Læknablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 31
LÆKNAblaðið 2017/103 87
Flestir kannast við þetta spakmæli en þegar fólk er spurt hvað
það telji að muni helst auka hamingju þess er svarið oftast pen-
ingar.
Tekjur einar og sér virðast nær ekkert skýra hamingju fólks.
Margir tekjutengdir þættir hafa hins vegar áhrif á hamingju.
Fjárhagsleg staða skiptir máli en þeir sem eiga erfiðast með að
ná endum saman eru líklegri til að vera óhamingjusamir, jafnvel
þeir sem hafa háar tekjur. Þá skiptir staða á atvinnumarkaði máli
en sá sem vill vinna en er atvinnulaus upplifir minni hamingju
en þeir sem eru starfandi. Ennfremur virðist vaxandi atvinnu-
leysi í samfélaginu almennt draga úr hamingju þeirra sem þó
halda starfi sínu. Virðast þessi áhrif frekar verða til vegna þess
áfalls að hafa ekki starf, frekar en að tekjur skerðist. Tekjuójöfn-
uður virðist einnig ýta undir óhamingju. Þeir sem eru efnaminni
upplifa meiri stöðukvíða og minni hamingju þegar ójöfnuður
eykst, en betri líðan þegar jöfnuður er meiri. Fullkominn jöfnuður
er þó ekki endilega eftirsóknarverður, þar sem slíkt er talið geta
aukið hvata fólks til að skara framúr öðrum, sem gæti valdið
meiri sóun í hagkerfinu. Tekjuójöfnuður er upp að einhverju
marki talinn gagnlegur til að veita fólki hvata til að ná árangri og
hreyfast um stiga þjóðfélagsins.
Þrátt fyrir að landsframleiðsla margfaldist yfir gefið tímabil,
helst hamingja vestrænnar þjóðar nær óbreytt, eitthvað sem fékk
nafnið þverstæða hamingjunnar. Helstu ástæður þess að fólk
verður ekki hamingjusamara með auknum tekjum eru annars
vegar félagslegur samanburður, þ.e. að fólk ber sig saman við
aðra, þar sem nágranninn fær sér nýjan og betri bíl, sem hvetur
viðkomandi til þess sama. Hins vegar skiptir aðlögun fólks að
nýjum aðstæðum máli, það sem áður var eftirsóknarvert er nú
orðið hversdagslegt. Blómavasinn sem beðið var eftir í röð fyrir
utan búð er nú orðinn enn eitt skrautið sem litlu skiptir. Staða
fólks í samfélaginu virðist þannig skipta talsverðu máli og eru
margar mikilvægar ákvarðanir teknar með það að markmiði að
bæta hlutfallslega eigin stöðu. Á endanum eru tekjuhæstu stéttir
þjóða líklegri til að vera hamingjusamari en þær sem eru tekju-
lægri. Þannig geta hærri tekjur aukið hamingju ef það þýðir að
fólk sé ekki fátækt lengur eða er ríkara en aðrir, en tekjur hafa
lítil tengsl við hamingju til langs tíma.
Margt eftirsóknarvert, annað en peningar, hefur lítil sem
engin bein áhrif á hamingju. Má þar nefna útlit fólks, greind, lík-
amlegan styrk og menntun. Heilsa er fólki mjög mikilvæg og hef-
ur markverð áhrif á hamingju en kannski minni en ætla mætti.
Heilbrigðir, þar á meðal heilbrigðisstarfsfólk, ofmeta oft þau
neikvæðu áhrif sem sjúkdómar hafa á hamingju fólks. Það sem
virðist vera að verki er að einstaklingum tekst að aðlagast þeim
takmörkunum sem heilsan setur þeim.
Það sem talið er að helst skýri hamingju manna eru góð sam-
skipti við aðra, fjölskyldu, vini, vinnufélaga og samfélag. Fjöldi
vinanna skiptir ekki máli heldur gæði samskiptanna. Löng
framskyggn rannsókn frá Harvard sýndi að góð samskipti skapa
mestu hamingjuna, bæta heilsu og lengja líf fólks.
Það er ljóst að hamingja skiptir miklu máli. Góð samskipti,
heilsa, og sterk staða í samfélaginu auka hamingju fólks. Áhersla
á hamingju hefur aukist undanfarin ár, bæði í vísindum og á
sviði stjórnmála. Embætti landlæknis hefur staðið fyrir málþing-
um um hamingju og Sameinuðu þjóðirnar hafa útbúið vísitölu
fyrir öll lönd sem samanstendur meðal annars af vergri lands-
framleiðslu, félagslegum stuðningi, heilsu og frelsi einstaklinga.
Ísland er þar í þriðja sæti en er í 20. sæti yfir hæstu landsfram-
leiðslu á mann.
Gæti aukin þekking á hamingju gagnast læknum í starfi,
sjálfra þeirra og skjólstæðinganna vegna?
Þorbjörn Jónsson formaður
Orri Þór Ormarsson varaformaður
Björn Gunnarsson gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Agnar H. Andrésson
Arna Guðmundsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Stjórn LÍ
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Peningar kaupa ekki hamingju
Agnar H. Andrésson
formaður Félags almennra lækna
agnar.h.andresson@gmail.com
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.