Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2017, Side 67
menning - SJÓNVARP 43Helgarblað 28. júlí 2017
RÚV Stöð 2 Sjónvarp Símans
Skáklandið
dv.is/blogg/skaklandid
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
Laugardagur 29. júlí
07.00 KrakkaRÚV
07.01 Kioka (67:78)
07.08 Ofurgroddi (4:13)
07.15 Lundaklettur (14:39)
07.22 Ólivía (33:52)
07.33 Friðþjófur Forvitni
07.56 Símon (9:52)
08.01 Molang (29:52)
08.04 Kúlugúbbarnir
08.27 Hvolpasveit (1:26)
08.50 Hrói Höttur (1:52)
09.02 Skógargengið (8:52)
09.14 Alvinn og íkornarnir
09.25 Zip Zip (8:21)
09.37 Lóa (42:52)
09.50 Litli prinsinn (2:8)
10.15 Best í flestu (10:10)
11.00 Popp- og rokksaga
Íslands (3:4)
12.00 Plastbarkamálið
13.00 Sjöundi áratugur-
inn – Kapphlaup í
geimnum
13.45 Finndið
14.50 Mótorsport (7:12)
15.20 Táknmálsfréttir
15.30 HM í sundi
15.50 EM kvenna í fót-
bolta:
20.54 Lottó (30:52)
21.00 Fréttir
21.25 Íþróttir
21.35 Veður
21.45 Magic in the
Moonlight (Töfrar
í tunglskini) Hugljúf
gamanmynd eftir
Woody Allen með Colin
Firth og Emmu Stone
í aðalhlutverkum.
Breskur herrmaður er
fenginn til að upplýsa
blekkingarleik. Atriði í
myndinni eru ekki við
hæfi ungra barna.
23.20 Dark Places (Myrkir
staðir) Spennutryllir
með Charlize Theron
og Nicholas Hoult í
aðalhlutverkum. Fyrir
þrjátíu árum var fjöl-
skylda Libby Day myrt
á hrottalegan hátt.
Hún lætur til leiðast
og fer að staðnum
þar sem voðaverkin
voru framin, í von
um að fletta ofan
af morðingjunum.
Leikstjóri: Gilles
Paquet-Brenner. Atriði
í myndinni eru ekki við
hæfi barna.
01.10 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
07:00 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Mæja býfluga
08:00 Stóri og litli
08:15 Með afa
08:25 Nilli Hólmgeirsson
08:40 K3 (36:52)
08:50 Tindur
09:00 Pingu
09:05 Víkingurinn Viggó
09:20 Tommi og Jenni
09:45 Loonatics Unleashed
10:10 Ævintýri Tinna
10:30 Ninja-skjaldbökurnar
10:55 Beware the Batman
11:20 Ellen
12:00 Bold and the Beautiful
13:45 Friends (24:24)
14:35 Grey's Anatomy
16:00 Grand Designs (1:0)
16:50 Brother vs. Brother
17:35 Blokk 925 (5:7)
18:00 Sjáðu (504:520)
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn
19:05 Lottó
19:10 Top 20 Funniest 2
19:55 An American Girl:
Chrissa Stands
Strong
21:25 The Shallows
Spennutryllir frá 2016
með Blake Lively í að-
alhlutverki. Nancy Ad-
ams er í sorgarferli eftir
dauða móður sinnar.
Til að takast á við
sorgina einsetti Nancy
sér m.a að komast á
nafnlausa, afskekkta
strönd sem hafði verið í
miklu uppáhaldi móður
hennar þegar hún var
á sama aldri og Nancy
er núna. Myndin hefst
á því að Nancy finnur
loksins ströndina eftir
mikla leit og ákveður
að eyða deginum þar
við brimbrettabrun
eins og móðir hennar
hafði gert fyrir þrjátíu
árum.
22:50 Keanu Gamanmynd
frá 2016. Þegar einhver
brýst inn til málarans
skakka, Rells, og
nemur á brott kett-
linginn hans og helstu
fyrirsætu, Keanu,
fær hann vin sinn og
frænda, Clarence, til að
aðstoða sig við að hafa
uppi á kattarræningj-
unum.
00:30 Hateful Eight
Mögnuð mynd frá
2015 úr smiðju Quentin
Tarantino með Samuel
L. Jackson, Kurt Russell
og Jennifer Jason Leigh
í aðahlutverkum.
03:15 The Prestige Magn-
þrungin stórmynd sem
skartar fjölda frábærra
leikara á borð við
Christian Bale, Hugh
Jackman, Michael
Caine og Scarlett
Johansson í aðalhlut-
verkum.
05:20 Getting On (5:6)
05:50 Friends (9:24)
06:00 Síminn + Spotify
08:00 Everybody Loves
Raymond (8:26)
08:20 King of Queens
09:05 How I Met Your
Mother
09:50 Odd Mom Out (9:10)
10:15 Parks & Recreation
10:35 The Great Indoors-
Gamanþáttaröð með
Joel McHale í aðal-
hlutverki. Ævintýra-
maðurinn Jack starfar
fyrir tímarit en þarf að
venjast nýju umhverfi
þegar hann er færður
til í starfi og í stað
útivistar og ferðalaga
þarf hann að húka á
skrifstofunni.
11:00 The Voice USA (17:28)
12:30 The Biggest Loser
13:15 The Bachelor (12:13)
15:30 Gordon Ramsay
Ultimate Cookery
Course (3:20) Frábærir
þættir þar sem Gordon
Ramsey snýr aftur
í heimaeldhúsið og
kennir áhorfendum
einfaldar aðferðir við
heiðarlega heimaelda-
mennsku.
