Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Blaðsíða 64
40 menning Helgarblað 28. júlí 2017
Þ
egar gengið var inn í Silfur-
bergssalinn í Hörpu var
augljóst að miðasalan hafði
ekki gengið nógu vel því
að einungis helmingur salarins
var notaður. Þeir sem mættu voru
margir á boðsmiðum eða höfðu
keypt miða í gegnum ýmis nettil-
boð.
Fólkið sem var mætt var hins
vegar ákaflega spennt. „Hér er
gamall nördadraumur að rætast,“
sögðu tveir aðdáendur Dinosaur
Jr. til 30 ára. Nostalgían hefur
augljóslega drifið marga af stað.
Fólk milli fertugs og fimmtugs var
búið að draga fram skógarhöggs-
mannaskyrturnar sínar og gömlu
grugg-bolina. Hér voru líka mætt-
ir svokallaðir „hljóðfæra-nördar“
sem lesa tímarit á borð við Bass
Player, og fólk sem vinnur í hljóð-
færaverslunum. Það fór ekki á
milli mála að einhver mikil lotn-
ing var að fara í gang. Dinosaur
Jr. hefur ekki mikið fjöldafylgi en
áhrifin leyna sér ekki. „Hér byrj-
aði gruggið!“ sagði einn spenntur
tónleikagestur. Annar sagði fólk
ekki fatta hversu stórt þetta band
er. „Þetta er bandið sem hafði
áhrif á Mudhoney, sem höfðu svo
áhrif á Nirvana.“ Þótt vissulega
væri fámennt var svo sannarlega
góðmennt.
Upphitunarband kvöldsins var
Oyama frá Reykjavík. Krúttlegt og
ungæðislegt fimm manna indí-
band með sterka vísun í tíunda
áratuginn, þegar Dinosaur Jr. áttu
sinn blómatíma. Kvintettinn stóð
sig með prýði og endaði sína dag-
skrá með ruslatunnuendi sem
hefði sæmt AC/DC. Þau fengu
gott klapp frá salnum að launum.
Eins og að ganga inn á hljóm-
sveitaræfingu
Þegar aðalnúmer kvöldsins steig á
svið var mikið fagnað. Þríeykið frá
Massachusetts lét það hins vegar
ekkert stíga sér til höfuðs. Þrátt
fyrir að hafa verið í bransanum
síðan 1984 er varla rokkstjörnu-
bein til í þeim. Tónleikarnir voru
háværir og hraðir en látlausir með
eindæmum, líkt og maður hefði
gengið inn á hljómsveitaræfingu.
Höfuðpaur bandsins, söngvarinn
og gítargúrúinn J Mascis, ræddi
ekki mikið við salinn heldur lét
tónlistina tala. Hann tilkynnti þó
salnum að öll hljóðfæri sveitar-
innar hefðu týnst í fluginu. Flest-
ir tónleikagestir hefðu sennilega
fórnað fingri fyrir að fá að lána
honum gítar.
Trommarinn Murph rúllaði
eins og vél og sló ekki feilhögg.
En það var bassaleikarinn Lou
Barlow sem glæddi tónleikana lífi.
Hann söng nokkur af lögunum
og kom með þarft pönk inn í sýn-
inguna. Algjör andstæða við hinn
stjarfa Mascis.
Nýja efnið betra
Dinosaur Jr. hófu tónleikana á
smelli frá gullaldartímanum,
„Thumb“, til að keyra salinn í gang.
Síðan komu þrjú lög af nýjustu
plötu sveitarinnar, „Give a Glimpse
of What Yer Not“ frá 2016, sem
sennilega fæstir í salnum höfðu
heyrt en var hápunktur tónleikana.
Þessi nýju lög eru á einhvern hátt
kröftugri en eldra efni sveitarinnar.
Þeim var einnig virkilega vel tekið.
Þá var komið að tveimur rót-
urum að láta ljós sitt skína. Annar
greip í kjuða en hinn í gítar og þeir
spiluðu gamla hittarann „The Wa-
gon“ með hljómsveitinni. Þetta
kom nokkuð vel út þó að trymbl-
arnir tveir spiluðu nákvæmlega
það sama. Óvenjulegt, flippað og
skemmtilegt.
Eftir þetta var farið vítt og breitt
um feril bandsins. Salurinn tók
kipp þegar bandið tók „Feel the
Pain“ en það vakti athygli að þeir
slepptu „Watch the Corners“, einu
vinsælasta lagi sveitarinnar. Tón-
leikarnir enduðu á ábreiðu af The
Cure-laginu „Just Like Heaven“
en það var einmitt lagið sem kom
hljómsveitnni á kortið fyrir sléttum
30 árum síðan.
