Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Page 46
Helgarblað 28. júlí 2017 KYNNING
HeIlsa oG útlIt
Hlúðu að líkama og sál
Snyrti- og heilsustof-an Heilsa og útlit, að Hlíðasmára 17 í
Kópavogi, sérhæfir sig í því
að hlúa bæði að líkama og
sál með notkun nýjustu og
framþróuðustu tækja og
efna. sandra lárusdóttir,
sem er menntaður einka-
þjálfari, stofnaði fyrirtækið
sumarið 2014 og hefur það
á skömmum tíma náð að
festa sig í sessi með sér-
hæfðum meðferðum sem
bæta vellíðan, útlit og heilsu.
„okkar markmið er að við-
skiptavininum líði sem best
með sjálfan sig og að hann
njóti sín í rólegu og afslapp-
andi umhverfi hjá okkur.
Það er svo bónus ef útlitið
lagast líka,“ segir sandra.
sandra er umboðsaðili fyrir
heilsuvöruframleiðandann
Weyergans, en þeir fram-
leiða hágæðatæki fyrir
hvers kyns sogæðameð-
ferðir sem sandra notar í
meðferðum sínum hjá Heilsu
og útliti. „Við sérhæfum okk-
ur í sogæðameðferðum og
ber öllum hér skylda til þess
að læra á allar meðferð-
irnar. en einnig bjóðum við
upp á aðrar meðferðir eins
og húðmeðferðir, vax og
fitufrystingu,” segir sandra.
IONO-JET súrefnisvél fyrir
húðina
súrefnisvélin er fyrsta vélin
sem hægt er að nota í allt
sem viðkemur húðinni. Í nú-
tímasamfélagi verður húðin
daglega fyrir margs konar
skaðlegum áhrifum, þar má
telja upp mataræði, eðlilegt
öldrunarferli og ýmsa um-
hverfisþætti sem setja mark
sitt á húð okkar. IoNo-Jet
er einstök og víðfeðm súr-
efnismeðferð fyrir allsherjar
húðfegrun og spornar gegn
öldrunarmerkingu húðar.
Þá er hægt að stilla vélina
á fimm meðferðarleiðir, það
er:
Djúphreinsun (e. Peeling)
með áhrifaríkum ensímum.
Húðlýsing á litablettum eða
öldrunarflekkjum. Húðnær-
ing fyrir húðina. Húðlyfting
fyrir slappa húð. Húðafeitr-
un (e. Detox) sem gefur húð-
inni ljóma. Hægt er að vinna
vel á hvers kyns bóluvanda-
málum og fílapenslum.
IoNo-Jet tækið er
framleitt í Þýskalandi og er í
stöðugri notkun hjá Weyerg-
ans-stofnuninni. Þessi
nútímatækni er einstök og
nýtist sérlega vel í meðferð-
um gegn hinum fjölmörgu
húðvandamálum. tæknin
nýtist bæði í stök skipti til
húðfegrunar og fyrir heilar
kúrmeðferðir á erfiðari húð-
vandamál, þar sem teknir
eru fleiri tímar með tækinu
með reglulegu millibili. eins
má nýta meðferðirnar með
tilliti til árstíðabundinna
breytinga á húðinni. „Þær
meðferðir sem IoNo-Jet
býður upp á eru allar algjör-
lega sársauka- og skað-
lausar og því er ekki nokkur
hætta á að viðskiptavinur
gangi út af stofunni okkar
með rauða og sára húð.
Þetta er eina vélin sem nota
má til að skrúbba augnlokin,
sem segir töluvert um hvað
þetta er mikið undratæki,“
segir sandra. Notast er við
rafgas og mismunandi nátt-
úruleg efni svo sem hreina
plöntusterkju, ákveðin
serum, amínósýrur, sérvalin
vítamín og stofnfrumur sem
öll eiga það sameiginlegt að
hafa mjög afgerandi virkni í
sjálfri húðmeðferðinni.
Vacu Sport byggir á geimvís-
indum
Vacu sport hentar meðal
annars íþróttamönnum og
fólki með skert blóðflæði.
Þekkt er að eftir hvers kyns
slys, meiðsli og aðgerðir,
virki heilunar- og bataferli
líkamans hægar en vana-
lega. afleiðingar eftir slík
áföll eru meðal annars aukin
vökvasöfnun og bjúgmynd-
un. Æðakerfi líkamans er þá
oft undirlagt í marga daga
og algengt er að blóðrás-
ar- og sogæðatruflanir geti
jafnvel varað árum saman.
en með tilkomu Vacu sport-
vélarinnar frá Weyergans
High Care er hægt að flýta
bataferli líkamans svo um
munar. tæknin var upphaf-
lega þróuð til að koma í veg
fyrir blóðrásarvandamál
hjá geimförum sem vinna
í þyngdarlausu umhverfi.
