Freyr - 01.06.2006, Page 19
NAUTGRIPARÆKT
Afurðahæstu kýrnar í
nautgriparæktarfélögunum árið
2005 og efstu kýrnar í kynbótamati
ÍEftir Jón Viðar
Jónmundsson,
Bændasamtökum
ísiands
Tafla 1. Feður afurðahæstu kúnna og fjöldi þeirra sem mjólkuðu mest og skiluðu yfir 200 kg af verðefnum árið 2005
Nafn Númer Yfir 5.000 kg af mjólk Yfir 200 kg af mjólkurfitu Yfir 200 kg af mjólkurpróteini
Sorti 90007 135 134 74
Almar 90035 155 163 89
Stúfur 90035 139 136 81
Negri 91002 146 137 88
Tjakkur 92022 277 266 151
Skuggi 92025 103 99 63
Smellur 92028 274 267 153
Völsungur 94006 157 175 70
Pinkill 94013 100 112 45
Kaðall 94017 319 357 162
Punktur 94032 145 142 57
Fyrir því er áratuga og jafnvel orðið
heillar aldar hefð að birta í
tengslum við skýrsluhald
nautgriparæktar yfirlit um þær kýr
sem á hverjum tíma standa á
toppnum með afurðir. Hér á landi
var birting á slíkum niðurstöðum
lengi fyrst og fremst með viðmiðun
við magn mjólkurfitu (fitueiningar
eins og það hét þá). Með minna
vægi fitunnar í framleiðslunni varð
mjólkurmagnið viðmiðun og á allra
síðustu árum hafa einnig verið
birtar upplýsingar þar sem grunnur
uppröðunar kúnna er framleiðsla
þeirra mæld í magni verðefna sem
er samanlagt magn af mjólkurfitu
og mjólkurpróteini.
1% AFURÐAAUKNING
Gríðarlega ör afurðaþróun síðasta áratugar
hefur leitt til þess að eldri viðmiðanir um
afurðir eru orðnar ákaflega afstæðar. Þeim
er samt haldið vegna þess að með þeim
verða þessar upplýsingar mjög verðmæt
heimild í sambandi við að lýsa afurðaþróun
kúastofnsins yfir lengra tfmabil.
Afurðaaukning á milli áranna 2004 og
2005 var fyrir landið í heild nákvæmlega
1 % og efnahlutföll mjólkurinnar héldust lítt
breytt. Þó að örlítil fækkun sé á kúm í
skýrsluhaldinu þá fjölgar samt kúm með
miklar afurðir milli ára. Þannig voru 9.299
kýr (9.010 árið 2004) sem skiluðu 5.000 kg
af mjólk eða meira á árinu 2005. 200 kg af
mjólkurfitu eða meira skiluðu samtals 4.804
kýr (4.447 árið 2004) og 200 kg markinu
um mjólkurfitu náði 9.621 kýr (9.184 árið
2004). Þess má til gamans geta að fyrir
hálfri öld töldu þær fáa tugi.
Tafla 1 gefur yfirlit um það hvaða naut
það eru sem eiga flestar dætur á meðal
þessara hámjólka kúa. Hér hefur það gerst
sem spáð var fyrir um fyrir einu ári í
hliðstæðu yfirliti að dætur toppnautanna
frá 1994 hafa þarna tekið völdin með Kaðal
94017 í broddi fylkingar og skipar hann sér
á toppinn í þessum samanburði. Einnig fer
þar mikið fyrir dætrum þeirra Tjakks 92022
og Smells 92028, auk stórum dætrahópum
undan nokkrum eldri nautum sem hafa
verið á toppnum í þessum samanburði
síðustu ár.
(töflu 2 er yfirlit um kýrnar sem skiluðu
yfir 10 tonnum af mjólk á árinu 2005 og
tafla 3 sýnir samskonar yfirlit um kýr sem
skiluðu 750 kg af verðefnum eða meira. Að
nokkrum hluta eru þetta sömu kýrnar
vegna þess að í báðum tilfellum er verið að
mæla magn. [ sambandi við töflu 3 er ætíð
visst vandamál að of stór hluti búa í
skýrsluhaldinu hirðir ekki um að senda sýni
til efnamælinga til ákvörðunar á efnamagni
hjá einstökum kúm. Nokkur hópur búa til
Mestu mjólkurmagni árið 2005 skilar Rófa 164 í Nýjabæ undir Eyjafjöllum.
Ljósm. Ólafur Björnsson
FREYR 06 2006
19