Læknablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 46
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
102 LÆKNAblaðið 2017/103
Emil Lárus Sigurðsson
heimilislæknir á Heilsugæslunni Sólvangi og
prófessor í heimilislækningum við Háskóla Íslands
Jón Steinar Jónsson
heimilislæknir í Garðabæ og lektor í
heimilislækningum við Háskóla Íslands
Oddur Steinarsson
heimilislæknir og fráfarandi framkvæmdastjóri
lækninga við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
oddur.steinarsson@heilsugaeslan.is
Þórarinn Ingólfsson
heimilislæknir í Efra Breiðholti og formaður Félags
íslenskra heimilislækna
Umtalsverðar breytingar hafa orðið á
heilbrigðisþjónustu og viðfangsefn-
um hennar undanfarna áratugi. Smit-
sjúkdómar eru á undanhaldi en tíðni
ósmitbærra sjúkdóma (noncommunicable
diseases) eykst hlutfallslega og þar með
vægi þeirra í heilbrigðisþjónustunni.
Lífslíkur aukast og fjölsjúkum einstakl-
inum fjölgar, sérstaklega í hópi aldraðra.
Spítalainnlagnir eru styttri en áður og
meðferðarmöguleikar í nærumhverfi
einstaklinga mun meiri. Þetta sýnir dæmi
frá Ängelholm í Svíþjóð þar sem teymi
læknis og hjúkrunarfræðings sem studdi
heimahjúkrunarsjúklinga fyrirbyggði
komur á bráðamóttökur í 94% tilfella
og innlagnir í um 73% tilfella á fyrstu 6
starfsmánuðum sínum.
Alþjóðastofnanir eins og Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin (WHO) og OECD benda á
að hlutfallsleg áhersla sé of mikil á annars
og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu á Vest-
urlöndum í dag. Efling frumþjónustunnar
er lykilatriði að mati WHO til að mæta
þeim áskorunum sem heilbrigðisþjónustan
stendur frammi fyrir með hækkandi hlut-
falli eldri borgara og breyttri sjúkdóms-
mynd. Bætt mönnun heilsugæslunnar,
samræming, samhæfing, fjölgun fagstétta
og þar með betra aðgengi að þjónustunni
eru þau atriði sem leggja þarf áherslu á, og
að efla heimaþjónustu og heimahjúkrun.
Til þess að styðja við svona upp-
byggingu er að mati okkar nauðsynlegt
að byggja upp þróunarmiðstöð fyrir
heilsugæslu á landsvísu og aðra nærþjón-
ustu á Íslandi. Grunnur að slíkri miðstöð,
Þróunarsvið (ÞS), hefur verið starfandi
frá árinu 2009 innan Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins (HH). Innan hennar eru
einingar sem leiða uppbyggingu og styðja
við þjónustu heilsugæslustöðva innan
HH en þróunarsviðið hefur einnig að
nokkru leyti stutt faglega við heilsugæslu
og heilbrigðisstofnanir í landinu. Innan
ÞS er umsjón með sérnámi í heilsugæslu
auk vísinda- og þróunarstarfs. Þetta
þróunarsvið hefur verið fámennt og liðið
fyrir niðurskurð undanfarin ár. Sem dæmi
má nefna að ekki hefur verið ráðinn yf-
irmaður þar eftir að framkvæmdastjóri
þess sagði upp störfum 2014. Klínískur
lyfjafræðingur er kominn á eftirlaun og er
í tímavinnu nú. Ekki hefur verið fjölgað
kennslustjórum í samræmi við vöxt sér-
námsins og fleira mætti nefna sem betur
þyrfti að fara.
Nýtt samræmt greiðslu- og gæðakerfi
tók gildi fyrir heilsugæslur á höfuðborgar-
svæðinu nú um áramótin. Að baki því er
kröfulýsing með gæða- og þjónustukröf-
um sem fylgja þarf eftir, endurskoða og
bæta. Slík kröfulýsing mun væntanlega
taka gildi fyrir alla heilsugæslu í landinu
innan nokkurra ára. Mikilvægt er að
kennsla, þróunar- og vísindastarf verði
eflt innan heilsugæslunnar á höfuðborgar-
svæðinu en ekki síður á landsbyggðinni.
Þessir þættir eru afar þýðingarmiklir
fyrir þá grunnþjónustu sem heilsugæsl-
unni er ætlað að sinna. Því er mikil-
vægt að stofnuð verði Þróunarmiðstöð
heilsugæslunnar (ÞH) sem myndi sinna
ofangreindu hlutverki. Nauðsynlegt væri
að ÞH yrði sem mest sjálfstæð, sinnti öllu
landinu og að þar yrði beitt þverfaglegri
nálgun. Miðstöðin gæti verið staðsett
innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
en þá þyrfti að tryggja sjálfstæði hennar
með reglugerð og að yfirmaður hennar
hefði faglegt sjálfstæði. Þetta þarf að gera
Þróunarmiðstöð Heilsugæslunnar
SÉRFRÆÐILÆKNIR
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis við Sjúkrahúsið Vog. Starfshlutfall er 100% en
hlutastarf kemur til greina. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í daglegri læknisþjónustu á Sjúkrahúsinu Vogi og öðrum starfsstöðvum SÁÁ. Þetta
felur m.a. í sér vaktskyldu, samskipti og þjónustu við sjúklinga, kennslu og þverfaglega
samvinnu.
Hæfniskröfur
Fullgild sérfræðiréttindi.
Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulögð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur til 20. febrúar 2017.
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal
skilað á Sjúkrahúsið Vog, Stórhöfða 45, 110 Reykjavík, eða í tölvupósti á saa@saa.is
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri, s. 824 7600,
netfang: thorarinn@saa.is