Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 42
Fönkrokk-veisla í Höllinni
Red Hot Chili Peppers á leið til landsins
Ísland er fyrir löngu síðan orðið að sviði fyrir stórhljóm-
sveitir að troða upp á og hvert risanafnið á fætur öðru
hefur nýlega heimsótt okkur eða er á leiðinni til Íslands.
Eitthvað sem var, fyrir ekki svo mörgum árum síðan,
sjaldséður viðburður hér á landi. Næsta mánudag er
komið að einni af farsælustu hljómsveitum sögunnar að
trylla tónleikaaðdáendur þegar strákarnir í Red Hot
Chili Peppers stíga á svið í Nýju Laugardalshöllinni.
Bandaríska rokksveitin Red Hot Chili Peppers var stofnuð í Los Angeles
árið 1983. Meðlimir hennar í dag
eru Anthony Kiedis söngvari,
Flea bassaleikari, Chad Smith
trommari og Josh Klinghoffer
gítarleikari.
Red Hot Chili Peppers eru
ein af farsælustu hljómsveitum
sögunnar, þeir hafa selt yfir 80
milljón plötur á heimsvísu, en
sveitin hefur gefið út 11 stúdíó-
plötur, þrjár tónleikaplötur og 12
safnplötur, ásamt fleira efni. Red
Hot Chili Peppers hefur verið
tilnefnd til 16 Grammy-verð-
launa (unnið sex þeirra) og þegar
Billboard-listinn bandaríski er
skoðaður þá hafa þeir átt flest lög
í fyrsta sæti (13 talsins), flestar
vikur í fyrsta sæti (85) og flest
lög á topp tíu listanum (25 lög).
Árið 2012 voru þeir innvígðir í
frægðarhöll rokksins.
Sveitin átti ekki miklum
vinsældum að fagna í upphafi,
en fjórða plata þeirra, Mother´s
Milk, sem kom út árið 1989,
vakti loksins athygli á þeim þegar
platan komst í 52. sæti Billboard-
listans. Fimmta platan, Blood
Sugar Sex Magik, sem kom út í
september 1991, varð afar vinsæl
og þá sérstaklega lagið Under the
Bridge að öðrum lögum ólöst-
uðum.
Með lógó sveitarinnar flúrað á sig
Einn af aðdáendum Red Hot
Chili Peppers hér á landi er Þór
Tjörvi Þórsson sem fæddur er
1977 og ætlar hann ekki að láta
sig vanta á tónleikana. „Ég byrj-
aði að hlusta á þá um 1992, þegar
ég var 15 ára, þá var maður að
hlusta á Blood Sugar Sex Magik
og Achtung baby-plötu U2 á
sama tíma. Ætli bróðir minn sem
er þremur árum eldri hafi ekki átt
þær.“
Kona Þórs er ekki jafnheitur
aðdáandi að hans sögn, en hlust-
ar samt og sonurinn, sex ára, er
farinn að syngja „Give it Away“.
Vinir hans eru líka aðdáendur.
Þór er einnig með lógó Red Hot
Chili Peppers flúrað á úlnliðinn.
Þór á allar plötur Red Hot
Chili Peppers og hefur farið á
þrenna tónleika með þeim áður,
tvisvar í Kaupmannahöfn og
einu sinni í Coventry, Englandi.
„Síðast fór ég á tónleika 2006.
Ég fylgist alltaf með þeim og hef
alltaf taugar til þeirra. Ég læt
mig ekki vanta á tónleikana á
mánudaginn og er spenntur fyrir
kvöldinu.“
EinlæguR aðdáandi Þór Tjörvi Þórs-
son er einn af mörgum aðdáendum sveitarinnar
hér á landi.
SvEiTin í dag anthony Kiedis
söngvari, Flea bassaleikari, Chad
Smith trommari og Josh Klinghof-
fer gítarleikari skipa Red Hot Chili
Peppers.