Með Vacu sport er hægt
að minnka bjúgmyndun
hratt og endanlega. Þar fer
fram taktfast þrýstings- og
lofttæmisnudd á æðakerf-
inu sem stóreykur blóðflæði
í æðum og vöðvum þannig
að svæði, sem hafa orðið
fyrir meiðslum, jafna sig
mun fyrr. Þannig fær lík-
aminn meira súrefni til sín
og næringin skilar sér betur
út í frumurnar. Meðferðin
kemur þér mun fyrr í betra
form og bætir heilsuna með
því að hraða endurhæf-
ingu og endurnýjun þeirra
svæða sem þurfa á því
að halda. Meðferðin hef-
ur einnig sannað sig gegn
langvarandi verkjum eins
og gigt og liðavandamál-
um. „Fólk finnur töluverðan
mun á sér í öllum líkamanum
eftir að hafa fengið meðferð
hjá okkur. Það má einnig
minnast á að fjölmargir
íþróttamenn nota Vacu
sport reglulega til að hjálpa
líkamanum að jafna sig eftir
íþróttameiðsl. Fótboltamað-
urinn Ronaldo á til dæmis
tvö svona tæki heima hjá
sér og notar á hverjum degi.
einnig notar portúgalska
landsliðið í fótbolta Vacu
sport-tækið á leikmenn
sína með góðum árangri.
úti í heimi meðhöndla
sjúkraþjálfarar, læknar og
aðrir meðferðaraðilar alls
konar fólk, allt frá ungum
íþróttamönnum til aldraðra
einstaklinga með skert blóð-
flæði, með Vacu sport, enda
eru áhrifin ótrúleg. Vacu
sport virkar svo einnig í bar-
áttunni gegn appelsínuhúð,“
segir sandra.
Súrefnishjálmur
„ein af vinsælustu með-
ferðunum okkar er húðmeð-
höndlun í súrefnishjálmin-
um,“ segir sandra. Um er
að ræða einstaka meðferð
sem er 100% náttúruleg og
mjög fljótvirk. Í meðferðinni
er unnið með oxun þar sem
neikvæðar súrefnisjónir
draga til sín súrefni í and-
rúmsloftinu. orkan sem
myndast við samrunann
er leidd inn í höfuðhlífina
sem virkar eins og ox-
unarhjúpur utan um and-
litið. Þannig vinnur orkan
sér leið inn undir húðina og
örvar sellulósaskiptin sem
eru nauðsynleg til að húð-
in geti gegnt sínu hlutverki
sjálf, eins og uppbyggingu,
hreinsun, viðhaldi, stinningu
og styrkingu. Á meðan með-
ferðaraðilinn andar orkunni
að sér í gegnum munn og
nef, nýtist súrefnisflæðið
einnig öllum líffærum og ekki
síst heilanum. Þar sem engin
aukaefni eru nýtt í með-
ferðinni er hún fullkomlega
náttúruleg.
Meðferðin er viðurkennd
af þekktum húðmeðferðar-
stofnunum í Þýskalandi og
hentar viðskiptavinum vel
sem gera miklar kröfur til
öldrunarmeðferða og vilja
sjá skjótan árangur. Í mörg-
um tilfellum er árangurinn
merkjanlegur strax eftir
fyrsta tímann.
„Helga Möller, söngkona
og flugfreyja, er í meðferð-
um hjá okkur. Helga vinnur
á mjög óreglulegum tím-
um, bæði er hún að syngja
seint á kvöldin og svo er
hún í fluginu. Þessi vinnu-
tími getur tekið á og þá
sérstaklega ameríkuflugið,
þá finnur hún fyrir bjúg og
fótapirringi. Þá finnst henni
sérstaklega gott að koma í
Heilsu og útlit í Vacu sport-
þrýstingstækið og henni
líður líka alltaf vel eftir veru
í súrefnishjálminum,“ segir
sandra.
Fleiri meðferðaraðilar úti um
allt land
„Þrjár stofur nota tæki
frá okkur: Heilsustofan
Weyergans studio á siglu-
firði, Heilsu & Fegrunarstofa
Huldu í Borgartúni og Heilsa
og líðan á akureyri,“ segir
sandra.
Heilsa og útlit er stað-
sett að Hlíðasmára 17, 201
Kópavogi. afgreiðslutími
er alla virka daga kl. 9–18
Hægt er að hafa samband
með því að hringja í síma:
562-6969 eða senda
tölvupóst á sandra@heilsa-
ogutlit.is Nánari upplýsingar
má nálgast á vefsíðu Heilsu
og útlits og á Facebooksíðu
þeirra.
Súrefnishjálmur 100% náttúruleg
meðferð.
Iono jet súrefnisvélin er fyrsta vélin
sem hægt er að nota í allt sem við-
kemur húðinni. Mynd sigtryggur ari
Vacu Sport Hentar meðal annars íþróttamönnum og fólki með skert
blóðflæð Mynd sigtryggur ari
Fyrir meðferð. eftir fimm skipti í IoNo-Jet.