Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Side 72
Helgarblað 1. september 2017
51. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Misskipt er
manna láni!
Knattliprir
listamenn
n Listrænasta knattspyrnulið
landsins, KF Mjöðm, spilaði til úr-
slita í Gulldeildinni, utandeild sjö
manna liða, á fimmtudagskvöld.
Liðið sem er meðal annars skip-
að listamönnum, fjölmiðlamönn-
um og ýmsum öðrum áberandi
einstaklingum úr menningarlíf-
inu mætti Full Kit Wankers í úr-
slitaleiknum en þegar blaðið fór í
prentun var enn ekki ljóst hver bar
sigur úr býtum.Leikmannahópur
Mjaðmarinnar í leiknum var með-
al annars skipaður þeim Bjarna
Lárusi Hall, söngvara Jeff Who,
Arnari Guðjónssyni, úr hljóm-
sveitinni Leaves, Einari Þór Krist-
jánssyni, gítarleikara Singapore
Sling, myndlistarmanninum Loja
Höskuldssyni, rithöf-
undinum Halldóri
Armand Ásgeirssyni,
fréttamönnun-
um Guðmundi
Birni Þorbjörns-
syni og Kol-
beini Tuma
Daðasyni og
Birni Teitssyni,
kynningarfull-
trúa RIFF.
E
rlendur karlmaður liggur
alvarlega slasaður á gjör-
gæsludeild eftir að hafa
hent sér út úr leigubíl á ferð
við Ásbrú. Atvikið átti sér stað síð-
astliðinn mánudag. Maðurinn
steig upp í leigubílinn við Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar og pantaði
sér far að Ásbrúar-svæðinu. Þegar
á áfangastað var komið virkaði
ekki kort mannsins og því gat
hann ekki greitt fyrir bílinn. Hann
og leigubílstjórinn urðu sammála
um að snúa við og athuga hvort
kortið myndi virka í öðrum posa.
Þegar stutt var liðið af ferðinni
til baka þá opnaði farþeginn fyrir-
varalaust dyrnar og henti sér
út. Samkvæmt heimildum DV
var bílinn þá á um 40 kílómetra
hraða á klukkustund. Farþeginn
stórslasaðist við fallið og hringdi
bílstjóri aðvífandi leigubíls sam-
stundis á sjúkrabíl. Leigubílstjór-
inn vildi ekki tjá sig um atvikið en
var auðheyrilega miður sín vegna
þess.
DV hefur ekki upplýsingar um
líðan hins slasaða. Samkvæmt
öruggum heimildum var hann
í dái fyrst um sinn en síðan hafa
engar fregnir borist. Engar upp-
lýsingar fengust frá Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja um málið.
Fulltrúi Lögreglunnar á
Suðurnesjum tjáði blaðamanni
að fréttatilkynning yrði send út
til fjölmiðla vegna málsins. Hún
hafði ekki borist þegar blaðið fór
í prentun. n
Í dái eftir að hafa hent sér út úr leigubíl við Ásbrú
Ljónheppinn
lottóspilari
n Ónefndur íslenskur lottóspilari
er búinn að eiga afar farsælt ár í ís-
lensku hlutaveltunni. Á vormánuð-
um vann viðkomandi þriggja
milljóna króna vinning á Jóker og
hefðu flestir búist við því að þá
væri heppnin uppurin að sinni. Því
var öðru nær. Samkvæmt heim-
ildum DV var sami einstaklingur í
hópi fjögurra vinningshafa í lottó-
útdrættinum þann 19. ágúst síðast-
liðinn en allir hlutu þeir 20 milljón-
ir króna í sinn hlut. Þrír af fjórum
vinningshöfum hafa gefið sig fram
en Getspá auglýsir en eftir síðasta
vinningshafanum.