16:00 Rules of
Engagement
16:25 The Odd Couple (2:13)
16:50 King of Queens
17:15 Younger (9:12)
17:40 How I Met Your
Mother
18:05 The Voice Ísland
(8:14) Stærsti
skemmtiþáttur
Íslands. Þetta er
önnur þáttaröðin af
The Voice Ísland þar
sem hæfileikaríkir
söngvarar fá tækifæri
til að slá í gegn. Þjálf-
arakvartettinn Helgi
Björns, Svala Björgvins,
Unnsteinn Manuel og
Salka Sól ætla að finna
bestu rödd Íslands.
19:05 Friends With Better
Lives
19:30 Glee (9:24)
20:15 The Hitchhiker's
Guide to the Galaxy
22:05 Enemy of the State
00:20 Scandal (12:16)
Spennandi þáttaröð
um valdabaráttuna
í Washington. Olivia
Pope og samstarfs-
menn hennar sérhæfa
sig í að bjarga þeim
sem lenda í hneykslis-
málum í Washington.
04:05 Harry Brown Spennu-
mynd með Michael
Caine í aðalhlutverki.
Fyrrum hermaður tekur
lögin í sínar hendur
eftir að dópsalar og
glæpagengi taka
völdin í hverfinu hans.
Mögnuð mynd frá
2009. Stranglega
bönnuð börnum.
05:50 Síminn + Spotify
S
éra Brown tekur við af
Poirot sem spæjari föstu-
dagskvöldanna á RÚV.
Séra Brown er vingjarnleg-
ur, nokkuð annars hugar, stund-
um virðist hann reyndar svo úti
á þekju að maður áttar sig ekki á
því hvernig honum tekst að leysa
hin ýmsu sakamál. En þá er mað-
ur að vanmeta hann. Þegar maður
ætlar sem svo að hann sé víðsfjarri
í huganum þá er hann að íhuga og
komast að niðurstöðu. Séra Brown
þykir vænt um annað fólk og skilur
mannlegt eðli. Hann veit af góðu
eiginleikunum og fagnar þeim en
veit jafnmikið um dökku hliðar
mannskepnunar og er stundum
sorgmæddur, eins og hlýtur að
gerast hjá sálusorgurum.
Í síðasta þætti reyndi ósvífinn
þorpari að koma séra Brown fyrir
kattarnef. Þá ofbauð mér. Kallið
mig gamaldags, en ég hef trú á
kirkjunnar þjónum. Að veitast
að sómakærum og góðviljuðum
presti er hið mesta níðingsverk og
maður getur ekki látið það óátalið.
Séra Brown var algjörlega varnar-
laus en tveir kvenskörungar fundu
hann blessunarlega í tæka tíð. Ég
viðurkenni að mér var mjög létt.
Það er notalegt að vera í ná-
vist þessa góða kaþólska prests á
föstudagskvöldum og fylgjast með
lífinu í þorpinu hans, sem er alveg
jafntíðindamikið og í Midsumer
Murders-þáttunum. Samkvæmt
þessum þáttum er manneskjan
svo breysk að ekki má af henni líta
án þess að hún sé farin að valda
öðrum skaða. Kannski er það bara
rétt. n
kolbrun@dv.is
Sómakær prestur
Mark Williams Góður í
hlutverki séra Brown.
Skin og skúrir á sterkum skákmótum
S
umarið er tími skákmóta
og fjölmörg slík eru skipu-
lögð um allan heim. Tveir
af sterkustu skákmönnum
Íslands sitja nú að tafli í Evrópu,
stórmeistararnir Jóhann Hjartar-
son og Hannes Hlífar Stefánsson.
Jóhann situr að tafli á Xtracon-
mótinu í Helsingjaeyri í Dan-
mörku á meðan Hannes Hlífar
spreytir sig á Opna tékkneska
meistaramótinu í Pardubice.
Báðir voru komnir í ákjósan-
lega stöðu þegar stutt var eftir af
mótunum. Jóhann hafði önglað
saman fimm vinningum í sex
skákum og var hálfum vinningi
á eftir efstu mönnum þegar að-
eins fjórar umferðir voru eftir af
mótinu. Hannes var í svipaðri
stöðu með 4,5 vinninga af sex
skákum og var einum vinningi
á eftir forystusauðunum í efsta
flokki. Taflmennska beggja hafði
verið vönduð fram að umferðun-
um sem fram fóru á fimmtudag.
Þá riðu hinsvegar hörmungar yfir.
Hannes tefldi við ungan þýskan
meistara að nafni Christopher
Noe. Allt var með kyrrum kjör-
um fyrstu fjórtán leikina en þá fór
Hannes í vanhugsaða framrás á
miðborðinu. Sá þýski refsaði ís-
lenska stórmeistaranum grimmi-
lega og niðurlægjandi tap í 19
leikjum varð niðurstaðan.
Skák Jóhanns gegn
Englendingnum Matthew
Wadsworth var ekki síður sár.
Jó hann jafnaði taflið auðveldlega
með svörtu mönnunum og fékk
þægilegra tafl. Okkar maður var í
engri sérstakri taphættu en það að
búa til vinningsfæri var stremb-
ið verkefni. Jóhann sætti sig ekki
við jafnteflið og í tímahraki and-
stæðingsins brenndi hann allar
brýr að baki sér í vinningstilraun-
um. Englendingurinn var vand-
anum vaxinn og náði að knýja
fram óvæntan og frekar óverð-
skuldaðan sigur.
Vonandi ná íslensku stór-
meistararnir vopnum sínum aft-
ur í næstu umferðum og ljúka
mótunum í verðlaunasætum.
Hægt er að fylgjast með nánari
umfjöllun um mótin á skák.is. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is