Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 58
34 Helgarblað 28. júlí 2017
M
artha Gellhorn ólst upp
í St. Louis. Faðir hennar
var virtur læknir og
móðir hennar var náin
vinkona Eleanor Roosevelt for
setafrúar, sem kom alla tíð fram
við Mörthu eins og dóttur sína.
Ein af uppeldisaðferðum for
eldranna var að banna Mörthu
og þremur bræðrum hennar að
slúðra og tala um peninga. Það
átti einungis að ræða staðreyndir
og ef ágreiningur kom upp var
leitað í alfræðibækur.
Árið 1929 þegar Martha var
tuttugu og eins árs ákvað hún að
verða fréttaritari. Hún flutti til
Parísar og gerðist ástkona ritstjór
ans Bertrand de Jouvenel sem var
kvæntur þegar þau hittust. Hann
var stjúpsonur skáldkonunnar
Colette sem fullyrt var að hefði
dregið hann á tálar þegar hann
var ungur maður. Þegar Martha
sneri aftur til Bandaríkjanna árið
1934 voru þau Bertrand skilin.
Martha ferðaðist um Banda
ríkin og kynnti sér ömurleg kjör
fátæks fólks, ræddi við það og
skrifaði um upplifun sína. Hún
talaði meðal annars við börn
sem voru aðframkomin af nær
ingarskorti. Hún skrifaði grein
ar um þann ömurleika sem
bar fyrir augu hennar og síðan
bókina The Trouble I've Seen.
Rithöfundurinn H.G. Wells út
vegaði Mörthu útgefanda að
þeirri bók og skrifaði formála að
henni. Bókin fékk frábæra dóma
og færði Mörthu mikla frægð.
Sagt er að Wells og Martha hafi
verið elskendur en þegar sonur
Wells vildi segja frá sambandi
þeirra í ævisögu föður síns hótaði
Martha honum lögsókn.
Varanlegur heilahristingur
Martha var tuttugu og átta ára
þegar hún kynntist rithöfund
inum Ernest Hemingway sem
hvatti hana til að koma með sér
til Spánar þar sem hann ætlaði að
vinna sem fréttaritari í borgara
stríðinu. Martha slóst í för með
honum og skrifaði áhrifamiklar
og persónulegar greinar um
borgarastríðið.
Eiginkona Hemmingway,
Pauline, komst að ástarsambandi
manns síns og Mörthu þegar hún
fann mynd af Mörthu í farangri
hans eftir komu hans frá Spáni.
Í þrjú ár neitaði Pauline hon
um um skilnað en lét loks und
an. Hún giftist ekki aftur og var
full beiskju. Hún lést árið 1951,
56 ára gömul. Hemingway sagði
seinna að hann hefði verið fífl að
yfirgefa hana og tvo syni þeirra
fyrir Mörthu.
Hjónaband Mörthu og
Heming way var stormasamt.
Hún var á stöðugum ferðalögum
á stríðsárunum sem fréttaritari og
Hemingway sakaði hana um að
vera eigingjarna og of metnaðar
fulla. Á þessum tíma skrifaði hún
meðal annars áhrifamikla frétta
skýringu um heimsókn í Dachau í
maímánuði 1945. Þar sagðist hún
í fyrsta sinn hafa skilið hversu
ill manneskjan gæti verið. Áður
hafði hún trúað því að sannleik
ur, réttlæti og kærleikur myndi að
lokum sigra allt. Nú trúði hún því
ekki lengur. „Það var eins og ég
hefði gengið inn í Dachau og fall
ið fram af klettum og hlotið var
anlegan heilahristing án þess að
vita af því,“ sagði hún.
Misheppnuð hjónabönd
Martha yfirgaf Hemingway eftir
sjö ára samband. Hann skrifaði
vini sínum og sagði að mestu mis
tök lífs síns hefðu verið að giftast
henni. „Ég skil ekki hvað frægðin
gerir fólki,“ sagði Martha seinna
á ævinni. „Ernest var skemmti
legur. Svo hætti hann að vera
það." Eftir skilnað þeirra brást
hún venjulega illa við þegar nafn
hennar var tengt við nafn Hem
ingway. Þegar hann framdi sjálfs
morð sagðist hún skilja að hann
hefði ekki viljað halda áfram að
lifa, þrotinn að andlegri og líkam
legri heilsu. Sjálf átti hún eftir að
standa í sömu sporum.
