Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 63
menning 39Helgarblað 28. júlí 2017
þyrftu ekkert á sýningarstjórum
að halda. Ég held reyndar að við
séum vaxin upp úr þessu núna.“
En þetta er kannski skiljanlegt
viðbragð við þeirri þróun sem hef-
ur átt sér stað á síðustu árum og
áratugum þegar sýningarstjórinn
er farinn að vera í stærra hlutverki
en listamaðurinn eða listaverkin.
Voruð þið eitthvað að velta þessu
fyrir ykkur?
„Já, ég held að við höfum
kannski verið hálfhrædd við það
að verða undir einhverjum sýn-
ingarstjóra. Við vildum finna kerfi
sem myndi ekki upphefja neinn
einn aðila heldur skapa algjör-
lega flatan valdastrúktúr. Fyrst
bjuggum við til kerfi til að við
gætum stýrt sýningum í samein-
ingu. Hvert okkar dró nafn annars
einstaklings úr hópnum úr hatti
og þurfti að stilla upp skjávarpa
með mynd sem afmarkaði svæði
sem hann þurfti að vinna með í
sýningunni. Svo dró næsti, og svo
koll af kolli þar til þetta var kom-
ið í hring.“
Handahóf og slembiröðun
„Fljótlega fórum við út í að blanda
tækni inn í þessar tilraunar - al-
góritmum og slembiröðun – og
byrjuðum að smíða vélmenni
sem við köllum ASAHI. Í upp-
hafi voru þetta nokkuð einfaldir
róbotar. Fyrsta vélmennið var
smíðað úr myndavél og hreyfi-
stýribúnaði, sem hreyfði mynda-
vélina á handahófskenndan hátt
á tveimur ásum og stýrði svo fók-
usnum. Við þurftum svo að finna
þennan handahófskennda fók-
uspunkt sem vélin valdi og stilla
verkinu upp þar. Stundum var
þetta einhvers staðar í lausu lofti
og stundum jafnvel fyrir utan gall-
eríið. Næsta útgáfa var skilvirkari
því þá höfðum við skipt mynda-
vélinni út fyrir leiserljós.“
Gerðist eitthvað áhugavert
þegar þið fylgduð þessari fagur-
fræði handahófsins sem vélin
studdist við?
„Já, við lentum kannski í því
að það væru nokkur verk á sama
fermetranum, eitt í loftinu, og
eitt alveg hinum megin. Þetta er
eitthvað sem hvorki mannlegum
sýningarstjóra né okkur sjálfum
hefði dottið í hug að gera. Þannig
vorum við að ögra okkar eigin
fagurfræði og vilja. Eitt sem þetta
leysti voru þær deilur um tiltek-
in pláss sem geta oft átt sér stað
þegar maður sýnir með nokkrum
listamönnum, kannski vilja allir
nota stóra vegginn með góðu
lýsingunni. Með þessu slembi-
vali þurfa allir að samþykkja að
þeir fái ekki endilega besta stað-
inn – og kannski fær enginn besta
staðinn og öllum er bara hrúgað
saman í einhverja litla kompu.“
Sjálfvirkt sýningarstjóra
vélmenni
HARD-CORE hópurinn er þegar
farinn að boða komu fjórðu kyn-
slóðar vélkúratorsins, ASAHI 4.0, og
ef áætlanir munu ganga eftir mun
hinni nýi ASAHI taka á sig stórauk-
ið hlutverk í sýningarstjórninni.
„ASAHI ekki lengur bara vél-
menni heldur er það líka orðið að
gagnagrunni. Þetta er því tvíþætt.
Þetta er gagnagrunnur þar sem
listamenn geta sett upp „profile“
með listaverkum eftir sig, mynd og
upplýsingar og verkinu. Listastofn-
anir og aðrir sem eru tilbúnir að
hýsa sýningar geta líka skráð sig
sem gestgjafa – rýmið sem er boð-
ið fram getur verið frá galleríi og
allt niður í vefsíðu eða ísskáp eða
hvað sem er. Hugmyndin er að vél-
mennið velji sjálft einn gestgjafa
af listanum, mæti svo á staðinn
og skanni rýmið. Það verður búið
skynjurum sem skynjar hitastig,
ljós, alkóhól, geislavirkni og ýmis-
legt fleira – og finnur síðan listaverk
úr gagnagrunninum sem henta
best fyrir rýmið. Vélmennið velur
svo titil á sýninguna, opnunartíma,
og svo framvegis. Hugmyndin er að
þetta geti orðið algjörlega sjálfvirkt
kerfi. Þegar einni sýningu er lokið
velur vélmennið næsta áfangastað.
Draumurinn er að vélmennið muni
sækja um styrki til að viðhalda
sjálfu sér og flakki svo um upp á eig-
in spítur og haldi sýningar.“
Hvernig gengur þróunin á gagna-
grunninum og vélmenninu sjálfu?
„Það gengur vel með gagna-
grunninn. Það eru núna nálægt 200
verk í honum en reyndar bara eitt
gallerí. Þetta gengur ansi hægt hjá
okkur því að við erum í raun orðin
að tækni-sprotafyrirtæki en sinnum
á sama tíma öðrum verk efnum.
