Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 56
32 lífsstíll Helgarblað 28. júlí 2017
Petra Baldursdóttir er ein af þeim 25 stúlkum sem taka þátt í Ungfrú Ísland í ágúst
Í sumar vinna keppendur Ungfrú Ísland 2017 hörðum höndum að því að koma
sér í gírinn fyrir keppnina sem verður haldin þann 26. ágúst næstkomandi í
Hörpu. Petra Baldursdóttir er ein þeirra. Petra hefur lengi haft mikinn áhuga á
fegurðarsamkeppnum og lengi langað að taka þátt sjálf. Draumurinn varð að
veruleika þegar hún var valin úr hópi 200 umsækjenda til að taka þátt síðast-
liðið vor. Petra kveðst hafa lært mikið frá því að æfingar fyrir keppnina hófust og
er þakklát fyrir að vera hluti af hópnum. Hér að neðan má lesa smákynningu um
Petru.
Nafn
„Petra Baldursdóttir.“
Aldur
„18 ára.“
Menntun
„Ég er á þriðja ári í Borgarholts-
skóla.“
Af hverju ákvaðst þú að taka
þátt í Ungfrú Ísland?
„Í gegnum tíðina hef ég fylgst
mikið með fegurðarsamkeppn-
um. Mér finnast þær mjög
áhugaverðar. Út frá því hvernig
stelpur sem hafa tekið þátt segja
frá sínu ferli langaði mig að skrá
mig í keppnina og fá að upplifa
það sama og þær fengu að gera.
Ég lét samt engan vita þegar ég
skráði mig. Nokkru síðar var
ég, ásamt 200 öðrum stelpum,
boðuð í viðtal. Það gekk mjög vel
og nokkrum dögum síðar fékk ég
að vita að ég hefði verið valin til
þátttöku í Ungfrú Ísland 2017.“
Hvernig hefur ferlið verið
hingað til?
„Þetta er frábær lífsreynsla og ég
væri til í að upplifa þetta aftur og
aftur. Við höfum gert svo margt
saman og erum orðnar mjög
góðar vinkonur. Við stöndum
allar saman. Ég gæti aldrei kom-
ist í gegnum þetta án þessara
stelpna.“
Ertu farin að spá í hvernig kjól
þú ætlar að vera í á loka-
kvöldinu?
„Ég hef skoðað óendanlega
marga kjóla. Þetta er mögu-
lega það erfiðasta sem ég hef
nokkurn tíma gert. Það að velja
prinsessukjól er ekkert grín.
Ég veit að þónokkuð margar
stelpur í keppninni eru komnar
með kjól en ég er enn að skoða
þetta.“
Hvenær er lokakvöldið ?
„Það verður 26. ágúst í Hörpu.“
Hefur þú fundið fyrir fordómum
hjá fólki?
„Já, maður finnur fyrir miklum for-
dómum hjá fólki. Margir reyna að
rakka okkur niður á samfélags-
miðlum. Ég reyni að horfa fram hjá
því. Það er samt stundum erfitt að
horfa upp á fólk eyða tíma sínum
í að drulla yfir keppendur eða
keppnina sjálfa. Svo hugsar mað-
ur oft að þetta gætu verið stelpur
sem komust ekki áfram eða fólk
sem nærist á leiðindum á netinu og
elskar að vera leiðinlegt við annað
fólk. Svo er líka fólk sem hefur bara
sínar skoðanir og það er allt í lagi.
Oftar en ekki er þó verið að alhæfa
um atriði sem fólk veit ekkert um.“
Hvað hefur þú lært í keppninni
hingað til?
„Ég hef lært að vera ég sjálf þegar
ég kem fram. Við erum mikið á
gönguæfingum þar sem við lærum
að ganga á hælum og hvernig við
eigum að beita okkur í keppninni.
Ég hef líka lært að láta mér standa á
sama um það sem öðrum finnst. Ég
er í þessari keppni fyrir mig sjálfa,
engan annan.“
Hver heldur þú að verði ávinning-
ur þinn af þátttöku í keppninni?
„Ég hef öðlast mikla reynslu í að
koma fram opinberlega. Hugsa
vel um mig, rækta sjálfstraustið.
Til dæmis opnaði ég snappið
mitt í byrjun sumars. Þar segi
ég frá sjálfri mér og því sem ég
er að gera hverju sinni. Í byrjun
var þetta með því erfiðasta sem
ég hef gert í lífinu. Það tók mig
næstum viku að setja mynd-
band í My Story þar sem ég er
sjálf að tala. En í dag er mér al-
veg sama og það gengur mjög
vel.“
Snap : petrabaldursd99
Instagram : petra_baldurs
Ekkert grín að velja prinsessukjól„Margir
reyna að
rakka okkur niður
á samfélagsmiðl-
um