gráa og
föla liti þá leitar þú að ró og jafnvægi í lífinu. Stíll-
inn þinn er tímalaus og frekar hefðbundinn, eins og
þú. Þú ert einstaklingur sem ætti ekki að vanmeta
og þú afsannar oft skoðanir annarra og kemur fólki
sífellt á óvart með hæfileikum þínum og gáfum. Ef
það eru örfáir hlutir í svefnherberginu þínu, sem
eru í björtum litum, eins og púði, lampi eða teppi,
þá býr dálítill púki í þér líka.
Bjartir oG sterkir litir Svefnherberg-
ið endurspeglar skemmtilegan og líflegan
persónuleika þinn og frábæran húmor. Þú
ert sjálfstæður einstaklingur, sem er vanur að
gera hlutina á eigin forsendum og á í nánu
sambandi við vini og fjölskyldu. Ævintýraþrá
þín birtist í björtum og sterkum litatónum.
Hvað segir liturinn á
svefnherberginu um þig?
jarðlitir Svefn-
herbergisliturinn
þinn endurspeglar
persónuleika þinn og
hversu jarðbundin þú ert
auk náins sambands þíns
við vini þína og ættingja.
Þú ert ótrúlega áreiðan-
legur, trúr og auðveldur í
umgengni, þannig að þér
kemur mjög vel við flesta
og líkar illa við rifrildi og
árekstra. Svefnherbergið
þitt er róandi staður,
þar sem þú velur að
tengjast fólki hvort sem
það er með löngu símtali
liggjandi uppi í rúmi eða
með nánari samskiptum
bak við lokaðar dyr.
Mynstur oG fullt af skrauti Þú ert opin persóna, með dásamlegt og stundum skrítið ímyndunarafl. Svefnherberg-
ið er fullt af minningum og hlutum sem minna þig á fyrri ævintýri. Þú býrð yfir skapandi persónuleika og ert rómantískur,
þannig að svefnherbergið er staður fyrir bæði villta drauma og daður.
Persónulegur stíll okkar
birtist á heimilum okkar, í
húsgögnum, innanstokks-
munum og litavali. Á það
við um öll herbergi heimil-
isins og sérstaklega svefn-
herbergið sem flest okkar
velja að gera eins notalegt
og þægilegt og frekast er
kostur.
Litavalið og stíllinn í svefnher-berginu getur sagt ýmislegt um okkur. Og hér eru nokkur
dæmi, lýsir þitt svefnherbergi þín-
um persónuleika?
Hvíti liturinn ræður Ef hvíti liturinn er í fyrirrúmi, ertu einstaklingur
sem þráir stöðugleika og notar svefnherbergið til slökunar og til að flýja undan
streitu og álagi hversdagsins. Þú velur að umgangast fólk sem er rólegt og
afslappað, en líður einnig vel í eigin félagsskap.
svartur litur Þú hefur valið dramatískan lit fyrir svefnherbergið. Þú þráir
einkalíf og vilt að fólk virði persónulegt svæði þitt. Líkur eru á að „Haltu þig
úti“-skilti eða samsvarandi hafi hangið á hurðinni þegar þú varst unglingur. Þú
ert sjálfstæður og sterkur einstaklingur, og þú segir aðeins þínum nánustu og
traustustu vinum leyndarmál þín.