Tæknilega hliðin er líka að verða
það flókin að við þurfum meiri
mannskap, þurfum að fá í lið með
okkur forritara og aðra sem kunna á
svona – við erum bara listamenn og
engir sérfræðingar í þessum mál-
um.“
Fagurfræði tæknigeirans
Hópurinn leikur sér meðvitað
með og snýr upp á þá fagurfræði
sem hefur þróast hjá fyrirtækjum
í tæknigeiranum, gljáfægð naum-
hyggja og ofursvöl framfara-
trúin. Fyrir hönd HARD-CORE
heldur persóna að nafni Skyler
Lindenberg - sem sögð er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins – vel
æfðar tæknikynningar í anda hálf-
guða Kísildalsins, Steve Jobs og
Mark Zuckerberg.
„Við forrituðum hann í raun og
veru til að bregðast við aðstæðum á
ákveðinn hátt - og svo fær hann að
spinna út frá því. Það hefur hjálp-
að að hafa þessa persónu sem and-
lit fyrirtækisins – þá höfum við ekki
þurft að finna nýjan valdapýramída
eða ákveða hver á að tala fyrir hönd
hópsins.“
Þetta virðist vera endurtekið
stef í vinnu HARD-CORE, að eyða
einstaklingnum og valdapýramíd-
um og verða að einni veru í sam-
einingu, þetta sést líka í mynd-
böndunum þar sem raddir ólíkra
þátttakenda sameinast í einni
margræðri marghöfða veru – al-
heimsklessunni svokölluðu. Af
hverju er þetta?
„Til að byrja með veltum við
mikið fyrir okkur egóinu í sam-
starfi og hvernig áhersla á eigin-
hagsmuni getur oftar en ekki unnið
gegn hagsmunum heildarinnar.
Það er mikilvægt að ASAHI hugs-
ar ekki um hagsmuni einstaklinga
heldur bara um að heildin virki.“
Mér finnst nánast eitthvað trúar-
legt við þetta, að gangast við eigin
takmörkunum, losna undan einstak-
lingseðlinu og láta völdin og ákvarð-
anir í hendur æðri máttarvalda – sem
í þessu tilfelli er vélin og algóritmarnir.
„Já, við kjósum að lúta þessu kerfi
sem við skópum sjálf. Þetta getur
auðvitað líka verið hættuleg hug-
mynd ef maður hugsar til dæmis um
yfirvöld sem eru mögulega að færast
í áttina að einhvers konar snjall-yfir-
valdi – machine-government. ASAHI
dæmir engan og velur hvern sem
er inn í sýningar sínar burtséð frá
reynslu viðkomandi, kynhneigð, hör-
undslit og svo framvegis. ASAHI kær-
ir sig ekki um elítur eða vinagreiða.
Það er kannski eitthvað trúarlegt við
það að allir séu jafnir fyrir vélmenn-
inu.“ n
„Draumurinn er að
vélmennið muni
sækja um styrki til að
viðhalda sjálfu sér og svo
flakka um á eigin spýtur
og halda sýningar.
Úr listheiminum
Kanadíska hljómsveitin Arcade
Fire fór ansi óhefðbundnar leiðir
til að auglýsa fimmtu breiðskífu
sína, Everything Now, sem kom
út föstudaginn 28. júlí. Í maí birt-
ist aðgangur á Twitter sem leit út
eins og gerviaðgangur rússneskra
hakkara en deildi hins vegar ekki
vírusum heldur ýmsum upplýs-
ingum um plötuna. Þá hafa verið
settar upp fjölmargar vefsíður
sem skopstæla og líta út eins og
þekktar tónlistarfréttasíður, en
þar hafa uppspunnar fréttir og
álitsgreinar þar sem lítið er gert
úr sveitinni verið birtar. Hluti af
markaðssetningunni hefur líka
falist í uppsetningu gervifrétta-
síðna sem hafa sagt samsæris-
kenningalegar fréttir um tengsl
sveitarinnar við hryðjuverka-
hópa.
Matt Groening, skapari sjón-
varpsþáttanna um Simpson-fjöl-
skylduna, hefur gert samning við
streymisþjónustuna Netflix um
að gera nýja grínteiknimynda-
þætti fyrir fullorðna. Þættirnir
sem munu nefnast Disenchant-
ment eiga að gerast á miðöldum,
í konungsdæminu Dreamland
sem má muna fífil sinn fegurri.
Aðalpersónurnar verða drykk-
fellda prinsessan Bean, vinur
hennar af álfakyni og gælupúki
hennar. Tíu fyrstu þættirnir verða
frumsýndir á Netflix á næsta ári.
Götulistaverkið „Stelpa með
blöðru“ eftir huldumanninn
Banksy er það myndlistarverk
eftir Breta sem er í mestu uppá-
haldi hjá bresku þjóðinni sam-
kvæmt nýlegri könnun The
Frame National Art Audit. Verk-
ið birtist upphaflega árið 2002 á
vegg verslunarhúsnæðis í Aust-
ur-London. Síðar tókst að ná
verkinu af veggnum og selja á
uppboði. Í næstu sætum á list-
anum eru hefðbundnari mál-
verk, The Hay Wain eftir John
Constable, The Singin Butler eft-
ir Jack Vettriano og The Fight-
ing Temeraire eftir JMW Turner,
en einnig vekur athygli að verk
sem unnin voru sem umslög fyr-
ir plötur Bítlanna, Pink Floyd og
Sex Pistols eru einnig í 20 efstu
sætunum. Ekki eru allir sammála
um ágæti verksins en Jonathan
Jones, myndlistargagnrýnandi
The Guardian, segir verkið vera
væmna vitleysu sem smætti
mannlegar tilfinningar niður í
það yfirgengilega og augljósa.