Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 44
Lífið á ísskápshurðinni
- Alice Kuipers
Lífið á ísskápshurðinni er fyrsta bók Kuipers og
hefur hún unnið til fjölda ungmennaverðlauna og
verið sett upp á sviði í London, Japan og Frakk-
landi. Sagan er saga mæðgna og sögð með
minnismiðum og „post-it“ miðum móður og 15 ára
gamallar dóttur hennar, skrifaðir fyrir og á meðan
þær ganga í gegnum fjölskylduharmleik. Bók um
ljúfsárt samband móður og dóttur sem hafa of
lítinn tíma hvor fyrir aðra í önnum hverdagsins
og þrátt fyrir að um sé að ræða ungmennabók
(young adult) á bókin erindi við lesendur á öllum
aldri.
Bókataskan:
Bráðnauðsynlegur
ferðafélagi
Bækur sem tilvalið er að taka með í fríið, heima og heiman
ritstjóri Birtu er gríðarlegur bókaormur eins og vinir hennar vita og bækur eru alltaf
bráðnauðsynlegar, Jafnt hverdags sem og í ferðalagið. Birta pakkaði ofan í tösku
nokkrum nýjum bókum til að taka með í ferðalagið, bæði íslenskum og þýddum,
eftir nýja og reyndari höfunda, bækur sem ritstjórinn er búinn að lesa eða langar að
lesa.
Ljótur leikur - Angela Marsons
Breska lögreglukonan Kim Stone og undirmenn hennar eru tiltölulega ný í bókahillum landsins, en
Ljótur leikur er önnur bókin sem kemur út á íslensku. Það er þó alveg tilvalið að kynnast Kim, því hér
er um að ræða fantagóðar og vel skrifaðar glæpasögur um áhugaverðar persónur. Bækur sem gefa
norsku þrillerunum ekkert eftir. Alls eru komnar út sex bækur um Kim og mun sú þriðja þýdd á íslensku
koma út seinna á árinu.