Enginn fór óánægður frá þess-
um tónleikum og flestir hafa senni-
lega hugsað: Fólk kann ekki gott að
meta. n
„Hér byrjaði grunge-ið!“
n Nostalgían sveif yfir vötnum n Hávært, hratt en látlaust
Tónleikar
Kristinn Haukur Guðnasson
kristinn@dv.is
Dinosaur Jr.
Dinosaur Jr. J Mascis. MyND
MuMMi Lú
Undir trénu, nýjasta kvikmynd leikstjórans Hafsteins Gunnars
Sigurðssonar (Á annan veg, París
Norðursins), hefur verið valin
til að keppa til verðlauna á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum sem
hefst í lok ágúst. Þetta var tilkynnt
á blaðamannafundi í Feneyjum á
fimmtudag.
Myndin mun keppa í flokkn-
um Orizzonti, sem mætti þýða
sem „Við sjóndeildarhringinn“ en
sá flokkur er ætlaður myndum alls
staðar að úr heiminum sem beita
nýstárlegri tjáningu eða fagur-
fræði í kvikmyndagerðinni. Þetta
er í fyrsta skipti sem íslensk kvik-
mynd er valin til þátttöku í flokkn-
um.
Í tilkynningu frá aðstandend-
um myndarinnar kemur fram að
vegna hátíðarinnar verði frum-
sýningu myndarinnar hér á landi
seinkað um tvær vikur frá áður
auglýstum tíma, til 6. september.
„Feneyjahátíðin er mjög ströng
þegar kemur að þessu, þ.e.a.s. þess
er krafist að sýning myndarinnar á
hátíðinni sé heimsfrumsýning,“
er haft eftir Grímari Jónssyni í til-
kynningunni.
Myndin sem er skrifuð af Haf-
steini Gunnari og Huldari Breið-
fjörð er sögð dramatísk mynd
með þriller-ívafi og kolsvörtum
húmor. Steinþór H. Steinþórsson,
betur þekktur sem Steindi Jr., leik-
ur ungan mann sem er kastað út af
kærustunni sinni, leikinni af Láru
Jóhönnu Jónsdóttur, eftir að hún
gómar hann við að horfa á gamalt
kynlífsmyndband. Í kjölfarið deila
þau um forræði yfir fjögurra ára
dóttur sinni. Á sama tíma standa
foreldrar hans, sem eru leikin af
Eddu Björgvinsdóttur og Sigurði
Sigurjónsyni, í heiftúðlegum ná-
grannaerjum um tré sem skyggir á
garð þeirra. n
Frumsýnd í Feneyjum
Undir trénu eftir Hafstein Gunnar keppir í flokknum Orrizzonti
Frumsýnir á elstu kvikmyndahátið
heims Nýjasta kvikmynd leikstjórans
Hafsteins Gunnars, Undir trénu, verður
frumsýnd í Feneyjum, á einni þekktustu
kvikmyndahátíð heims.
Ný plötuútgáfa sett á laggirnar
Figureight mun starfa með íslenskum og
bandarískum tónlistarmönnum
Á miðvikudag var formlega til-kynnt um stofnun nýs íslensks-
bandarísks útgáfufyrirtækis Figur-
eight, en það eru Hildur Maral
Hamíðsdóttir og tónlistarmaðurinn
Shahzad Ismaily sem standa að
fyrirtækinu. Fyrirtækið er nátengt
hljóðverinu Figure 8 í Brooklyn,
New York, sem Shahzad setti á lagg-
irnar fyrir nokkrum árum og ýmsir
íslenskir listamenn hafa tekið upp í.
Átta tónlistamenn hafa nú þegar
gert samninga við Figureight um
útgáfu á tónlist, bæði Íslendingar
og Bandaríkjamenn. Figureight
hefur prófað sig áfram með útgáfu
á undanförnum mánuðum en plat-
an Makríl eftir Indriða kom til að
mynda út á vegum þess auk þess
sem plata JFDR frá því í mars, Brazil,
kom út í samstarfi við fyrirtækið.
Samkvæmt tilkynningu frá
Figur eight leggur fyrirtækið mik-
ið upp úr að vinna náið með lista-
mönnunum og hjálpa þeim að
þróa sína listrænu sýn. Tónlistin
sem verður gefin út hjá Figureight
á það sameiginlegt að vera inn-
hverf, feimin, einlæg, undarleg og
einstök. n
Á milli Íslands og Bandaríkjanna
Shahzad ismaily, stofnandi Figureight,
ásamt Jófríði Ákadóttur sem er ein af
átta tónlistarmönnum sem starfa með
útgáfufyrirtækinu. MyND FiGurEiGHt