Hún giftist fyrrverandi rit
stjóra Times, Tom Matthews.
Hjónabandinu lauk með skiln
aði. Hún sagði vini sínum að hún
iðraðist þess ekki að hafa gifst
Hemingway sem hefði kennt
henni ýmislegt en sæi eftir því að
hafa sóað níu árum í hjónabandi
með Matthews. Hún hafði ætt
leidd ítalskan dreng, Sandy, en
gerði miklar kröfur til hans sem
hann stóð ekki undir og samband
þeirra varð afar stirt en skánaði
mjög síðustu árin sem hún lifði.
Andstæðingur Reagan
Hún hafði metnað sem skáld
sagnahöfundur og skrifaði skáld
sögur en þær bækur hennar
sem eru í mestum metum fjalla
um reynslu hennar sem stríðs
fréttaritari. Hún átti sextíu ára
feril sem stríðsfréttaritari og ein
beitti sér að því að lýsa örlögum
saklausra borgara og áhrifum
stríðs á þá en ferðaðist einnig
með hermönnum og skrifaði um
lífsreynslu þeirra. Með árunum
fékk hún æ meiri óbeit á utan
ríkisstefnu Bandaríkjanna. Hún
fór til Saigon árið 1966, heimsótti
sjúkrahús og talaði við lækna og
fólk sem hafði særst, misst útlimi
og sjón í sprengjuárásum Banda
ríkjamanna, fór í flóttamanna
búðir og talaði við nunnur sem
ráku munaðarleysingjahæli.
Heimsókn hennar hleypti svo
illu blóði í bandaríska herinn
að henni var seinna neitaði um
endurnýjaða vegabréfsáritun
til Víetnam. Henni var skemmt
þegar upplýst var að CIA og FBI
héldu skrár um hana. Á áttræðis
aldri var hún í Nicaragua og El
Salvador og skrifaði gegn utan
ríkisstefnu Reaganstjórnar
innar. En þegar borgarastyrjöld
braust út í Bosníu sagðist hún
vera orðin of gömul til að fara
þangað.
Varð að minnismerki
Martha varð reið og erfið gömul
kona en gat verið fyndin. Hún
var önug í viðtölum og í einu
þeirra sagði hún: „Þetta viðtal er
svo leiðinlegt að ég held að það
sé að líða yfir mig.“ Þegar góð
vinkona hringdi í hana og sagð
ist vilja hitta hana sagði Martha:
„Þú ert of leiðinleg.“ Þannig lauk
þeirri vináttu.
Um ellina sagði hún: „Ef
maður lifir nógu lengi verð
ur maður minnismerki. Ég er
nú orðin minnismerki.“ Heilsa
hennar fór versnandi. Hún missti
sjónina nær algjörlega, heyrnin
versnaði verulega og hún þjáðist
af bakverk. „Mér finnst ég vera
mjög gömul, ljót og þreytt,“ sagði
hún. Hún sagðist sakna tvenns
úr lífi sínu, að hafa aldrei skrifað
frábæra bók og hafa ekki kynnst
fullkominni ást. Þegar hún fékk
krabbamein fannst henni nóg
komið og í febrúarmánuði 1998
framdi hún sjálfsmorð með því
að taka inn blásýru. Hún var 89
ára gömul. n
„Henni var skemmt
þegar upplýst var
að CIA og FBI héldu skrár
um hana.
Martha Gellhorn er sögð vera einn besti stríðsfréttaritari 20. aldar
K na í stríði
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Á frímerki Martha var einn af fimm fjölmiðlamönnum, og eina konan, sem voru heiðraðir
árið 2008 með því að setja andlit þeirra á frímerki.
Marta og Ernest í Kína Hjónin sjást hér
hershöfðingjanum Yu Hanmou og hermönn-
um hans árið 1941.
Martha Gellhorn Hún átti sextíu ára feril
sem stríðsfréttaritari.
menning - KjarnaKonur úr fortíð